Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Side 23
Fréttir 23Helgarblað 9.–11. desember 2011
É
g hlakka alltaf til jólanna. Jól-
in eru yndislegur tími en mað-
ur er ekkert að fara að gefa
margar jólagjafir,“ segir Ragna
Ingólfsdóttir, besta badmin-
tonkona landsins. Ragna er atvinnu-
manneskja í íþróttinni og situr í 66.
sæti heimslista Alþjóða badmin-
tonsambandsins. Ragna stefnir á að
taka þátt í Ólympíuleikunum sem
fram fara í London á næsta ári en ef
af verður er það í annað skiptið sem
Ragna tekur þátt í þessari stærstu
íþróttakeppni heims.
Miklir fjárhagserfiðleikar
Ragna æfir og keppir það mikið
að hún getur ekki unnið venjulega
vinnu en á í basli með að safna pen-
ingum til að komast á Ólympíuleik-
ana því þótt hún fái borgað fyrir flug
og gistingu þar hún að borga af íbúð
og námslánum. „Ég þarf að sjá um að
panta allt og í það fer mikill tími. Ég
er á nokkrum styrkjum – er til dæmis
með kort í World Class, fæ einu sinni
á dag að borða hjá Lifandi markaði,
fæðubótarefni frá Now og föt og skó
hjá Asics – en ég fæ enga peninga-
styrki til að lifa á. Ég er eina atvinnu-
manneskjan í badminton á Íslandi
og get því ekki borið mig saman við
íslenska badmintonspilara en stelp-
urnar sem ég keppi við úti eru með
hóp af fólki í kringum sig, fá frítt hús-
næði og mat í Ólympíuþorpum og
eru á auglýsingastyrkjum frá fyrir-
tækjum. Þær geta því einbeitt sér að
badmintoninu án þess að þurfa að
vera að pæla í peningum. Eini pen-
ingurinn sem ég fæ til að borga af
íbúð, mat og öðru er það sem ég fæ
fyrir einkaþjálfun og forvarnarstarf
sem ég sé um innan TBR. Oft dvel ég
fimm til fimmtán daga í mánuði úti
og get þá ekki verið að vinna mér inn
laun á meðan,“ segir Ragna sem seg-
ir fjárhagserfiðleikana taka sinn toll.
„Að þurfa að hafa áhyggjur af því að
geta ekki staðið í skilum hefur pott-
þétt áhrif á árangurinn í íþróttinni.
Ég er alltaf að hugsa um þetta.“
Lætur ekkert stoppa sig
Ragna segist finna mikinn mun á
viðmóti fyrirtækja í ár en þegar hún
fór á Ólympíuleikana 2008. „Ólymp-
íuleikarnir voru í ágúst 2008, áður
en hrunið átti sér stað. Á þeim tíma
var allt miklu auðveldara enda var
ég á fínum styrkjum þá,“ segir hún
en bætir við að hún sé ekki á því að
gefast upp. „Ég fer á Ólympíuleik-
ana. Ég læt ekkert stoppa mig. Það
væri samt fínt að geta einbeitt sér
að því að verða betri í badminton án
þess að þurfa að vera með áhyggjur
af mat og bensíni. Alveg frá því að ég
var pínulítil hef ég verið ákveðin að
komast á Ólympíuleikana. Ég vissi
að ég væri góð í þessari íþrótt og að
ég ætti möguleika. Ég hef aldrei efast
um að ég væri á réttri braut en þetta
er ekki gaman að eiga varla fyrir mat
eða að standa uppi algjörlega rétt-
indalaus. Ég er 28 ára og hef engin
réttindi, þar sem ég hef ekkert unn-
ið. Ég fengi ekki einu sinni fæðingar-
orlof ef ég myndi eignast barn.“
Ragna leitar til landsmanna í
von um styrki í formi jólagjafa. „Ég
og vinkona mín sem smíðar skart-
gripi hjá Jens fórum í smá samstarf
en það hefur ekkert gengið. Það hef-
ur ekki ein einasta manneskja styrkt
mig með kaupum á þessum gripum
en ef einhver vill vera svo almenni-
legur þá er hægt að nálgast upplýs-
ingar á aðdáendasíðunni minni á
Facebook.“
Ragna safnar fyrir
Ólympíuleikunum
„Það hefur ekki
ein einasta
manneskja styrkt mig
með kaupum á þessum
gripum.
n Atvinnumanneskja á heimsmælikvarða án launa
n Peningaáhyggjur hafa áhrif á árangurinn
Indíana Ása Hreinsdóttir
blaðamaður skrifar indiana@dv.is
Vantar fé Ragna segir að það sé
ekki gaman að eiga varla fyrir mat.
Á heimsmælikvarða Ragna er í 66. sæti heimslistans í badminton en segir fjárhags-
áhyggjur hafa neikvæð áhrif á árangur sinn í íþróttinni.
Óljós mörk milli
Gillz og Egils
ur sem fyrirmynd annarra manna. Í
áðurnefndri greiningu á hugmynd-
um Egils um karlmennsku komast
þær Ásta og Kristín Anna að þeirri
niðurstöðu að líklega hafi áhrif karl-
mennskuhugmyndar Egils verið
vanmetin og hún hafi alla burði til
að hafa mótandi áhrif eða eins og
stendur orðrétt: „Eitt einkenni henn-
ar er áhersla á útlit og umhirðu lík-
amans sem hefðbundið telst kven-
leg. Til að vega á móti því kvenlega
er ofuráhersla lögð á fjölda kynferð-
islegra sigra, stjórnun líkama og til-
finninga auk undirskipunar annarra
samfélagshópa. Innan orðræðunnar
rúmast ekki virðing, ást, umhyggja
og samskipti á jafningjagrundvelli.
Karlmennskuhugmynd Egils virðist
því líkleg til að stuðla fremur að skað-
legri karlmennsku og vinna þar með
gegn þróun í jafnréttisátt.“ n
Umdeildur
Egill hefur aldrei verið
jafn umdeildur og nú.