Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Side 27
Dómstóll götunnar
Sýnir viljann
í liðinu
Ég leyfi mér allt en
ég hreyfi mig líka
Stjörnukokkurinn og sælkerinn Rikka neitar sér ekki um neitt góðgæti. – DV
„Mér finnst vanhæfni Jóns Gnarr
fyndin. Ég mun örugglega ekki
kjósa þau.“
Trausti Einarsson
20 ára nemi
„Já, hvers vegna ekki. Mér
finnst alltaf áhugavert að sjá ný
framboð koma fram. Nýir flokkar
skora þankagang gömlu flokk-
anna á hólm, sem er áhugavert.“
Alexander De Flaur
23 ára nemi við HR
„Ég hef litla skoðun á þessu
núna. Að sumu leyti er ég ánægð
með Besta flokkinn, þótt eitt-
hvað megi laga.“
Maggý Mýrdal
32 ára verslunarmaður
„Ég gæti jafnvel hugsað mér
það, vegna þess að framboðið er
eitthvað nýtt og ég er búin að fá
leið á öllum hinum.“
Álfrún Tryggvadóttir
29 ára hagfræðingur
Ætlar þú að kjósa
Besta flokks-
framboðið nýja?
Kynbundið ofbeldi og áhrif klámvæðingar?
S
nemma á árinu skrifaði ég
blaðagrein þar sem ég viðraði þá
skoðun mína að klám sé ofbeldi.
Í greininni talaði ég um tvær
hliðar klámsins, glansmyndina annars
vegar (þá sýn og skoðun að klám sé í
senn spennandi og saklaus leikur) og
blekkinguna hins vegar, þá staðreynd
að handan glansmyndarinnar sé bara
hópur af allsberu fólki sem fær borgað
fyrir að ríða hvert öðru – ef ekki hrein-
lega bara að nauðga hvert öðru, því
oftar en ekki neyðast konur út í klám,
og jafnvel karlar líka. Fyrir þá sem ekki
trúa slíkum fullyrðingum bendi á bók-
ina Ordeal sem Linda Lovelace skrifaði
um reynslu sína í heimi klámsins.
Einu sinni var klám sóðalegt tabú,
en með tímanum hefur það læðst inn
á miðjuna, í dagsbirtuna, og þykir ekki
lengur neitt tiltökumál – klámið er alls
staðar. Tískan litast af klámi og það
þykir sjálfsagt að ögra, að vera yfir-
borðskenndur og djarfur, að tengja sig
við dægurmenningu sem kennd er við
klám. Í klámi eru konur hlutir, glimm-
eruð kjötstykki sem hafa þann tilgang
einan að vera til taks fyrir þá sem vilja
ríða. Þetta er svona þykjustuleikur sem
er orðinn að fúlustu alvöru. Hugar-
far klámsins hefur smitast inn í sam-
félagið og á stuttum tíma er búið að
gjaldfella kynlíf, gera það að markaðs-
vöru og klína því út um allt.
Ástin er hallærisleg og að sofa alltaf
hjá sömu manneskjunni er ótrúlega
óspennandi og í raun bara glatað. Allt
þarf að vera spennandi, fjölbreytt og
nýtt – kynlíf er tölvuleikur, klámmynd,
Disneyland holdsins, og skal stundast
með alls konar gúmmídóti, leðurdrasli,
dópi og sleipiefnum – og helst með
konum sem eru hálffylltar silíkoníi og
gúmmíi og eru tilbúnar að gera allt
sem klámið krefst; nei ein kona er ekki
nóg, það er betra að þær séu tvær eða
þrjár því það þarf auðvitað að prófa
alls konar sem er búið að sýna, sjá og
heyra. Að tala um konur sem leikföng
og hluti og beygja þær undir reglur,
vilja og þarfir klámsins, hins mikla og
sísvanga ofurtittlings sem fær aldrei
nóg, er valdbeiting, lesist ofbeldi.
Eins og ég hef bent á áður er of-
beldi ekki bara blóð og brotin bein.
Kúgun er ofbeldi. Fyrir 50 árum var
konan kúguð til að vera heima, ala
upp börn og elda, hvort sem henni
líkaði það betur eða verr. Nú á dög-
um eru margar ungar konur kúgaðar,
meðvitað og ómeðvitað, til að klæða
sig svona en ekki hinsegin, til að sýna
sig svona en ekki hins veginn, til að
taka þátt í markaðssetningu holdsins
án þess að fá tíma eða tækifæri til að
íhuga hvar sú kúgunarpressa endar
eða hvaða afleiðingar hún getur
haft. Ég er að bregða upp svarthvítri
mynd, en öðruvísi komast skilaboðin
ekki alla leið. Kallið mig risaeðlu og
afturhaldsegg, en ég held því blákalt
fram að kynlíf án ástar sé klám og að
klám sé ofbeldi og að afleiðingar slíks
ofbeldi séu skelfilegar (þunglyndi,
átröskun, drykkja/dópneysla, sjálfs-
víg), þó þær komi ekki alltaf strax
fram eða séu öllum augljósar, eins
og marblettir og beinbrot. Andinn
og innihaldið er úti, holdið og yfir-
borðið er inni – allt er til sölu, heimur
versnandi fer. Klám er ekki bara of-
beldi, það er líka efnishyggja. Er ekki
tími til kominn að Gullkálfinum sé
velt um koll í eitt skipti fyrir öll? Ást
og friður.
Mest lesið á DV.is
1 Stúlkan sem kærði Gillz og kærustu fyrir nauðgun þurfti að
fara í aðgerð
„Við grétum með henni,“ segja vinkonur
sem fylgdu henni á Neyðarmóttöku.
2 „Sé eftir því að hafa ekki kært hann strax“
Móðir um að Gillz hafi hringt í unglings-
stúlkur og þær spurðar út í kynlífsathafnir.
3 Margir skaðast af nauðgunar-máli Gillz
Markaðsvirði Gillz hleypur á mörg hundruð
milljónum
4 „Ég er brjáluð út í Pressuna“Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og
stjórnlagaráðsfulltrúi, kærir myndbirtingu
til Blaðamannafélagsins.
5 „Nú fylkja liði fylgdarmenn Gillz nauðgunar-brandara-
karls“
María Lilja Þrastardóttir skrifar um kæru á
hendur Gillz í pistli á Smugunni.
6 Móðir Ellu Dísar borin útFékk útburðartilkynningu en hún hefur átt
við fjárhagslega erfiðleika að stríða vegna
veikinda dóttur sinnar.
7 Nauðgunarkæra: Gillz segir stúlkuna nota handrukkara.
Egill Einarsson sendi frá sér tilkynningu
í kjölfar kæru um nauðgun þar sem hann
gefur í skyn að stúlkan hafi sent á hann
handrukkara.
Umræða 27Helgarblað 9.–11. desember 2011
Aðsent
Stefán Máni
Sigþórsson
Loksins! Þessir ungu krakkar skemmtu sér konunglega á snjóbretti í skíðabrekkunum í Árbæ fyrr í vikunni. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Vatíkan í Papey
Í
eina tíð átti ég nágranna sem sagði,
að auðvitað ætti að sparka í liggj-
andi fólk, vegna þess að það væri
svo mörgum sinnum auðveldara. Og
ég man að ég spurði mig að því hvort
þetta væri ekki akkúrat raunin; keppist
fólk ekki við að spakra í þann liggjandi,
vegna þess að lydduhátturinn er fólki
svo skelfilega eðlislægur? En þegar ég
skoðaði þetta nánar, komst ég að því
að það er hinn áberandi minnihluti
sem markar förin; skrifar nafn sitt í
gangstéttina á meðan við hin erum að
bíða eftir því að steypan harðni.
Bolurinn mun ekkert bregðast okkur.
Þjóðfélagið mun áfram ala upp stjórn-
málamenn sem níðast á samfélaginu;
menn sem maka krókinn og flýja svo í
hópreið með himpigimpahjörð sjálfsve-
sældarinnar á vit einsemdar. Sumir
sjæna sín gullklósett um leið og lagst er
á bæn við jarm sauðheimskra preláta.
Áfram mun þjóðin reka fatlað fólk og
fátæklinga út á guð og gaddinn og áfram
mun fíflahjörðin fá að falsa söguna svo
unnt verði að breyta skúrgarmi í must-
eri.
Dæmin eru of mörg og bjánarnir eru
svo margir.
Þeir sem tæmdu sparibaukana okkar
og skildu þjóðina eftir í sárum koma
nú með kranavatn og plástur og segjast
jafnvel vilja kyssa á báttið á meðan þjóð-
inni er að blæða út. Núna lofa sjálftöku-
menn lyklalausn og þjófafélag frama-
gosa lofar að fella niður helling af öllum
skuldum Íslendinga. Og svo eru boð-
berar íslenskra vettlingataka svo skyni
skroppnir að þeir opinbera ósjálfrátt þá
fávisku sem helst þeir vilja leyna. Auð-
vitað vilja framsóknarmenn ekki leyfa
aukið fjárstreymi til stofnunar sem hefur
eftirlit með bönkum.
Ég spái því að auðvitað sé það ekk-
ert annað en tímabundin aðgerð, hjá
ríkisvaldinu, að sýna þá öfgafullu ráð-
deild og þann aðgangsharða sparnað
sem neyðin hefur rekið þjóðina í. En
ég hafna því að ríkisstjórn Jóhönnu sé
að vinna þau verk af illkvittni. Að vísu
er erfitt að sætta sig við það að alltaf ná
fíflin að lita hin fögru verk sterkum lit-
um. Á meðan glæpahyskið hugsar um
það eitt að breyta sögu skúrræfils í sögu
miðaldakirkju með tilheyrandi sögu-
fölsun. Og á meðan þetta sama fólk læt-
ur sig eflaust dreyma um það að endur-
reisa það mikla vatíkan sem eitt sinn
var í Papey og á meðan báknið býður
gullklósettaelítunni að gera sér vonir
um að keisarinn í Kína fái að kaupa
landið – djöst læk ðett – þá er til fólk
sem er svo fátækt að það getur þakkað
fyrir ef það á veika von.
Þessi nágranni minn – sá sem sagði
að vissulega ætti ávallt að sparka í
liggjandi, þar eð það væri auðveldara –
hann varð sjálfur fyrir því óláni að setja
sig á háan hest og með rassgatið fullt af
seðlum féll hann úr háum söðli og reis
ekki aftur upp.
Fagna skal með hýrri há
og hjartagæsku fjöldinn
ef aldrei munu fíflin fá
að fara hér með völdin.
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Ágúst Jóhannsson eftir sigur á Þýskalandi á HM. – mbl.is
Þetta er alls ekki
líkt okkur
Ritstjóri Pressunnar, sem baðst afsökunar á umdeildri myndbirtingu.- DV.is