Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 8
8 Fréttir 9.–11. desember 2011 Helgarblað Mikill verðmunur á jólabókum n ASÍ kannaði verð á jólabókunum í bókabúðum og dagvöruverslunum Þ rjátíu til sextíu prósenta verð- munur var á hæsta og lægsta verði jólabóka þegar verðlags- eftirlit ASÍ gerði verðsaman- burð í tólf bókabúðum og dagvöru- verslunum víðs vegar um landið síðastliðinn þriðjudag. Kannað var verð á 63 bókartitlum sem gefnir hafa verið út á árinu. Mik- ill verðmunur var á milli verslana. Lægsta verðið var oftast að finna í versluninni Bónus eða á 25 titlum af 63, en sú verslun var einnig með fæsta bókartitla á boðstólum eða aðeins 29 af þeim 63 sem skoðað- ir voru. Í tilkynningu frá ASÍ kemur fram að hæsta verðið hafi oftast verið að finna í bókabúðinni Iðu í Lækjar- götu eða í um helmingi tilvika. Bóka- búðin Penninn-Eymundsson neitaði að taka þátt í könnuninni. Á eftir Bónus var Bóksala stúd- enta oftast með lægsta verðið, á 16 titlum af 63. Iða í Lækjagötu var oft- ast með hæsta verðið í könnuninni, á 32 titlum. A4 Smáratorgi og Mál og menning Laugavegi voru með hæsta verðið á 29 titlum. Mestur verðmunur í könnuninni var á sögubókinni Dauðinn í Dumbs- hafi, sem var á 4.193 krónur í Bónus en dýrust var hún í Hagkaup á 6.980 krónur. Það gerir 2.787 króna verð- mun, eða 66 prósent. Þýdda skáld- verkið Djöflanýlendan var á lægsta verðinu hjá Nettó á 3.518 krónur en dýrust hjá Máli og menningu á 5.790 krónur. Það gerir 2.272 króna verð- mun, eða 65 prósent. Einnig var mik- ill verðmunur á matreiðslubókinni Eldum íslenskt með kokkalandslið- inu. Hún kostaði 3.241 krónu í Bón- us en var dýrust í Hagkaup á 5.199 krónur. Það er 1.958 króna verðmun- ur, eða 60 prósent. Sem dæmi um mikinn verðmun á vinsælum titlum má nefna að skáld- sagan Hjarta mannsins eftir Jón Kal- man var ódýrust á 3.699 krónur hjá Krónunni en dýrust á 5.880 krón- ur hjá A4. Verðmunurinn er 2.181 króna, eða 59 prósent. Á meðan ég var í Reykjavík skip- aði félagsþjónustan eiganda gistiheimilisins að hreinsa herbergið mitt og fjarlægja allt dótið mitt, og til að kóróna þetta þá lokuðu þeir líka Bónuskort- inu mínu,“ segir Kassahun Alema- yehu, flóttamaður frá Eþíópíu. Hann hefur síðastliðin tvö ár haft aðsetur á Gistiheimilinu Fit í Njarðvík og beð- ið úrlausna sinna mála hér á landi. Í fátæklegu herbergi á Fit hefur hann geymt þá fáu veraldlegu hluti sem hann kom með til Íslands og hef- ur fengið senda frá heimalandi sínu. Kassahun hefur hins vegar verið svo heppinn upp á síðkastið að hafa feng- ið að gista hjá vini sínum í Reykjavík, enda aðbúnaður flóttamannanna á Fit ekki upp á marga fiska. Það varð þess valdandi að félagsþjónustan lét tæma herbergið og gefa eigur hans. Talinn farinn úr landi Þegar Kassahun áttaði sig á að Bón- uskortinu hans hafði verið lokað hafði hann strax samband við félags- þjónustuna og spurðist fyrir um mál- ið. Þar var honum tjáð að þar sem hann hefði ekki verið í herberginu sínu í einhvern tíma hefði verið talið að hann væri farinn úr landi. Starfs- maður félagsþjónustunnar sagðist hafa reynt að ná í hann í síma, án ár- angurs. Kassahun segir einkennilegt af félagsþjónustunni að draga þessa ályktun. Hann kom reglulega á skrif- stofuna hjá þeim og sótti vasapening og kom þá við í herberginu sínu í leið- inni. Þá var stöðug hreyfing á Bónus- kortinu sem hann hafði til umráða. „Auðvitað er ég ekki farinn úr landi, ég er búinn að vera hérna í meira en tvö ár. Ef ég hefði ætlað mér að flýja frá Íslandi hefði ég gert það innan árs. Ef fólki líður ekki vel á Íslandi þá fer það strax, eða innan nokkurra mánaða,“ fullyrðir Kassahun. Tímasetningar stemma ekki Hann segir þær tímasetningar sem félagsþjónustan gaf upp ekki stemma. Samkvæmt vini hans á gistiheimilinu var búið að tæma her- bergið hans á þeim tíma sem reynt var að ná í hann í síma. „Síminn minn var í ólagi í stuttan tíma því það voru vandræði með kortið mitt hjá símafyrirtækinu og ég varð að fá nýtt símakort. Þetta tók nokkra daga.“ Kassahun er fullviss um að síminn hans hafi verið í lagi á þeim tíma sem félagsþjónustan reyndi að ná í hann. Átti ekki fyrir mat Allar eigur Kassahuns voru fjarlægð- ar úr herberginu og hann fékk þau svör frá félagsþjónustunni að farið hefði verið með þær í Rauða kross- inn. Hann segist þó hafa fengið þær upplýsingar hjá eiganda gistiheim- ilisins að aðrir hælisleitendur hefðu fengið dótið hans. Í herberginu var hann með föt, skó, ýmsa persónulega muni og heimilistæki. Nokkrar bæk- ur og kross í hans eigu fann hann þó í geymsluherbergi á gistiheimilinu þegar hann fór að grennslast þar fyrir. „Það sýnir að ekki var farið með allt til Rauða krossins. En út af þessu tapaði ég öllum fötunum mínum og skóm og er nú allslaus. Alla síðustu viku var Bónuskortið mitt óvirkt. Ég átti ekki fyrir mat og var því mjög svangur. Ég gerði ráð fyrir því að um leið og þeir vissu að ég væri ennþá á landinu fengi ég pening inn á kort- ið, en ég heyrði ekki frá þeim fyrr en seint og um síðir.“ Hann segist ekki gera ráð fyrir að fá meira af dótinu sínu aftur. Tapaði persónulegum munum Kassahun hefur boðist að fá föt hjá Rauða krossinum en hann segir þau passa illa á sig. „Þetta eru yfirleitt föt í stórum stærðum en ég er mjög smávaxinn. Ég hef heldur ekki get- að fengið skó þar sem passa á mig. Þessi föt koma því ekki í staðinn fyr- ir fötin sem voru í herberginu,“ segir Kassahun, en fötin hafði hann fengið send frá Eþíópíu. Á mánudaginn fékk Kassahun nýtt Bónuskort frá félagsþjónustunni eftir að hafa verið peningalaus í heila viku. Hann segist vera bæði svekktur og sár yfir vinnubrögðum og vegna þeirra hefur hann tapað mörgum hlutum sem honum voru kærir. Kas- sahun hefur nú fengið úthlutað nýju herbergi á Fit en það er tómt og því ennþá óvistlegra en herbergið sem hann hafði áður. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð- ist ekki í fulltrúa hjá félagsþjónust- unni í Reykjanesbæ sem hefur með málefni flóttamanna að gera. Þá vildi starfsmaður Fit sem DV náði tali af ekki tjá sig um málið. Herbergið tæmt og eigur Hans gefnar n Kassahun Alemayehu fékk inni hjá vinum í Reykjavík n Tapaði eigum sínum fyrir vikið n Átti ekki fyrir mat í heila viku n Föt og skór gefin í Rauða krossinn „Alla síðustu viku var Bónus- kortið mitt óvirkt. Ég átti ekki fyrir mat og var því mjög svangur Tapaði eigum sínum Kassahun segist nú allslaus eftir að félagsþjónustan gaf eigur hans til Rauða krossins. Jólabækurnar Bónus var með lægsta verðið á 25 titlum af 63. Þar á eftir var Bóksala stúdenta með lægsta verðið á 16 titlum. Samkomulag undirritað: Aukinn stuðningur við kvikmyndagerð Á fimmtudag var undirritað sam- komulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvik- myndamenningu árin 2012 til 2015. Í samkomulaginu koma fram áherslur á sviði kvikmyndagerð- ar og kvikmyndamenningar á Ís- landi er varða þróun styrkjakerfis á sviði kvikmyndamála, kvikmynda- læsi, kvikmyndahátíðir, framboð á kvikmynduðu íslensku efni og markaðssetningu á íslenskri kvik- myndagerð. Einnig er fjallað um kvikmyndaarfinn, stafrænar kvik- myndir, kvikmyndamenntun og Ríkisútvarpið. Samkomulagið felur í sér að stuðningur við kvikmynda- gerð á Íslandi í gegnum Kvikmynda- sjóð eykst úr 452 milljónum króna á yfirstandandi ári í 700 milljón- ir króna árið 2015. Einnig verður komið á fót miðastyrkjum, framlög til kvikmyndahátíða og kvikmynda- húsa, sem leggja áherslu á listrænar myndir verða aukin og veitt verður sérstakt framlag til endurnýjunar eldri mynda. Það voru þau Katrín Jakobs- dóttir, mennta- og menningarmála- ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Ari Kristinsson, formaður Sambands íslenskra kvik- myndaframleiðenda, Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna (FK), og Ragnar Bragason, formaður Sam- taka kvikmyndaleikstjóra (SKL) sem undirrituðu samkomulagið í húsa- kynnum Kvikmyndamiðstöðvar Ís- lands. Meintir níðingar komu fyrir dóm Mál mannanna sem grunaðir eru um að hafa hafa níðst kynferðislega á fjórtán ára dreng frá Akranesi voru tekin fyrir í Héraðsdómi Vestur- lands á fimmtudag. Aðalmeðferð fór fram í máli eins þeirra, fyrirtaka í máli annars og þingfesting í máli þess þriðja. Mennirnir eru meðal annars grunaðir um að hafa greitt drengn- um fyrir kynlíf. Einn mannanna var kennari við Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi, en hinir tveir eru búsettir á Akranesi. Réttarhöldin yfir mönnunum eru lokuð og því fást ekki nánari upplýsingar um ákærurnar í málinu. Áfram í haldi vegna skotárásar Þrír karlmenn hafa verið úrskurð- aðir í áframhaldandi gæsluvarð- hald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Bryggjuhverfinu föstudagskvöldið 18. nóvember síðastliðinn. Tveimur þeirra er gert að sitja áfram í gæsluvarðhaldi til 22. des- ember og einum til 16. desember. Einn karl til viðbótar hefur sömu- leiðis verið úrskurðaður í gæslu- varðhald til 22. desember en sá var handtekinn á miðvikudag. Fjór- menningarnir eru á þrítugs- og fer- tugsaldri. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.