Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Side 6
6 Fréttir 9.–11. desember 2011 Helgarblað Málinu ekki frestað n Útburðarbeiðni móður Ellu Dísar tekin fyrir É g fékk að heyra það frá lögfræð­ ingnum mínum í dag að málinu yrði ekki frestað,“ segir Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dís­ ar, fimm ára stúlku sem greind hef­ ur verið með taugaskaða af völdum sjálfsofnæmis. Ragna fékk á föstudagskvöldið í síðustu viku afhent bréf þar sem henni var tilkynnt að það ætti að taka fyrir kröfu um útburð í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. desember. Hún var að vonast til að fá málinu frestað, alla vega fram yfir jól. Það gekk hins vegar ekki eftir. Ragna fékk þær upp­ lýsingar að málinu yrði ekki frestað nema hún lægi alvarlega veik á spít­ ala. Ragna hefur leigt hjá Leiguliðum ehf. síðastliðin þrjú ár. Ef öll gögn í málinu eru tilbúin þá býst hún alveg eins við því að verða borin út strax. Ragna hefur ekki haft efni á að ráða lögfræðing til að sinna máli sínu almennilega. Hún hefur þó aðgang að lögfræðingi sem hefur aðstoðað hana lítillega án þess að fá greitt fyrir. „Ég er ekki borgandi viðskiptavinur þannig að maður verður að sætta sig við svona smá ölmusu.“ Ragna hef­ ur ekki í önnur hús að venda eins og staðan er í dag, en hún á tvær aðrar dætur fyrir utan Ellu Dís. Fjölskyld­ an hefur ekki getað fengið íbúð hjá Félagsbústöðum með hjólastóla­ aðgengi, sem er nauðsynlegt vegna Ellu Dísar. Eftir að fjallað var um yfirvofandi útburð fjölskyldunnar í DV hefur þó fjöldi fólks haft samand við Rögnu og boðið fram aðstoð sína. Þá er einnig símasöfnun í gangi til styrktar fjöl­ skyldunni sem hún segir hafa gengið framar vonum. Ragna er búin að vera í sambandi við Heimavarnarliðið sem hefur boðist til að standa vörð um heimili hennar ef til útburðar kemur. solrun@dv.is Mikið úrval af hring- og loðtreflum, húfum og vettlingum. JólagJöfin í ár Ný sending af tískuskartgripum og hárskrauti SkarthúSið laugavegi 44 Sími 562 2466Erum á Facebook Slitastjórn Landsbankans: „Hannes ekki fengið krónu“ „Hannes hefur ekki fengið krónu,“ segir Páll Benediktsson, upplýs­ ingafulltrúi slitastjórnar Lands­ bankans. Hann segir að frétt Morgunblaðsins á fimmtudaginn um að slitastjórn Landsbankans hafi greitt Hannesi Smárasyni 350 milljónir króna úr þrotabúi bank­ ans ranga. „Þetta er alveg kolröng frétt í Morgunblaðinu.“ Páll segir að milljónirnar hafi verið lagðar inn á sérstakan geymslureikning þar sem ágrein­ ingur ríki um hvort kröfur Hann­ esar í búið séu forgangskröfur. Ágreiningnum hefur verið skotið til dómstóla og er beðið niður­ stöðu í málinu. Slitastjórn hafnaði kröfunni þannig að hún telur hana ekki vera forgangskröfu,“ segir Páll í samtali við DV. Greint var frá því á miðvikudag að slitastjórn bankans hefði greitt fyrstu greiðslurnar úr búi hins fallna banka. Greiðslurnar sem slitastjórn Landsbankans tilkynnti um – jafnvirði um 432 milljarða íslenskra króna – námu um þriðj­ ungi af samþykktum forgangskröf­ um í búið. Réttindalaus velti bifreið Fólksbíll valt á Grensásvegi á móts við Réttarholtsveg á þriðja tím­ anum aðfaranótt fimmtudags. Þrjú ungmenni voru í bílnum og sluppu þau öll ómeidd. Ökumað­ urinn reyndist vera réttindalaus og er hann grunaður um akst­ ur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Hann hafði ekki leyfi til að vera á bílnum og reyndist hafa tekið hann ófrjálsri hendi af fjöl­ skyldumeðlimi. Bjartmar reiður út í Myndstef Þ að fauk svo í mig að ég sá svart. Ég var að gefa mann­ inum mynd, hundrað pró­ sent,“ segir Bjartmar Guð­ laugsson, tónlistar­ og myndlistarmaður. Hann gaf mynd á fjáröflunarsamkomu sem haldin var í október til styrktar Guðmundi Felix Grétarssyni sem missti báða hand­ leggina í vinnuslysi árið 1998. Mynd­ stef, myndhöfundasjóður Íslands, krafðist þess að svokallað fylgiréttar­ gjald væri greitt af öllum verkunum, þrátt fyrir að um góðgerðaruppboð væri að ræða. Gjaldið er tíu prósent af söluandvirði verka og rennur til höfunda þeirra. Mynd Bjartmars seldist á um fjörutíu þúsund krónur á uppboðinu og fylgiréttargjaldið því um fjögur þúsund krónur. Hann var ekki par sáttur þegar hann fékk sím­ tal frá Myndstefi á dögunum þar sem honum var tjáð að hann ætti inni hjá þeim peninga. „Það mega allir vita það að ég bara trylltist,“ segir Bjart­ mar til að ítreka hve reiður hann varð við símtalið. Hann segist verða reiður einu sinni á ári og þetta hafi verið það skipti. Um tvíverknað að ræða Bjartmari finnst ólíðandi að fylgi­ réttargjöld séu innheimt af verkum sem seld eru til styrktar góðgerðar­ málum. Þrátt fyrir að peningurinn renni í vasa Bjartmars sem getur gef­ ið hann í söfnun Guðmundar, þá vill hann meina að um tvíverknað sé að ræða. „Ég á ekki að þurfa að send­ ast með peninga sem ég er búinn að gefa. Fá þá frá Myndstef bara til að láta manninn hafa þá aftur. Ég veit ekki hvaða fjallabaksleið það er eig­ inlega á þessum fjögur þúsund kalli.“ Hann segist að sjálfsögðu ætla að koma því þannig fyrir að Guðmund­ ur fái peningana þótt hann hefði vilj­ að sleppa þessum krókaleiðum. Skylt að fara eftir lögum Yfir fimmtán listamenn gáfu verk sín á uppboðið og því ljóst að tölu­ verð upphæð fór í fylgiréttargjöld. DV fjallaði um málið í október þar sem Knútur Bruun, lögmaður Myndstefs, útskýrði af hverju fylgi­ réttargjöld væru innheimt af verk­ um sem seld eru í þágu góðgerðar­ mála. Hann sagði að lög um inn­ heimtu fylgiréttargjalda væru í gildi á Norðurlöndunum og Ísland væri þar engin undantekning. „Þegar voru haldin góðgerðaruppboð hér áður fyrr hafði Myndstef þá óskrif­ uðu reglu að innheimta ekki fylgi­ réttargjöld. Okkur fannst það hálf­ asnalegt að myndlistarmennirnir væru að gefa myndirnar sínar en svo væri innheimt gjald sem lista­ maðurinn fékk til sín.“ Þann ráða­ hag kærði Gallerí Fold til viðskipta­ ráðuneytisins fyrir nokkrum árum og úrskurðaði ráðuneytið að Mynd­ stefi bæri að innheimta þetta gjald, að sögn Knúts. Efast um lögmætið Bjartmar segist hafa lesið svör Knúts í DV en efast þó um réttmæti þessara laga. Hann ítrekar að gjöf sé gjöf. „Ég gaf manninum myndina og hann á þessa peninga. Ég gaf honum myndina til að hann gæti fengið nýjar hendur. Til að auðvelda honum þetta af því ég styð hann. Ég veit ekkert hvort þetta er í lögum og þó þetta sé í lögum þá veit ég ekkert hvort þau eru lögmæt.“ Vill ekki neikvæða orku Listamaðurinn Tolli gaf einnig mynd á uppboðið en hann er þó ekki ósáttur við Myndstef líkt og Bjartmar. „Ef við hefðum vitað þetta fyrir fram þá hefði að sjálfsögðu verið hægt að vinna eitt­ hvað í málinu en fyrst þetta er svona þá er samt sem áður alveg til flötur á því að leysa þetta.“ Tolli segir það lítið mál að sækja peninginn og afhenda Guðmundi og það ætlar hann að sjálfsögðu að gera. „Ég er með Guðmundi í þessu alla leið. Setjum ekki neikvæða orku inn í þetta. Vera bara með jákvæða orku í þessu alla leið og aldrei að rífast.“ n Myndstef innheimtir fylgiréttargjöld af verkum á góðgerðaruppboðum n Farið að lögum, segir lögmaður Myndstefs n Bjartmar efast um réttmæti laganna„Ég á ekki að þurfa að sendast með peninga sem ég er búinn að gefa. Safnar fyrir höndum Fjölmargir listamenn gáfu listaverk á fjáröflunarsam- komu til styrktar Guðmundi Felix. Ekki frestað Útburðarmál Rögnu verður tekið fyrir í héraðsdómi í dag, 9. desember. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Brjálaður Bjartmar er ósáttur við vinnubrögð Myndstefs og efast um réttmæti laganna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.