Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2011, Qupperneq 30
A
lda fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Kópavogi til níu
ára aldurs en hefur búið á
Álftanesi nánast allar götur
síðan. Hún var í Langholts-
skóla og Álftanesskóla, í Garðaskóla í
Garðabæ, og stundaði nám við Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ.
Alda vann hjá Hagkaupi á fram-
haldsskólaárunum og var þjónn
við veitingastaðinn Við Tjörnina í
fimm ár. Hún hóf að hanna föt um
upp úr 1990, stundaði fatahönn-
un á eigin vegum og á tímabili með
tveimur vinkonum sínum en með
þeim stofnaði hún fyrirtækið Snyrti-
legur klæðnaður árið 1999 og hefur
Alda starfrækt það síðan. Frá árinu
2001 hefur Alda unnið sem stílisti við
auglýsingar fyrir sjónvarp, tímarit og
dagblöð og verið umboðsmaður fyrir
leikara og aðra þá sem leika í auglýs-
ingum.
Alda setti upp sýningar fyrir
Ford-keppnina í samstarfi við Eski-
mo Models á síðasta ári og hefur
séð um tískusýningar fyrir Kringl-
una og Smáralind. Þá hefur hún séð
um tískuþætti fyrir Nýtt Líf og Nude
Magazine.
Fjölskylda
Börn Öldu eru Ágúst Ari Þórisson, f.
10.11. 1989, nemi við Margmiðlunar-
skólann; Júlía Tómasdóttir, f. 17.5.
1997, grunnskólanemi og aðstoðar-
maður móður sinnar; Ísak Eldar Inga-
son, f. 18.11. 2002, grunnskólanemi;
Mikael Elí Ingason, f. 18.11. 2002,
grunnskólanemi.
Systkini Öldu eru Íris Dögg Guð-
jónsdóttir, f. 26.11. 1985, starfsmaður
við Landspítala Háskólasjúkrahús,
búsett á Álftanesi; Daníel Þór Guð-
jónsson, f. 2.1. 1986, bifvélavirki, bú-
settur á Álftanesi.
Foreldrar Öldu eru Hjördís Vil-
hjálmsdóttir, f. 5.11. 1953, húsmóðir,
og Guðjón Ágúst Sigurðsson, f. 15.8.
1954, bílamálari. Þau eru búsett á
Álftanesi.
S
igurfinnur fæddist í Birt-
ingaholti og ólst þar upp.
Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Laugarvatni 1949 og lauk
prófi frá Garðyrkjuskóla rík-
isins 1953.
Sigurfinnur stundaði garðyrkju-
búskap í Birtingaholti 1953–63. Þá
flutti hann á Selfoss þar sem hann
hefur búið síðan. Hann var skrif-
stofumaður hjá Kaupfélagi Árnes-
inga til 1974 og skrifstofustjóri hjá
Vegagerð ríkisins á Selfossi til 2001.
Sigurfinnur starfaði mikið inn-
an raða framsóknarmanna á Suður-
landi, var formaður FUF í Árnessýslu
og formaður kjördæmasambands
Framsóknarflokksins á Suðurlandi
1963–69, var formaður Verslunar-
mannafélags Árnessýslu um skeið,
sat í stjórn Starfsmannafélags ríkis-
stofnana og var þar varaformaður
og gjaldkeri í mörg ár. Þá sat hann
í fjölda samninganefnda, átti sæti
í Félagsdómi á vegum BSRB og var
formaður Golfklúbbs Selfoss í níu ár.
Sigurfinnur var einn af stofnend-
um og fyrsti formaður Þroskahjálpar
á Suðurlandi, átti sæti í svæðisstjórn
um málefni fatlaðra þar, að undan-
skildum fjórum árum sem hann var
skipaður formaður stjórnarnefndar í
málefnum fatlaðra.
Fjölskylda
Kona Sigurfinns er Ásta, f. 8.2. 1933,
húsmóðir. Ásta er dóttir Guðmundar
Guðmundssonar, bónda á Högna-
stöðum í Hrunamannahreppi, og
k.h., Kristbjargar Sveinbjörnsdóttur
frá Heiðarbæ í Þingvallasveit.
Börn Sigurfinns og Ástu eru Krist-
björg Sigurfinnsdóttir, f. 24.4. 1953,
deildarstjóri við Landsbankann í
Reykjavík, gift Eiríki Einarssyni, vél-
virkja og starfsmanni hjá Toyota-
umboðinu, og eiga þau tvö börn; Sig-
ríður Jónína Sigurfinnsdóttir, f. 12.8.
1958, húsfreyja að Hrosshaga í Bisk-
upstungum, gift Gunnari Sverrissyni,
bónda þar, og eiga þau tvö börn og
tvö fósturbörn; Snorri Sigurfinns-
son, f. 24.7. 1967, löggiltur fasteigna-
sali, búsettur á Selfossi, kvæntur Sig-
rúnu Ólafsdóttur póstfulltrúa og eiga
þau tvö börn, auk þess sem hún á tvö
börn frá fyrra hjónabandi; Sigurður
Már Sigurfinnsson, f. 6.1. 1969, bú-
settur á Selfossi.
Hálfbróðir Sigurfinns, samfeðra,
var Ásgeir Sigurðsson, f. 19.11. 1927,
d. 4.3. 2009, var rafvirki, lengi búsett-
ur í Bandaríkjunum.
Alsystkini Sigurfinns eru Ásthild-
ur, f. 10.6. 1928, húsfreyja í Birtinga-
holti; Arndís Sigurðardóttir, f. 21.7.
1930, húsfreyja að Miðfelli; Ágúst
Sigurðsson, f. 22.8. 1936, bóndi í Birt-
ingaholti; Magnús Sigurðsson, f. 21.7.
1942, bóndi í Birtingaholti; Móeiður
Áslaug Sigurðardóttir, f. 27.11. 1943,
d. 18.1. 2002, ljósmóðir í Reykjavík.
Foreldrar Sigurfinns: Sigurður
Ágústsson, f. 13.3. 1907, d. 12.5. 1991,
bóndi, skólastjóri, tónskáld og org-
anisti í Birtingaholti, og k.h., Sigríður
Sigurfinnsdóttir, f. 11.7. 1906, d. 16.5.
1983, húsfreyja.
Ætt
Ágúst var sonur Helga, b. í Birtinga-
holti, Magnússonar, alþingismanns í
Syðra-Langholti, Andréssonar. Móð-
ir Magnúsar var Margrét Ólafsdóttir,
b. í Efri-Seli, Magnússonar, og konu
hans, Malínar Guðmundsdóttur, b. á
Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættföður
Kópsvatnsættarinnar. Móðir Helga
var Katrín Eiríksdóttir, b. og dbrm.
á Reykjum, Vigfússonar, ættföður
Reykjaættarinnar, langafa Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups, föður Péturs
biskups.
Móðir Sigurðar var Móeiður
Skúladóttir Thorarensen, læknis og
alþm. á Móeiðarhvoli, bróður Bjarna
amtmanns og skálds. Skúli var sonur
Vigfúsar, sýslumanns á Hlíðarenda
í Fljótshlíð, Þórarinssonar, sýslu-
manns á Grund í Eyjafirði og ætt-
föður Thorarensenættar Jónssonar.
Móðir Skúla var Steinunn Bjarna-
dóttir landlæknis Pálssonar og Rann-
veigar Skúladóttur, landfógeta Magn-
ússonar. Móðir Móeiðar var Sigríður
Helgadóttir, konrektors í Skálholti,
Sigurðssonar, og Ragnheiðar Jóns-
dóttur, systur Valgerðar, konu bisk-
upanna Hannesar Finnssonar og
Steingríms Jónssonar, ömmu Stein-
gríms Thorsteinssonar skálds og
langömmu Níelsar Finsen, nóbels-
verðlaunahafa í læknisfræði.
Sigríður, móðir Sigurfinns, var
dóttir Sigurfinns Sigurðssonar, ís-
húsvarðar í Keflavík, og Jónínu Þórð-
ardóttur.
Sigurfinnur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Sigurfinnur Sigurðsson
Fyrrv. skrifstofustjóri á Selfossi
Alda B. Guðjónsdóttir
Stílisti á Álftanesi
40 ára á sunnudag
80 ára á sunnudag
H
ermann fæddist í Reykja-
vík en ólst upp á Seltjarnar-
nesi. Hann var Mýrarhúsa-
skóla og Valhúsaskóla,
stundaði nám við Iðnskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan sveins-
prófi í prentsmíði, stundaði síðan
ljósmyndanám við London College
of Communication og lauk þaðan
prófum í ljósmyndun.
Hermann var háseti á sumrin hjá
Landhelgisgæslunni á framhalds-
skólaárunum, var aðstoðarmaður í
ljósmyndun hjá Guðmundi Ingólfs-
syni hjá Ímynd, lærði og starfaði hjá
Prentsmiðjunni Odda, starfaði síð-
an við auglýsingastofuna Fíton á ár-
unum 2004–2006, hefur síðan verið
prentsmiður hjá Jónsson & Lemacks
frá 2008 auk þess sem hann starfar
sjálfstætt.
Hermann hefur starfað með
Björgunarsveitinni Ársæli frá 1998
og er þar undanfari.
Fjölskylda
Eiginkona Hermanns er Sigríður
Dögg Arnardóttir, f. 10.12. 1982, kyn-
fræðingur.
Dóttir Hermanns og Sigríðar
Daggar er Íris Lóa Hermannsdóttir,
f. 2.8. 2011.
Hálfbróðir Hermanns, sam-
mæðra, er Ágúst Fjeldsted, f. 24.8.
1972, flugvirki, búsettur á Seltjarnar-
nesi.
Hálfsystkini Hermanns, sam-
feðra, eru Sigurður Rúnar Sigurðs-
son, f. 3.7. 1988, húsasmiður á Akra-
nesi; Katrín Dúa Sigurðardóttir, f. 1.2.
1990, nemi í verkfræði við Háskólann
í Reykjavík.
Foreldrar Hermanns eru Edda
Haraldsdóttir, f. 25.12. 1954, verslun-
armaður, búsett á Seltjarnarnesi, og
Sigurður Hermannsson, f. 3.7. 1953,
húsasmiður á Akranesi.
Hermann Sigurðsson
Prentsmiður í Reykjavík
30 ára á föstudag
B
jarney fæddist í Vestmanna-
eyjum en ólst upp frá fjög-
urra ára aldri á Selfossi. Hún
var í Sólvallaskóla, stundaði
nám við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti og lauk þaðan stúdents-
prófum 2002 og stundar nú nám í líf-
eindafræði við Háskóla Íslands. Þá
lærði hún snyrtifræði við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti og lauk prófum í
þeirri grein.
Bjarney starfaði á Snyrtistofu
Ólafar á Selfossi og var búsett í Kaup-
mannahöfn um skeið þar sem hún
starfaði fyrir Mörtu Rúnarsdóttur,
hönnuð í versluninni Schou Queen.
Þá hefur hún starfaði við verslun
móður sinnar, Motivo á Selfossi, sl.
þrjú sumur með námi.
Fjölskylda
Unnusti Bjarneyjar er Ævar Þór
Ólafsson, f. 27.5. 1977, bifvélavirki.
Dóttir Bjarneyjar og Ævars Þórs
er Birta Dís Ævarsdóttir, f. 11.7. 2008.
Systir Bjarneyjar er Ásta Björg
Kristinsdóttir, f. 22.6. 1978, hönnuð-
ur og flugfreyja, búsett á Selfossi.
Foreldrar Bjarneyjar eru Erla
Gísladóttir, f. 21.5. 1955, kaupmaður í
Motivo á Selfossi, og Kristinn Gríms-
son, f. 17.3. 1953, rafvirki á Selfossi.
Bjarney Sif Kristinsdóttir
Nemi í lífeindafræði við Háskóla Íslands
30 ára á föstudag
Vigdís Björnsdóttir
Hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Blönduósi
60 ára á föstudag
V
igdís fæddist á Blöndu-
ósi og ólst þar upp. Hún
lauk grunnskólanámi
frá Grunnskólanum á
Blönduósi 1967, lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ak-
ureyrar 1968, stundaði nám við
Húsmæðraskólann á Laugum í Þing-
eyjarsýslu 1969–70, stundaði nám
við Hjúkrunar skóla Íslands og lauk
þaðan prófum 1973.
Vigdís vann eitt ár á Héraðs-
hælinu á Blönduósi, starfaði á
Borgar spítalanum í sex ár og hefur
starfað við Heilbrigðisstofnunina á
Blönduósi frá 1980 þar sem hún er
nú deildarstjóri.
Vigdís hefur starfaði í Oddfellow-
stúku frá 2003.
Fjölskylda
Vigdís giftist 17.7. 1976 Albert Stef-
ánssyni, f. 9.4. 1949, sjúkraliða við
Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi.
Hann er sonur Stefáns Guðmunds-
sonar sjómanns og Jónu Erlingsdótt-
ur húsmóður sem bæði eru látin.
Börn Vigdísar og Alberts eru
Björn Albertsson, f. 9.12. 1978, bak-
ari og matreiðslumaður við Hörpu-
disk, veislueldhúsið í Hörpu, bú-
settur í Mosfellsbæ en sambýliskona
hans er Hafrún Ósk Sigurhansdóttir
og eiga þau saman einn son, Snæ-
björn Húna, en dætur Björns frá
því áður eru Helga Rakel og Vigdís
auk þess sem synir Hafrúnar frá því
áður eru Emil Agnar og Almar Freyr;
Ragnar Albertsson, f. 5.1. 1982, bú-
settur í New York en eiginkona hans
er Helene Belding; Alda Albertsdótt-
ir, f. 5.4. 1983, starfsmaður við leik-
skóla á Suðureyri við Súgandafjörð
en eiginmaður hennar er Hafliði Þór
Kristjánsson og eru börn þeirra Sig-
ríður Svala, Ólafur Benóný og Stef-
anía Jóna auk þess sem Hafliði á tvö
börn frá því áður, Halldóru Rán og
Þórarinn Vigni.
Stjúpdætur Vigdísar voru Svala
Albertsdóttir, f. 23.12. 1967, d. 30.5.
2002, var húsmóðir og sérhæfður
starfsmaður í rækjuvinnslu, búsett á
Blönduósi en börn hennar eru Guð-
björg og Albert Óli; Sigríður Jóna Al-
bertsdóttir, f. 25.1. 1973, d. 9.6. 1998,
var húsmóðir í Reykjavík en börn
hennar eru Daníel Freyr og Nína
Dögg.
Bróðir Vigdísar er Eiríkur Ingi
Björnsson, f. 30.6. 1956, húsasmið-
ur, nú starfsmaður Blönduvirkjunar,
en kona hans er Kristín Guðmanns-
dóttir og eiga þau þrjú börn og tvö
barnabörn.
Foreldrar Vigdísar: Björn Ei-
ríksson, f. 24.5. 1927, d. 4.1. 2008,
var bifvélavirki á Blönduósi, og
Alda Theódórsdóttir, f. 17.7. 1932,
fyrrv. starfsstúlka við Kaupfélagið á
Blönduósi.
30 Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 9.–11. desember 2011 Helgarblað