Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 34
26.4 2002 34 9.–11. desember 2011 Helgarblað Sakamál Engin iðrun Þennan dag þuldi Alton Coleman 23. sálm Gamla testamentisins og voru það hans hinstu orð. Hann fékk banvæna sprautu í aftökuklefa ríkisfangelsisins í Lucasville í Ohio. Coleman var sakfelldur í Ohio, ásamt lagskonu sinni Debru Brown, en þau myrtu sjö manns í sex ríkjum Bandaríkjanna árið 1984. Við réttarhöldin sýndu skötuhjúin enga iðrun. U m s j ó n : K o l b e i n n Þ o r s t e i n s s o n k o l b e i n n @ d v . i s S tundum er haft á orði að hægri höndin viti ekki hvað sú vinstri gerir. Það sannaðist í Danmörku á dögun- um þegar karlmaður sem lögreglan hafði lýst eftir og leitað í tvö ár fékk stuðn- ing frá hinu opinbera um þriggja mánaða skeið til að afla sér menntunar. Það virðist deginum ljósara að þótt ein- staklingur stingi af frá geðsjúkrahúsi og sé síðan leitað vegna ráns sé ekkert því til fyr- irstöðu að viðkomandi fái styrk frá ríkinu til að hefja nám. Málið varðar 21 árs karlmann frá Fredens borg sem hafði stundað þriggja mánaða nám við kokkaskóla á Amager í Kaupmannahöfn þegar lögreglan á Norð- ur-Sjálandi loks hafði hendur í hári hans. Þótt oft sé rætt um þá tölvuöld sem nú ríkir með allri sinni tækni sem á að ein- falda marga framkvæmdina, þá virðist hvergi „kvikna á perunni“, rauðri eða hvítri, þegar eftirlýstur maður fær greiddar bætur eða styrk frá hinu opinbera. Lögreglan þarf að fletta á gamla mátann upp á þeim sem leitað er að og að sögn Anders Kusk, hjá lögreglunni á Norður- Sjálandi, er það tímafrekt: „Við erum með skápfylli af málum sem varða eftirlýsta ein- staklinga.“ Anders Kusk sagði í viðtali við Fredens- borg Amts Avis að lögreglan vildi gjarna fá sjálfkrafa tilkynningar, en að sennilega væri góð og gild ástæða fyrir reglunum eins og þær eru. Maðurinn sem um ræðir stakk af frá geðsjúkrahúsi í ágúst 2009, en þar var hann í varðhaldi vegna ráns sem fram- ið hafði verið á Stóru-Krá í Fredensborg. Hann hafði í félagi við tvo menn hótað starfsmanni krárinnar barsmíðum en stakk sem sagt af áður en dómur féll í málinu. Félagar hans tveir voru hins vegar dæmdir til átta mánaða vistar á bak við lás og slá. Nú hefur maðurinn snúið við blaðinu. Hann á kærustu og sagði við yfirheyrslur að hann væri ánægður með námið sem hann hefði stundað. Hann játaði sök í áðurnefndu ráni sem og ráni sem framið var í innbroti í Helsingør. Lögreglan krafðist varðhalds yfir mann- inum en dómarinn ákvað að treysta því að hann hygðist ganga hinn þrönga veg heiðarlegs lífernis. Því var honum sleppt eftir að hann lofaði því hástöfum að hann myndi mæta vandræðalaust þegar mál hans yrði dómtekið. Hver veit nema vegferð mannsins inn í framtíðina verði prýdd heiðarleika og dyggðum? Eftirlýstur á opinberum styrk Lofar bót og betrun F östudaginn 4. febrúar 2005 fór Mark Lunsford á fæt- ur um fimmleytið, venju samkvæmt. Nánast í sömu andrá og Mark slökkti á vekjaraklukkunni heyrði hann vekjaraklukku níu ára dóttur sinn- ar fara í gang í næsta herbergi en feðginin bjuggu í stóru hjólhýsi, í Homossa í Flórída, ásamt foreldr- um Marks og dóttir hans, Jessica, fór alla jafna á fætur um leið og hann og gerði sig klára í skólann. Þegar Mark opnaði dyrnar að herbergi Jessicu reiknaði hann með að hún væri í fastasvefni með tuskutígur í fanginu, en sú var ekki raunin; rúm hennar var autt fyrir utan tígurinn. Mark skimaði eftir Jessicu í hjólhýsinu en hana var hvergi að finna, uppáhaldstusku- dýrið hennar – fjólublár höfrungur – var horfið og útihurðin var ólæst. Mark Lunsford hringdi umsvifa- laust á neyðarlínuna. Lögreglan beið ekki boðanna og hennar fyrsta verk var að kanna alla þekkta kynferðisbrotamenn á svæðinu. Rannsókn lögreglunnar leiddi í ljós að einn þeirra bjó ekki þar sem hann var skráður. John Evander Couey var fluttur án þess að tilkynna yfirvöldum um það, eins og kynferðisbrotamönnum ber skylda til í Bandaríkjunum. Sakaskrá Coueys var löng og full ástæða til að kanna hann nánar. Innan skamms komst lögreglan að því að hann hafði flutt til syst- ur sinnar sem bjó á hjólhýsasvæði sem var í göngufæri við heimili Marks Lunsford. Húsleit í hjólhýsi systur Cou- eys bar ekki árangur og fullyrtu hún og sambýlismaður hennar að þau hefðu ekki hugmynd um hvar Couey héldi sig. Lögreglan fram- kvæmdi aðra húsleit nítján dögum síðar. Þá fundust blóðblettir í rúmi sem Couey hafði sofið í og jókst þá áhugi lögreglunnar á honum. Couey hafði þegar þar var komið sögu tekið til fótanna og farið til Georgíu. Grafin lifandi Til að gera langa sögu stutta fann lögreglan lík Jessicu Lunsford 19. mars 2005, en tveimur dögum áður hafði lögreglan haft hendur í hári Coueys þar sem hann hafði leitað skjóls hjá Hjálpræðishern- um í Augusta í Georgíuríki. Þá var hvarf Jessicu orðið fréttaefni um gjörvöll Bandaríkin. Það voru rannsóknarlög- reglumenn að nafni Scott Grace og Gary Achison sem sáu um að yfirheyra Couey og komust þeir hvorki lönd né strönd til að byrja með. Couey samþykkti þó að taka lygamælispróf, en fór fram á að fá lögfræðing. Fyrir einhverra hluta sakir var ekki orðið við beiðni Coueys en hann brotnaði saman við prófið og viðurkenndi að hafa rænt Jessicu og myrt. Einnig sagði frá því hann hvar lík hennar var að finna. Yfirheyrslurnar leiddu í ljós að Couey hafði haldið Jessicu í hjól- hýsi systur sinnar í þrjá daga og hún hafði í reynd verið falin inni í skáp þegar lögreglan leitaði fyrst í hjólhýsinu. Couey beitti Jessicu ítrekað kynferðislegu ofbeldi en þegar hann komst að því að hann hefði vakið áhuga lögreglunnar fór hann á taugum. Couey batt hendur Jessicu, tróð henni í svarta plastpoka og gróf hana lifandi. Þegar lík- ið fannst sást á ummerkjum að henni hafði tekist að gera lítil göt á plastpokann en kafnað með bláa höfrunginn í fanginu. Ógildar sannanir Í apríl 2005 var lögð fram kæra á hendur Couey fyrir morð, mann- rán og innbrot. Hann lýsti yfir sakleysi sínu en var úrskurðaður í varðhald þar til réttað yrði í máli hans. Í júnílok 2006 úrskurðaði dómari að játning Coueys frá 2005 væri gild því honum hefði ekki verið útvegaður lögfræðing- ur á þeim tíma. Einnig bannaði dómari að sönnunargögn sem aflað var eftir játninguna yrðu notuð. Þrátt fyrir að úrskurður dóm- arans væri reiðarslag fyrir ákæru- valdið var ekki öll von úti. Rétt- arhöldunum var frestað til 12. febrúar 2007 og leit að frambæri- legum kviðdómurum hófst. Það reyndist þrautin þyngri að finna kviðdómara sem talist gætu hlut- lausir og reyndar tilkynntu sumir mögulegir kviðdómarar að þeim hefði verið hótað líkamlegum meiðingum ef þeir úrskurðuðu Couey ekki sekan. En allt hafðist þetta á endan- um og þegar réttarhöldin hófust lagði ákæruvaldið fram ný sönn- unargögn, meðal annars lífsýni úr Jessicu og sæði Coueys sem fannst á dýnunni í hjólhýsinu. Fingraför Jessicu fundust á innan- verðum skápnum sem hún hafði hírst í meðan hún var fangi Cou- eys. Leidd voru fram vitni, rann- sóknarfólk og fangaverðir, sem báru að Couey hefði ítrekað við- urkennt sök sína en ávallt haldið því fram að hann hefði ekki ætl- að að myrða Jessicu – það hefði hann gert í óðagoti. Verjendur Coueys héldu því fram að hann væri, sökun lítillar greindar, ekki sakhæfur. Greind- arvísitala hans mældist 78. Ef hún hefði verið átta stigum lægri hefði Couey verið úrskurðaður þroskaskertur. Þann 7. mars komst kviðdóm- ur að þeirri niðurstöðu að Couey væri sekur um allt það sem hann var sakaður um; morð, mannrán, innbrot og kynferðislegt ofbeldi. Þann 11. ágúst komst kvið- dómur enn fremur að því, með 10 atkvæðum gegn 2, að ekkert mælti gegn því að Couey hlyti dauðadóm. En réttarkerfi Bandaríkjanna stóðst manninum með ljáinn ekki snúning og 30. september 2009 dó John Evander Couey eðlilegum dauðdaga í fangelsi, en hann hafði glímt við veikindi um nokkurt skeið. Jessicu-lögin Árið 2005 voru innleidd lög í Flór- ída sem kennd eru við Jessicu. Á meðal þess sem lögin kveða á um er að sá sem gerist sekur um blygðunar- eða siðferðisbrot gegn barni undir 12 ára aldri hljóti að minnsta kosti 25 ára fangelsi og sé gert að sæta rafrænu eftirliti að refsingu lokinni. Í Flórída er refs- ing við nauðgun á barni undir 12 ára aldri allt að lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Fjörutíu og tvö ríki Bandaríkj- anna hafa innleitt lög sem byggja á fyrrnefndum lögum og eru í dag- legu tali nefnd Jessicu-lögin. n Jessica var 9 ára þegar hún var myrt n Fórnarlamb þekkts kynferðisbrotamanns n Við húsleit yfirsást lögreglunni að kíkja inn í skáp þar sem hún var falin GRAFIN LIFANDI „Þegar líkið fannst sást á ummerkjum að henni hafði tekist að gera lítil göt á plastpokana en kafnað með bláa höfr- unginn í fanginu. Fórnarlamb og morðingi Jessica var í haldi Coueys í þrjá daga áður en hann gróf hana lifandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.