Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2011, Qupperneq 22
22 | Viðtal 29. ágúst 2011 Mánudagur
É
g sef með hafnabolta-
kylfu við hliðina á rúm-
inu og svo er exi við úti-
dyrahurðina. Það er
náttúrulega ekkert eðli-
legt við það,“ segir Marvin
Haukdal, 27 ára Akureyringur.
Marvin hefur barist við fíkn frá
unga aldri og þótt hann hafi nú
nánast verið edrú í að verða
þrjú ár segir hann drauga for-
tíðar reglulega minna á sig
í formi innbrota, hótana og
árása. Marvin býr ásamt kær-
ustu sinni, Berglindi Þórsdótt-
ur, og dóttur hennar í raðhúsi
á Akureyri en Berglind er einn-
ig fyrrverandi fíkill. Eftir langa
dvöl í hörðum heimi eiturlyfja
og afbrota segist hann staðráð-
inn í að súa við blaðinu en seg-
ir að það sé erfiðara en að segja
það að ætla sér að taka eðlileg-
an þátt í samfélaginu með svo
skuggalega fortíð. Sérstaklega
þar sem mannorðið sé í rúst.
Sökk dýpra í neyslu
Marvin var 13 ára þegar hann
fór að reykja hass og fljótlega
eftir það fór hann að drekka
áfengi. Hann segist hafa ver-
ið ofvirkur með athyglisbrest
sem barn en hafa hvorki fengið
réttu lyfin né meðferð. Honum
hafi gengið illa í skóla og verið
martröð hvers kennara í skóla-
stofunum. „Ég var alltaf snar-
geðveikur og lét illa í tímum
en það var bara afgreitt sem
óþekkt. Samkvæmt mömmu
var ég bara fjörugur krakki. Ég
var alltaf að leita að einhverju
sem róaði mig og þegar ég próf-
aði amfetamín í fyrsta skiptið
var það eins og dýrmæt gjöf.
Loksins gat ég haldið einbeit-
ingu og mér fór að ganga vel í
vinnu og þar sem ég seldi líka
fíkniefni átti ég nóg af pening-
um á þessum tíma og gat keypt
mér föt, bíl og annað dót. Ég
gekk fyrir amfetamíni þar til ég
var 21 árs en þá var ég rekinn
úr vinnu hjá Mjólkursamlagi
KEA þar sem það hafði frést að
ég væri í neyslu. Þrátt fyrir að
vera alveg brjálaður á þessum
tíma fékk ég strax vinnu í Tré-
smíðaverkstæði Sveins Heið-
ars og var þar í tvö ár. Mér
gekk vel í vinnunni en sökk
alltaf dýpra og dýpra í neyslu.
Þarna var ég farinn að neyta
hass, kóks og spítts á hverjum
degi og var orðinn aðeins bein
og skinn og ekki nema 67 kíló,“
segir Marvin sem fór fljótlega
líka að sprauta sig.
Þrátt fyrir að þéna vel á
fíkniefnasölu var neyslan orð-
in svo mikil að hann átti í erf-
iðleikum með að fjármagna
hana. „Ég var 23 ára þegar ég
reyndi að fremja vopnað rán
í verslun. Ég var einn að verki
með kylfu en það var aldrei
neinn ásetningur að meiða
neinn. Um leið og afgreiðslu-
konan kom á móti mér lét ég
mig hverfa. Þetta var örugglega
misheppnaðasta ránstilraun
landsins. Ég var samt handtek-
inn fyrir þetta og einhver önn-
ur afbrot og mér var stungið í
fangelsi í þrettán mánuði.“
Kærastan deyr
Þegar Marvin var 18 ára kynnt-
ist hann fyrst ástinni. Hann
og kærastan fóru strax að búa
saman en hún lést árið 2009,
aðeins 25 ára að aldri. „Þeg-
ar ég sat inni tókst mér í fyrsta
skiptið á ævinni að hald-
ast edrú. Um leið og mér var
sleppt leið ekki hálftími þar
til ég hafði fengið mér og lenti
þá í svakalegu „black outi“. Ég
man ekkert hvað gerðist næstu
mánuðina og vissi ekki af mér
fyrr en fjölskyldan var að skrá
mig inn á geðdeild. Sumarið
eftir dó kærastan mín og þá
hrundi heimurinn minn.“
Eftir fráfall kærustunn-
ar heltók svartnættið Marvin.
„Fjölskyldan mín fékk 48 tíma
neyðarinnlögn fyrir mig. Það
var dálítið harkalegt en það
var ekkert annað hægt. Ég var
staðráðinn í að drepa mig. Eftir
þessa tvo daga átti ég tvo val-
kosti. Annað hvort var ég á leið
í skuldafangelsi eða meðferð.
Ég vildi ekki vera lengur í fang-
elsi og valdi því meðferðina.
Eftir tíu daga fékk ég að fara
heim til að mæta í jarðarför-
ina og átti að klára meðferðina
á Akureyri í samstarfi við geð-
deildina hér fyrir norðan. Þar
fékk ég enga hjálp nema frá
Sigmundi Sigfússyni geðlækni
en hann er gull af manni,“ seg-
ir hann og bætir við að örlög-
in hafi orðið til þess að tveim-
ur mánuðum síðar hafi hann
kynnst stelpu, sem þá var ný-
bökuð móðir, í meðferð hjá
sama geðlækni sem hafi orð-
ið til þess að hann sjálfur hafi
þurft að hætta. Það hafi svo
Heimurinn hrundi tvisvar
Akureyringurinn Marvin Haukdal, sem
á að baki langa dvöl í heimi eiturlyfja og
afbrota, segist nú hafa snúið við blaðinu.
Marvin kynntist ástinni 18 ára en eftir nokk-
urra ára samband lést kærastan heima
hjá honum og aðeins þremur mánuðum
síðar lést önnur stelpa í rúminu við hliðina
á honum. Marvin hefur fundið ástina að
nýju en kærastan, Berglind Þórsdóttir,
hefur einnig barist lengi við fíknina. Þau
Marvin dreymir um eðlilegt fjölskyldulíf en
segja drauga fortíðar stöðugt minna á sig.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal „Ég kenni mér
ekki um dauða
hennar en ég hafði
allavega ekki góð
áhrif á hana, seljandi
á fullu og alltaf með
nóg af dópi.
Ástfangin Marvin segir bæði kost
og galla að vera í sambandi með
öðrum fíkli en þau Berglind hafa
bæði verið í harðri neyslu. Myndir Heiða.iS