Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 13
Fréttir 13Helgarblað 9.–11. desember 2011
Kaupfélagsstjórinn
græðir að tjaldabaki
Rúmlega 2 milljarða hagnaður
FISK-Seafood var sjöunda stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, miðað við
veltu á síðasta ári, samkvæmt úttekt Fiskifrétta á stærstu útgerðarfyrirtækjum
landsins í nóvember á þessu ári. Velta fyrirtækisins nam þá nærri 9 milljörðum
króna og nam hagnaður þess
rúmlega 2 milljörðum króna eftir
skatta. Fyrirtækið var jafnframt
í sjötta sæti yfir kvótahæstu
útgerðir landsins með tæplega 14
þúsund þorskígildistonn eða nærri
4,30 prósent af kvóta landsins.
Stór hluti af 2,5 milljarða króna
hagnaði Kaupfélags Skagfirðinga
og dótturfélaga þess á síðasta ári
var því komin frá FISK-Seafood.
Fyrirtækið varð til við sameiningu
Fiskiðjunnar Skagfirðings á
Sauðárkróki og Skagstrendings á Skagaströnd. Fyrirtækið gerir út tvo frystitog-
ara og tvo ísfisktogara, ásamt bolfisk- og rækjuvinnslu. 250 manns starfa hjá
FISK-Seafood, 150 á sjó og 100 á landi. Fyrirtækið er að fullu í eigu Kaupfélags
Skagfirðinga. Þórólfur Gíslason er kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og
Jón Eðvald Friðriksson er framkvæmdastjóri FISK Seafood.
með hlutabréfin í FISK Seafood, fyrir
og eftir sameiningu félagsins við fyrir-
tæki sem voru í eigu Kaupfélags Skag-
firðinga. Bréfin í FISK Seafood sem
Fiskileiðir keyptu árið 2005 enduðu
að lokum sem eign kaupfélagsins eft-
ir að hafa hækkað umtalsvert í verði
frá því voru keypt og þar til þau voru
seld. Kaupfélagið, eða félag sem var að
langmestu leyti í eigu kaupfélagsins,
virðist hafa keypt hlutabréfin af Fiski-
leiðum. Eigendur Fiskileiða voru einn-
ig stjórnendur kaupfélagsins.
Fjárfesti í sparisjóðnum og Kaup-
þingi
Annað félag í eigu Þórólfs og Sigur-
jóns Rúnars Rafnssonar, Veifa ehf.,
sem síðar var endurnefnt Matróna, var
stórtækt í hlutabréfaviðskiptum á ár-
unum fyrir hrun. Árið 2005 fjárfesti fé-
lagið fyrir tæplega 580 milljónir króna
í stofnfjárbréfum í Sparisjóði Reykja-
víkur og nágrennis. Viðskiptin voru
fjármögnuð með láni frá lánastofnun,
samkvæmt ársreikningi félagsins. Árið
eftir selur félagið þessi bréf og skilar
400 milljóna króna hagnaði. Félagið
átti meðal annars dótturfélagið Mund-
arloga sem átti handbært fé upp á um
400 milljónir króna og annað dóttur-
félag, Gildingu ehf., sem var eignalítið.
Árið eftir, 2007, greiddi Matróna 83
milljóna króna arð til eigenda sinna
og árið 2008 400 milljónir króna. Þá
hafði félagið sömuleiðis fjárfest í litlum
eignarhlut í Kaupþingi. Þetta sama ár,
2008, voru þrjú af félögum Háuhlíðar 2
og Háuhlíðar 3 sameinuð Matrónu og
hættu að vera til sem sjálfstæðar ein-
ingar.
Milljarða viðskipti
Á sama árabili og þessi viðskipti Þór-
ólfs og Sigurjóns Rúnars áttu sér stað
voru dramatískar hræringar með eign-
arhald á hlutabréfum í VÍS og Existu
sem tengjast rekstri Kaupfélags Skag-
firðinga. Kaupfélag Skagfirðinga hafði
verið einn stærsti hluthafi vátrygg-
ingafélagsins VÍS eftir að S-hópurinn
svokallaði, sem Þórólfur var hluti af,
tryggði sér allt hlutafé í félaginu með
kaupum á eignarhlut Landsbank-
ans í því árið 2002. Eignarhaldsfélag-
ið Hesteyri hélt utan um hlutabréfa-
eign Kaupfélags Skagfirðinga í VÍS, í
gegnum FISK Seafood, en útgerðar-
fyrirtækið Skinney-Þinganes á Höfn í
Hornafirði átti helmingshlut í Hesteyri
á móti kaupfélaginu. Hesteyri átti sam-
tals 25 prósenta hlut í VÍS. Um mitt ár
2006 keypti eignarhaldsfélagið Exista
allt hlutafé í Vátryggingafélagi Íslands
og greiddi fyrir með hlutabréfum í Ex-
ista. Þar á meðal var fjórðungshlutur
Hesteyrar í tryggingafélaginu. Hesteyri
fékk í staðinn 5,7 prósenta hlut í Exista.
Í nóvember sama ár gerðu hlut-
hafar Hesteyrar með sér samning um
að skipta félaginu upp í fjögur eignar-
haldsfélög. Eignir Hesteyrar runnu svo
til þessara fjögurra félaga. Um þetta
segir í ársreikningi félagsins: „Á hlut-
hafafundi í nóvember 2006 gerðu hlut-
hafar með sér samning um skiptingu
félagsins og fengu hluthafar í félaginu
hluti í fjórum einkahlutafélögum fyrir
hluti sem þeir láta af hendi að sama
nafnverði. Eignarhlutföll hluthafa, við
skiptingu félagsins, í öllum félögunum
urðu þau sömu og þau voru í Eignar-
haldsfélaginu Hesteyri hf. fyrir skipt-
ingu.“
Sama ár seldu öll eignarhaldsfélög-
in hlutabréf sín í Exista. Í lok desemb-
er 2006 var tilkynnt um það í Kauphöll
Íslands að félag Þórólfs Gíslasonar,
Hesteyri, hefði selt 1,91 prósenta hlut
í Exista fyrir 4,9 milljarða króna. FISK
Seafood var þá eini skráði hluthafi
Hesteyrar.
Kaupfélag í eigu 1.500 félagsmanna
Í lok mars í fyrra birti Stöð 2 frétt um kvótahæstu útgerðarfyrirtæki landsins. Þar var meðal annars rætt
um FISK Seafood og sagt að Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri réði miklu um starfsemi fyrirtækisins
þar sem hann stýrði Kaupfélagi Skagfirðinga, eina hluthafa FISK Seafood. Aðstandendur FISK Seafood
voru ekki sáttir við þetta og birtu eftirfarandi tilkynningu á vef sínum. Þar er áréttað að Kaupfélag
Skagfirðinga sé í eigu 1.500 félagsmanna sem allir hafi
jafnt atkvæðavægi á fundum félagsins og því sé af og frá
að Þórólfur sé einráður um starfsemina.
„FISK-Seafood hf. hefur óskað eftir því við Stöð 2 að
koma á framfæri leiðréttingu á frétt sem var í frétta-
tíma stöðvarinnar, miðvikudagskvöldið 24. mars 2010.
Í fréttinni er látið að því liggja varðandi eignarhald í
FISK-Seafood hf. að það sé á höndum eins manns Þórólfs
Gíslasonar. Hið rétta er að Kaupfélag Skagfirðinga er eini
eigandi FISK-Seafood hf. Eigendur Kaupfélags Skag-
firðinga eru um 1.500 félagsmenn sem allir hafa jafnt
atkvæðavægi á fundum félagsins og félagið því í raun í eigu íbúa héraðsins. Allir íbúar héraðsins, sem
þess óska og orðnir eru 14 ára gamlir geta gerst félagar í Kaupfélagi Skagfirðinga með 100 kr. greiðslu og
öðlast með því jafnan rétt á við þá sem fyrir eru í félaginu og þar með orðið þátttakendur í fjölbreyttri
atvinnustarfsemi KS og meðal annars í íslenskum sjávarútvegi. Afnota- og nýtingarréttur að auðlindum
sjávar til lengri tíma eru því fyrirtækinu, starfsmönnum þess og öllum íbúum Skagafjarðar mjög mikil-
vægur og fara þar hagsmunir fyrirtækisins, starfsmanna þess og íbúa héraðsins algjörlega saman.“