Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Blaðsíða 18
18 Fréttir 9.–11. desember 2011 Helgarblað Músagangur á aðventunni! Músíkalska músin Maxímús Músíkús býður ykkur í ratleik í Hörpu á hverjum sunnudegi á aðventunni. Maxímús Músíkús er sérleg tónlistarhúsamús og eina veran sem á lögheimili í Hörpu. Maxímús er á vappi við músarholuna sína í 12 Tónum alla laugardaga og sunnudaga. Þessa frægustu tónlistarmús landsins langar til að hitta ykkur og fara í ratleik á sunnudögum kl. 13.30 og aftur kl. 14.30. Maxímús ætlar líka að kynna ykkur fyrir því sem hann dáir mest: Tónlistinni í Hörpu. Nánari upplýsingar eru á www.harpa.is og þar finnið þið líka skemmtilega tölvuleikinn með Maxímús. Athugið að einungis komast 40 í ratleikinn í einu. Fylgist öll með á www.harpa.is ÍS LE N SK A S IA .IS H AR 5 73 57 1 1/ 11 F rétt DV um Nikolu Dudko, þrettán ára stúlku sem greind- ist með hvítblæði fyrir um hálfu ári, snerti hjörtu margra. Starfs- fólk Samsung setursins sem er í eigu Bræðranna Ormsson hafði sam- band við blaðamann DV en það lang- aði að gleðja Nikolu og létta henni sjúkrahúsdvölina með því að gefa henni spjaldtölvu sem hún getur not- að til að stytta sér stundir í veikindum sínum. Langaði að gleðja Það var Skúli Hersteinn Oddgeirsson sem afhenti Nikolu tölvuna á Barna- spítala Hringsins á fimmtudag. „Frétt- in um Nikolu snerti okkur og okkur langaði til að gleðja hana á einhvern hátt. Okkur datt í hug að lítil og nett spjaldtölva myndi henta henni vel, þar sem hún getur notað hana til að vera í sambandi við vini sína, spilað leiki, horft á þætti og ýmislegt fleira.“ Nikola var að vonum ánægð þegar Skúli mætti færandi hendi inn á sjúkra- herbergi hennar. „Ég veit ekki hvernig ég á að þakka fyrir mig, þetta er svo fín gjöf. Takk fyrir mig,“ sagði hún örlítið feimin og brosti. Í beinmergsskipti í Svíþjóð Eins og fram kom í fyrri frétt DV glímir Nikola við erfið veikindi, krabbamein sem svarar ekki lyfjameðferð. Hennar eina von er að fara til Svíþjóðar í merg- skipti en enn hefur ekki fundist réttur merggjafi. Þegar blaðamaður hitti Nikolu í byrjun desember var hún of veik til að fara til Svíþjóðar en nú er stefnt að því að fjölskyldan fari út á mánudag- inn og Nikola fái beinmerg frá móð- ur sinni. Móðir hennar er ekki full- kominn merggjafi en þar sem enginn annar hefur fundist eru bundnar von- ir við að beinmergur hennar aðlagist líkama Nikolu. Það er ljóst að aðgerð- in mun reyna mikið á Nikolu en hún mun dvelja á sjúkrahúsi í Lundi í að minnsta kosti þrjá mánuði eða þang- að til hún verður „… nógu frísk til að koma heim,“ eins og Nikola segir sjálf. Foreldar hennar og yngri systkini hennar tvö fara með henni til Lundar og gista á hóteli sem tilheyrir sjúkra- húsinu. Aðspurð segir Nikola að hún sé örlítið kvíðin fyrir ferðinni. „Ég er smá kvíðin en ég hlakka samt svo til að verða frísk þannig að mig langar að fara út.“ Mest hlakkar hún til að geta spilað fótbolta aftur með vinum sín- um en hún er í marki í liði Ungmenna- félags Langnesinga og er mikill aðdá- andi kvennalandsliðsins í fótbolta. Hjúkrunarfræðingarnir góðir Hún ætlar að verða hjúkrunarfræð- ingur þegar hún verður stór og vinna á barnadeild. „Hjúkrunarfræðing- arnir hérna á deildinni eru mjög góð- ir og mig langar til að hjálpa veikum börnum eins og þeir,“ segir hún og brosir. Fjölskyldan flutti til Þórshafnar á Langanesi frá Póllandi fyrir um fjórum árum og hefur samfélagið þar staðið þétt við bakið á fjölskyldunni. Eftir að hún veiktist tóku nokkrir einstaklingar sig saman og skipulögðu happadrætti til styrktar fjölskyldunni. Það gekk vonum framar og söfnuðust rúmlega 600.000 krónur í styrktarsjóð Nikolu. Kennari hennar í grunnskólanum á Þórshöfn stofnaði styrktarreikning og ef fólk vill létta undir með fjölskyld- unni getur það lagt inn á reikninginn: 1129-05-2913, kt. 021076-4309. „Ég veit ekki hvern- ig ég á að þakka fyrir mig, þetta er svo fín gjöf. Takk fyrir mig Nikola fékk spjaldtölvu að gjöf n Starfsfólk Samsung setursins langaði að gleðja Nikolu sem berst við hvítblæði n Fer til Svíþjóðar á mánudag og fær beinmerg frá móður sinni n Hlakkar til að verða frísk Nikola er hæst- ánægð Nú getur hún stytt sér stundir með Samsung-spjald- tölvunni sem Samsung setrið færði henni að gjöf. MyNd Sigtryggur Ari Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.