Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Qupperneq 19
S
purningin hér að ofan hljóm-
ar vafalaust hrokafull, ekki
síst þar sem hún kemur frá Ís-
lendingi. Vissulega eru New
York, Boston og San Francisco mikl-
ar menningarborgir, og Bandaríkin
hafa getið af sér rithöfunda og hugs-
uði sem flokka má með þeim bestu
í heiminum. Og samt, þegar maður
fylgist með bandarískum stjórnmál-
um, finnst manni þetta ekki nema
örlítil vin í afar þurri eyðimörk.
Á meðan almenningur á Spáni,
í Frakklandi og stundum jafnvel á
Íslandi mótmælir vegna skorts á
félagslegu og efnahagslegu réttlæti,
er eina fjöldahreyfingin sem eitthvað
kveður að í Bandaríkjunum að berj-
ast fyrir banni á fóstureyðingum og
minni sköttum á auðmenn. Umræð-
an þar fær íslenska stjórnmálamenn
til að virðast skynsama í samanburð-
inum, svo að maður nánast fyllist
lotningu gagnvart Alþingi Íslend-
inga, og er þá mikið sagt.
Bush og Berlusconi
Það er helst að maður þurfi að fara
til Ítalíu til að sjá annan eins sirk-
us. Í fáum öðrum lýðræðisríkjum
en þessum tveimur sér maður fólk
á borð við Michelle Bachman eða
Alessöndru Mussolini fá aðra eins
athygli í opinberri umræðu, eða þá
þjóðarleiðtoga á við Silvio Berlus-
coni og George W. Bush.
Ef til vill er það fleira sem þessi
tvö lönd eiga sameiginlegt. Á Ítalíu
er allt svo fallegt, arkitektúrinn svo
stórkostlegur og maturinn svo góður
að það er auðvelt að lifa ljúfa lífinu
og láta þjóðmálin fram hjá sér fara.
Bandaríkin hafa aðrar leiðir að sama
markmiði, markaðurinn býður upp á
svo margt til að dreifa huganum að
það er auðvelt að láta sér líða vel frá
degi til dags á meðan allt fer til fjand-
ans í kring.
Líklega er þó annað og meira
sem sameinar þessi lönd. Sjónvarps-
stöðvar Berlusconis sýna fátt annað
en leikjaþætti og léttklæddar stúlkur
sem kæft hafa alla umræðu. Í Banda-
ríkjunum eru einnig örfáir fjölmiðla-
kóngar sem eiga sjónvarpsstöðvar
sem sýna annaðhvort raunveruleika-
þætti sem hafa lítið með raunveru-
leikann að gera, eða fréttastöðvar
eins og Fox sem hafa enn minna með
raunveruleikann að gera. Þó að enn
séu til vandaðir fjölmiðlar inni á milli
fá þeir lítið að gert.
Bandaríkin og umheimurinn
Bandaríkjamenn eru almennt illa
að sér um heimsmálin, en það
kemur kannski ekki lengur á óvart.
Það sem maður rekur frekar augun
í er hversu illa þeir eru að sér um
málefni eigin lands, og jafnvel eigin
fylkis. Meira að segja í Kaliforníu,
sem er þó víðsýnna ríki en flest, eru
sérfréttir fyrir norður-, suður- og
miðhluta ríkisins, svo að fólk veit
lítið um hvað er að gerast í næsta
bæ. Jafnvel fréttastöðvar eins og
CNN sem ná yfir allt landið virðast
aðeins taka fyrir eins og eitt mál-
efni í mánuði. Í allt sumar var um
fátt annað fjallað en Casey nokkra
Anthony, sem gefið var að sök að
hafa myrt dóttur sína. Ómögulegt
var að veita henni sanngjörn réttar-
höld, þar sem allir kviðdómarar
voru fyrir fram búnir að mynda sér
skoðun. Ekki aðeins er það slæmt í
sjálfu sér, heldur dró það einnig at-
hyglina frá öðrum þjóðmálum sem
birtust ekki aftur á skjánum fyrr en
í ágúst þegar í ljós kom að efnahag-
urinn var við það að hrynja.
Slæmir fjölmiðlar eru líklega
ekki eina ástæðan fyrir því að skyn-
semin virðist eiga svona erfitt upp-
dráttar í því landi sem stór hluti
heimsins sækir fyrirmyndir sínar
til, en á meðan það breytist ekki
er erfitt að sjá að bót verði þar á.
Norður-Ameríka er áhugaverður
staðar að koma til, en feginn verð
ég að komast aftur til gömlu Evr-
ópu þar sem heilbrigð skynsemi
virðist enn vera talin löggilt sjón-
armið.
Umræða | 19Mánudagur 29. ágúst 2011
Gerðir þú eitthvað í sumarfríinu þínu?
„Ferðaðist um Ísland og skoðaði meðal
annars Snæfellsnes þar sem við húkkuðum
okkur far. Ég fór líka í Landmannalaugar“
Elsa Ocola,
20 ára morgunverðarkokkur á Central Hotel
„Ég fékk ekkert sumarfrí“
Ellen Alexandra Gunnlaugsdóttir,
21 árs starfsmaður á elliheimili
„Ég ferðaðist aðeins út fyrir borgina. Annars
gerði ég lítið. “
Ásta K.
33 ára klæðskeri hjá Munda
„Ég var að vinna í sumarbúðum fyrir fatlaða
í Bandaríkjunum. Ég fékk annars eina og
hálfa viku í frí. “
Hjalti Sigurður Karlsson,
18 ára nemi í MR
„Ég var að vinna á Iceland Fish and Chips. Ég
fékk smá sumarfrí frá því.“
Ásbjörn Haraldsson,
19 ára nemi í MR
1 Pilturinn sem sagði frá heimilisofbeldi fær hótanir
Drengnum sem sagði frá ofbeldi
föður síns var hótað.
2 „Eins og 64-tommu sjónvarp í hjólhýsi“
Pistlahöfundurinn Rowan Moore líkir
tónlistarhúsinu Hörpu við 64 tommu
sjónvarp sem komið er fyrir í hjólhýsi .
3 Brad Pitt bjargaði konu frá uppvakningum
Hollywood-stjarnan bjargaði konu
frá því að troðast undir við tökur á
kvikmynd.
4 Ekki Bingi Björn Ingi Bjarnason hefur verið
ráðinn kynningarfulltrúi Vestfirska
forlagsins, ekki nafni hans vefkóng-
urinn Hrafnsson.
5 Veðrið næstu vinnuvikuVerður hreint út sagt afar viðunandi.
6 LeAnne Rimes aldrei grennriSöngkonan hefur aldrei verið grennri
en nú, 29 ára að aldri.
7 LaunráðGula Pressan með beitta ádeilu á
ESB-umræðuna.
Mest lesið á dv.is
Myndin Leikár að hefjast Stóru leikhúsin héldu opnunarhátíðir sínar á laugardag þar sem verk vetrarins voru kynnt. Af
þessu tilefni mátti sjá ýmsar lykilpersónur bókmenntanna framreiða pylsur og fleira hnossgæti. Mynd SIGTRyGGUR ARI
Maður dagsins
Var aldrei
uppgefin
Elísabet Margeirsdóttir
Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttakona
tók þátt í fjallamaraþoni í vikunni þegar hún
hljóp Ultra-Trail du Mont-Blanc en hlaupið
þykir eitt það erfiðasta í heimi. Elísabet
hafði nýlokið keppni þegar blaðamaður náði
tali af henni en þá hafði hún hlaupið í 24
tíma og 22 mínútur.
Hvar ertu uppalin?
„Ég er alin upp í Reykjavík.“
Hvað drífur þig áfram?
„Keppnisskapið og ástríðan fyrir því sem ég
er að gera.“
Áttu þér fyrirmynd?
„Það eru margar flottar hlaupastjörnur í
þessum heimi sem ég horfi upp til. Ein þeirra
er Helga Þóra Jónasdóttir. Hún er ótrúlega
góður hlaupafélagi og hefur reynst mér vel
í undirbúningnum fyrir þetta hlaup. Hún er
einmitt að koma í mark núna.“
Á hvaða tíma varstu í Ultra-Trail du
Mont-Blanc hlaupinu?
„Ég hljóp þessa 120 km á 24 tímum og 22
mínútum.“
Ertu ánægð með árangurinn?
„Ég er mjög ánægð og sérstaklega miðað
við það að hlaupinu var breytt og leiðin var
lengd um átta kílómetra út af þrumuveðri.“
Var hlaupið erfiðara en þú bjóst við?
„Nei, alls ekki. Þetta var mjög erfitt, alveg
eins og ég hafði búist við, en ég var aldrei
uppgefin.“
Af hverju tókstu þátt í Ultra-Trail du
Mont-Blanc?
„Vegna þrýstings frá hlaupafélögunum.“
Hvað varstu gömul þegar þú byrj-
aðir að hlaupa?
„Ég var 16 ára.“
Hvað er það við hlaupin sem heillar?
„Það er erfitt að útskýra en maður fær
eitthvað út úr þessu. Svo er félagsskapurinn
alltaf góður og þetta er góð leið til að halda
sér í formi ásamt öðru.“
Hvað tekur við?
„Það er ekki ákveðið.“
Kjallari
Valur
Gunnarsson
Eru Bandaríkjamenn heimskir?
Dómstóll götunnar
„Bandaríkjamenn
eru almennt illa
að sér um heimsmálin, en
það kemur kannski ekki
lengur á óvart.