Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Síða 6
Helgarblað 1.–5. ágúst 20146 Fréttir
H
úsnæði Efnalaugarinnar
Fannar í Skeifunni brann í
byrjun júlí og hefur Fönn
nú gert ótímabundinn
samning við Þvottahús ríkisspít
alanna í kjölfars brunans. Þetta
staðfestir Karolína Guðmunds
dóttir, forsvarsmaður Þvottahúss
ríkis spítalanna. Eldurinn í Skeif
unni kviknaði í stafla af bómull
arefni í þvottahúsinu. „Það var
gerður ótímabundinn samningur
við Fönn á meðan þeir koma sér
upp nýrri aðstöðu. Þeir greiða fullt
markaðsverð fyrir þá þjónustu.“
Karólína segir að Þvottahús
ríkis spítalanna og Fönn sé stærstu
þvottahús landsins og hvort
tveggja þvoi þvott fyrir heilbrigðis
stofnanir. Hún segir að ekkert
annað þvottahús geti þvegið fyrir
Fönn en Þvottahús ríkisspítal
anna. „Þetta er neyðarástand. Það
eru tvö stór þvottahús á Íslandi,
Fönn og Landspítalaþvottahús
ið. Þau myndu styðja hvort ann
að eftir því sem hægt væri þegar
svona kæmi upp. Það eru spítal
ar líka sem Fönn þvær fyrir og við
bjóðum þeim að ganga inn í okk
ar rými á meðan svona stendur á,“
segir Karólína en hún segir að um
60 prósent af þvottinum sem þveg
inn er fyrir Fönn sé frá heilbrigðis
stofnunum.
Karolína segir að Þvottahús
Landspítalans geti hæglega bætt
við sig fleiri verkefnum yfir sumar
tímann þar sem færri verkefni séu
þá á þvottahúsinu. n
ingi@dv.is
Fönn gerði samning við Landspítalann
Ótímabundinn samningur eftir brunann í Skeifunni
Riftir sölu á
154 íbúðum
n Hætt við stærstu sölu Íbúðalánasjóðs n Fjármögnun gekk ekki eftir
Í
búðalánasjóður hefur rift sölu á
154 íbúðum til tveggja fjárfesta.
Gengið var frá viljayfirlýsingu
um söluna í apríl síðastliðnum
en var fyrirvari um fjármögnun
kaupanna. Síðan þá hafa tilboðsgjaf
arnir tveir, byggingarverkfræðingur
og maður sem áður starfaði sem
ráðgjafi fyrir Íbúðalánasjóð, reynt
að ganga frá fjármögnun á kaupun
um – DV hefur því miður ekki náð
að verða sér úti um nöfn mannanna
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Nú ligg
ur fyrir að þessi fjármögnun gekk
ekki eftir og mun Íbúðalánasjóður
því halda íbúðunum áfram. Tilboðið
hljóðaði upp á 1.800 milljónir króna.
Íbúðirnar voru aðallega á Austfjörð
um og Suðurnesjum.
Svarið frá Íbúðalánasjóði er
svohljóðandi: „Í lok maí 2014 var
skrifað undir samkomulag um sölu
á 107 eignum Íbúðalánasjóðs, sem
staðsettar eru á nokkrum stöðum á
landinu. Samkomulagið var undir
ritað með fyrirvara um fjármögnun
kaupanna. Nú liggur fyrir að kaup
endum hefur ekki tekist að fjármagna
kaupin og hefur því samkomulaginu
verið rift.“
Stærsta sala sjóðsins
Viðskiptin með íbúðirnar vöktu tölu
verða athygli fyrr á árinu en greint
var frá þeim í mánaðarlegri skýrslu
Íbúðalánasjóðs í apríl. Íbúðalána
sjóður er ríkisrekinn og heyrir und
ir velferðarráðuneytið sem fer með
húsnæðismál hins opinbera. Sala
Íbúðalánasjóðs á íbúðum er því sala
á ríkiseignum og var umrædd sala
ansi stór. Í byrjun árs átti Íbúða
lánasjóður meira en 2.100 íbúðir
og stendur til að selja hluta þessara
eigna. Salan á íbúðunum 154 hefðu
orðið stærstu einstöku viðskipti
Íbúðalánasjóðs með íbúðir frá efna
hagshruninu árið 2008.
Gerðu tilboð tvisvar
Þegar DV fjallaði um söluna á
íbúðunum í júní vildi Íbúðalána
sjóður ekki gefa upp nöfn fjárfest
anna sem gerðu tilboðið í þær. Orð
rétt sagði í svari frá sjóðnum: „Þegar
kaupsamningum er þinglýst verða
nöfn kaupenda og söluverð opin
berar upplýsingar, ekki fyrr. Kauptil
boð var gert í 107 íbúðir í apríl með
fyrir vara um fjármögnun og var því
tilboði tekið. Þar sem ekki hefur
verið skrifað undir kaupsamning, né
kaupsamningi þinglýst er ekki tíma
bært að gefa nánari upplýsingar um
söluferlið og söluna.“
Áður en fjárfestarnir og Íbúða
lánasjóður skrifuðu undir viljayfir
lýsinguna hafði sjóðurinn hafnað
einu tilboði frá fjárfestunum.
Skömmu eftir að fyrra tilboði þeirra
var hafnað ákvað sjóðurinn svo að
ganga að tilboði fjárfestanna. Ekki
liggur fyrir hvað átti sér stað á milli
þess sem fyrra tilboði fjárfestanna
var hafnað og þar til seinna tilboðinu
var tekið.
Sérstakar aðstæður
Eitt af því sem vakti athygli við ætl
aða sölu íbúðanna 154 var að sjóð
urinn seldi þær sjálfur, eða ætlaði
að gera það áður en viðskiptunum
var rift. Íbúðalánasjóður og félag
fasteignasala gerðu með sér samn
ing um að þær eignir sem sjóð
urinn seldi ættu að öllu jöfnu að
vera seldar í gegnum fasteignasöl
ur. Þó var fyrirvari í þeim samn
ingi sem fól í sér að Íbúðalánasjóð
ur gæti selt eignirnar sjálfur. Með
samningnum átti meðal annars að
tryggja að íbúðirnar væru boðnar
upp á markaði.
Með því að ætla að selja íbúð
irnar sjálfur þá hefði Íbúðalána
sjóður meðal annars sloppið við að
greiða söluþóknun til fasteignasala
upp á 1,5 til 2,5 prósent af heildar
kaupverði íbúðanna. Hins vegar
hefði slík sala líka getað leitt til
þess að viðskiptin hefðu ekki getað
talist vera gagnsæ þar sem enginn
utanaðkomandi aðili hefði komið
að viðskiptunum. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
„Nú liggur fyrir
að kaupendum
hefur ekki tekist að
fjármagna kaupin.
Fjármögnunin tókst ekki
Fjármögnun tveggja fjárfesta á 154
íbúðum sem þeir ætluðu að kaupa af
Íbúðalánasjóði gekk ekki eftir.
Heyrir undir Eygló Íbúðalánasjóður heyrir
undir velferðarráðuneyti Eyglóar Harðardóttur.
Gerðu samning við þvottahús
Landspítalans Efnalaugin Fönn gerði
samning við Þvottahús Landspítalans eftir
brunann hjá fyrirtækinu í byrjun júlí.
MYND SIGTRYGGUR ARI
Tortryggir
áhuga Kínverja
á Íslandsbanka
Einar Benediktsson, fyrrverandi
sendiherra og starfsmaður efna
hagssamvinnustofnunar Evrópu,
tortryggir áhuga kínverska ríkis
bankans ICBC á Íslandsbanka í
álitsgrein í Fréttablaðinu á fimmtu
dag. ViðskiptaMogginn greindi frá
því í síðustu viku að þessi stærsti
banki heims hefði, ásamt öðrum
kínverskum fjárfestum, áhuga á að
kaupa ráðandi hlut slitastjórnar
Glitnis í Íslandsbanka. Einar veltir
fyrir sér hvaðan áhugi ICBC spretti,
þar sem vestrænir bankar sem
byggja fjárfestingar sínar einvörð
ungu á sjónarmiðum hagkvæmni
hafi ekki sýnt kaupum í íslensku
bönkunum áhuga. Segir hann
nauðsynlegt að skoða fjárfestingu
ríkisbankans í ljósi langtímastefnu
kínverskra stjórnvalda á norður
slóðum: nýting auðæfa með víð
tækum námarekstri á Grænlandi
og nýtingu olíu á hafsbotni. „Þar
gegnir Ísland sýnilega lykilhlut
verki með risahöfn í Finnafirði
vegna siglinga um norðausturleið
heimskautsins, til að þjóna at
vinnurekstri á Grænlandi og í olíu
vinnslu við AusturGrænland og
á íslenska hluta Drekasvæðisins,“
skrifar Einar meðal annars.
Útskrifaður af
gjörgæsludeild
Maðurinn sem varð fyrir alvar
legri líkamsárás í Grundarfirði
17. júlí síðastliðinn hefur verið
útskrifaður af gjörgæsludeild
Landspítala Íslands. Í kjölfarið
hefur hann verið lagður inn á
heila og taugadeild spítalans.
Á mánudag staðfesti Hæsti
réttur Íslands úrskurð Héraðs
dóms Vesturlands um fjögurra
vikna gæsluvarðhald yfir Reyni
Þór Jónassyni og þýskum skips
félaga hans úr áhöfn af Baldvini
NC 100. Eru þeir meðal annars
grunaðir um að hafa ráðist á
manninn, slegið hann niður og
traðkað á höfði hans. Skilorð
Reynis vegna dóms sem hann
hlaut fyrir árás á barnsmóður
sína rann út í lok mars.