Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Qupperneq 12
Himinháar arðgreiðslur Þórólfur
Gíslason og Sigurjón Rúnar Rafnsson, æðstu
stjórnendur Kaupfélags Skagfirðinga, voru
stórtækir í hlutabréfaviðskiptum á árunum
fyrir hrunið.
12 Fréttir 9.–11. desember 2011 Helgarblað
www.xena.is
Mikið úrval af barnaskóm
Opið virka daga 11-18
laugardag 11-16
Grensásvegur 8 og Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
BARNASTÍGVÉL
St. 22-35
Verð 7.995
St. 22-40
Verð 7.995
Gleði á Reyðarfirði:
Ljós tendruð
á hæsta trénu
Ljós voru nýlega tendruð á hæsta
íslenska jólatrénu í ár við hátíð-
lega athöfn hjá Alcoa Fjarðaáli á
Reyðarfirði. Börn frá leikskólunum
Dalborg og Lyngholti komu í heim-
sókn og sungu jólalög við athöfn-
ina, sem haldin var miðvikudaginn
7. desember. Tréð, sem er um 13,5
metra hátt sitkagreni, var nýlega
fellt í Hallormsstaðaskógi. Að sögn
Þórs Þorfinnssonar, skógarvarðar
hjá Skógrækt ríkisins, var tréð gróð-
ursett árið 1979, en fræið er ættað
frá Homer í Alaska.
Tréð var gróðursett af norskum
hópi skógræktarfólks sem kom
hingað í vinnuferð árið 1979 og þá
gróðursetti hópurinn meðal annars
þetta tré. Það hefur vaxið einstak-
lega hratt, eða um 40 sentímetra
á ári og var orðið 13,5 metra hátt.
Engin stög eru notuð til að halda
trénu uppréttu heldur var neðsti
hluti þess settur ofan í járnhólk,
sem steyptur var í níðþunga undir-
stöðu. Tréð skartar nú sínu feg-
ursta, starfsmönnum – og raunar
öllum íbúum Reyðarfjarðar – til
yndisauka að því er fram kemur í
tilkynningu frá Alcoa.
Þ
órólfur Gíslason, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðarkróki,
hefur hagnast persónulega
um að minnsta kosti vel á
hundrað milljónir króna á hluta-
bréfaviðskiptum síðastliðin ár í
gegnum fjárfestingafélag sitt Háu-
hlíð 2. ehf. Aðstoðarkaupfélagsstjór-
inn, Sigurjón Rúnar Rafnsson, hefur
stundað fjárfestingar með Þórólfi í
gegnum félag sitt, Háuhlíð 3. ehf.,
og sömuleiðis hagnast um tugi
milljóna króna fyrir vikið. Þriðji við-
skiptafélaginn er Jón Eðvald Frið-
riksson sem er framkvæmdastjóri
útgerðarfyrirtækisins FISK Seafood
sem er að 100 prósenta leyti í eigu
Kaupfélags Skagfirðinga. Félag hans
heitir Háahlíð 7 ehf. Eignarhalds-
félögin eru kennd við götuna þar
sem þremenningarnir búa á Sauð-
árkróki.
Um var að ræða fjárfestingar í
hlutabréfum í Kaupþingi, stofnfjár-
bréfum í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis og í dótturfélagi Kaup-
félags Skagfirðinga, FISK Seafood,
sem hefur verið að 100 prósenta
leyti í eigu Kaupfélags Skagfirðinga
frá árinu 2008. Þetta kemur fram í
ársreikningum eignarhaldsfélaga
þeirra og félögunum sem þeir fjár-
festu í, meðal annars Matrónu ehf.,
Gullin ló ehf., Síðasta dropanum ehf.
og AB124 ehf. Eitt af eignarhalds-
félögum þeirra, Síðasti dropinn,
fjárfesti meðal annars fyrir rúma 6
milljarða króna í fjárfestingafélag-
inu Sveinseyri árið 2006 þrátt fyrir
að hlutafé félagsins væri aðeins 600
þúsund krónur. Viðskipti eignar-
haldsfélaganna þriggja eru afar flók-
in og ekki mjög gagnsæ.
Tugmilljóna arðgreiðslur 2007 og
2008
Árið 2007 tók Þórólfur sér 75 milljóna
arð út úr eignarhaldsfélagi sínu. Fé-
lagið hafði þá fengið 83 milljónir króna
í arð frá dótturfélögum sínum. Litlar
skuldir voru inni í félaginu á móti þess-
um eignum eða tæplega 9,5 milljónir
króna. Árið eftir, hrunárið 2008, skil-
aði félagið 213 milljóna króna hagn-
aði og tók Þórólfur 80 milljónir króna í
arð út úr félaginu. Eignir félagsins, sem
voru bundnar í áðurnefndum dóttur-
félögum, höfðu þá aukist úr tæpum 50
milljónum upp í nærri 210 milljónir
króna. Enginn arður var tekinn úr fé-
laginu næstu tvö árin þar á eftir 2009
og 2010.
Sigurjón Rúnar Rafnsson tók sér
9 milljónir í arð út úr sínu félagi árið
2007 og 57 milljónir króna árið 2008.
Þá nam arðgreiðslan út úr Háuhlíð 3.
til Sigurjóns nærri 13 milljónum króna
árið 2006.
Þá stóð eignarhaldsfélag Jóns Eð-
valds eftir sem eini hluthafi eignar-
haldsfélagsins Síðasta dropans í árs-
lok 2008 en félagið átti þá eignir upp
á rúmlega hálfan milljarð króna. Fram
að þeim tíma hafði Síðasti dropinn
verið í eigu félaganna þriggja og haldið
utan um hlut þeirra í eignarhaldsfélag-
inu Fiskileiðum.
Högnuðust á hlutabréfum félags í
eigu kaupfélagsins
Í ársreikningi Fiskileiða fyrir árið
2005 kemur fram að fyrirtækið hafi á
árinu keypt rúmlega 3 prósenta hlut í
FISK Seafood fyrir nærri 149 milljón-
ir króna. Viðskiptin voru fjármögnuð
með láni frá lánastofnun, samkvæmt
ársreikningnum. Ekki er tekið fram af
hverjum bréfin voru keypt.
Í byrjun febrúar 2006 sameinuð-
ust svo FISK Seafood, Fiskiðja Sauðár-
króks og FISK eignarhaldsfélag starf-
semi sína undir nafninu FISK Seafood
hf. og átti Kaupfélag Skagfirðinga, sem
Þórólfur stýrir, 98.8 prósenta hlut í út-
gerðarfyrirtækinu eftir þetta. Þetta
kemur fram í ársreikningi FISK Sea-
food árið 2006. Hluthafi FISK Seafood
og Fiskiðju Sauðárkróks, Kaupfélag
Skagfirðinga, eignaðist 92 prósent
hlutafjár í FISK Seafood með samrun-
anum. Eftir stóðu 8 prósent sem voru
í eigu annarra aðila. Þessi 8 prósent
voru svo seld til Kaupfélags Skagfirð-
inga að mestu. 400 milljóna króna
hagnaður varð af rekstri FISK Seafood
árið 2006 og voru tíu prósent af honum
greidd út til hluthafa, aðallega Kaup-
félags Skagfirðinga.
Kaupfélagið keypti af stjórnend-
um kaupfélagsins
Í ársreikningi Fiskileiða fyrir árið 2006
kemur fram að á því ári hafi Fiskileið-
ir selt rúmlega 3 prósenta eignarhlut
sinn í FISK Seafood fyrir rúmlega 252
milljónir króna. Ekki er tekið fram í
ársreikningnum hver það var sem
keypti bréfin. Bréfin hækkuðu því um
70 prósent frá því Fiskileiðir keyptu
bréfin í FISK Seafood og þar til bréfin
voru seld en í millitíðinni átti áður-
nefndur samruni sér stað. Langtíma-
lán félagsins voru greidd upp með
söluverði hlutabréfanna, lánið sem
tekið hafði verið til að kaupa þau árið
áður, og hluthafar félagsins greiddu 75
milljónir króna í arð niður til móður-
félaganna þriggja.
Miðað við ársreikninga þessara fé-
laga er ekki að sjá annað en að hlut-
hafar Fiskileiða, sparisjóðsstjórinn
Þórólfur, aðstoðarsparisjóðsstjór-
inn Sigurjón Rúnar og framkvæmda-
stjóri hins sameinaða félags, Jón Eð-
vald, hafi hagnast um að minnsta kosti
tugi milljóna króna með viðskipti sín
Kaupfélagsstjórinn
græðir að tjaldabaki
n Þórólfur Gíslason var stórtækur í hlutabréfaviðskiptum n Seldi hlutabréf í
FISK Seafood með hagnaði n Tók meira en 150 milljónir í arð árin 2007 og 2008
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Eigendur Kaup-
félags Skagfirð-
inga eru um 1.500 félags-
menn sem allir hafa jafnt
atkvæðavægi á fundum
félagsins og félagið því í
raun í eigu íbúa héraðsins.
Hrottalegt
hundsdráp
Hundshræ fannst á floti í Þingeyr-
arhöfn á fimmtudag. Hundurinn
var bundinn við tvö bílhjól sem fest
höfðu verið með reipi í hálsól hans.
Fætur hundsins voru bundnar sam-
an og virðist einhver hafa drekkt
dýrinu að yfirlögðu ráði. Sá sem
fann hundinn í höfninni hafði sam-
band við lögregluna á Vestfjörðum
og tilkynnti málið. Í samtali við DV
staðfesti lögreglumaður að sú til-
kynning hefði borist en upplýsti
einnig að sökum færðar komist lög-
reglumenn ekki frá Ísafirði til Þing-
eyrar til að athuga málið nánar.