Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Qupperneq 10
Helgarblað 1.–5. ágúst 201410 Fréttir
RÍKUSTU ÍSLENDINGARNIR
n Kristján áfram efstur n Skattakóngurinn kemur nýr inn n Kári Stefánsson í góðum málum eftir söluna til Amgen n Sex þúsund greiða auðlegðarskatt
E
ndalok auðlegðarskattsins
nálgast en Frosti Sigurjóns-
son, formaður efnahags-
og viðskiptanefndar, sagði
í samtali við DV á mánu-
dag að þörfin fyrir hann væri lítil.
Skatturinn og viðbótarauðlegðar-
skattur sem lagður er á hlutabréfa-
eign skilar 11 milljörðum króna
inn í fjárlög þessa árs. Upphaflega
var skatturinn settur á sem
tímabundinn skattur og því stefn-
ir í að árið 2014 verði síðasta árið
sem hann er innheimtur.
Munur á hægri og vinstri stjórn
„Ég hef ekki heyrt neinn tala fyrir
því að það eigi að framlengja hann
og ég á ekki von á því að það verði
gert,“ sagði Frosti í samtali við DV.
Steingrímur J. Sigfússon var fjár-
málaráðherra þegar skatturinn var
settur á og hann vill að hann verði
framlengdur. „Ef ekki ríkasta fólk á
Íslandi á að leggja þetta af mörk-
um áfram í einhver ár, á meðan
við erum að ná okkur betur upp
úr þessu, hverjir þá?“ spurði Stein-
grímur þegar blaðamaður DV
ræddi við hann á mánudag.
Kærði vegna skattsins
Guðrún Lárusdóttir, fyrrverandi
eigandi Stálskipa, komst ekki á list-
ann yfir þá 25 efstu en hún er í 26.
sæti. Guðrún, sem stundum hefur
verið kölluð Stálfrúin sökum þess
hve ákveðin hún er í viðskiptum,
höfðaði mál gegn íslenska ríkinu
þar sem hún taldi að innheimta
auðlegðarskatts bryti í bága við
eignarréttarákvæði stjórnarskrár-
innar. Málið fór fyrir Hæstarétt
sem kvað upp úrskurð í apríl, þess
efnis að álagning skattsins væri
lögleg. Áður hafði héraðsdóm-
ur komist að sömu niðurstöðu en
Guðrún áfrýjaði þeim dómi.
Samtals greiddi hún 36 milljón-
ir króna í auðlegðarskatt frá árinu
2010, þar af tæpar tíu milljónir á
síðasta ári. Í ár greiðir hún rúmar
fimm milljónir, en hún var með 2,6
milljónir á mánuði í fyrra. Fyrir-
tækið Stálskip var selt í lok janúar,
kvóti til Síldarvinnslunnar og
togarinn Þór til Rússlands. Guð-
rún og eiginmaður hennar, Ágúst,
gætu aftur verið flækt í dómsmál
og nú vegna sölunnar á fyrirtæk-
inu. Hafnarfjarðarbær telur sig
hafa átt forkaupsrétt að kvótanum
og hyggst stefna fyrirtækinu.
Ríflega 6 þúsund
greiða auðlegðarskatt
Alls greiða 8.123 einstaklingar
annaðhvort auðlegðarskatt eða
viðbótarauðlegðarskatt fyrir síð-
asta skattár en af þeim eru 2.477
einungis með auðlegðarskatt og
4.057 greiða hvort tveggja. Við-
bótarauðlegðarskattur er reikn-
aður þannig að einstaklingur má
eiga allt að 75 milljónum króna
og samskattaðir einstaklingar
mega eiga allt að 100 milljónum
án þess að greiða af því skatt. Þeir
sem eiga meira en sem því nem-
ur greiða 1,5% í fyrra þrepi, þ.e.a.s
þeir einstaklingar sem eiga undir
150 milljónum í heild og samskatt-
aðir sem eiga undir 200 milljón-
um. Þeir sem eiga yfir 150 milljónir
borga síðan 2% af því sem þeir eiga
umfram þá upphæð og samskatt-
aðir greiða sömu prósentu af því
sem þeir eiga umfram 200 millj-
ónir. Þeir einstaklingar sem greiða
1.125.000 krónur eða meira í auð-
legðarskatt eiga því yfir 150 millj-
ónir og þeir sem eru samskattað-
ir og greiða 1.500.000 krónur eða
meira eiga yfir 200 milljónir.
Skattakóngur kemur
inn á listann
Út frá þessu er auður 25 ríkustu
einstaklinga eða hjóna reiknaður
en þar eru margir þjóðþekktir
einstaklingar. Kári Stefánsson tek-
ur stórt stökk upp listann í kjöl-
far sölu Íslenskar erfðagreiningar
til Amgen, Kristján Vilhelmsson
er áfram efstur eins og í fyrra en
nafn fyrrverandi skattakóngs Þor-
steins Hjaltested er hvergi að finna
á listanum. Þá kemur Jón Árni
Ágústsson inn á listann en hann
varð skattakóngur, öllum að óvör-
um. „Það er bara þessi sala á In-
vent Farma sem er ástæðan fyr-
ir þessu,“ segir Jón Árni í samtali
við DV. Aðspurður segist hann
ekki vera með mörg járn í eldin-
um. „Það er nú ekki mikið. Ég er
örlítið í fasteignaviðskiptum en að
öðru leyti er ég sallarólegur. Mark-
miðið með Invent Farma var alltaf
að selja fyrir tækið, við ætluðum að
eiga það í fimm ár en sá tími varð
að vísu aðeins lengri. Þetta gekk
bara ágætlega,“ segir Jón Árni.
Nánar má lesa um Jón í þessari
samantekt.
Sem fyrr segir eru þessar töl-
ur áætlaðar út frá greiddum auð-
legðarskatti en viðbótarauð-
legðarskattur er ekki tekinn inn í
myndina. Því er aðeins um áætl-
aða hreina eign að ræða. List-
inn er birtur með fyrirvara um
innsláttarvillur og að upplýsingar í
álagningarskrám séu réttar. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Markmiðið með
Invent Farma var
alltaf það að selja fyrirtæk-
ið, við ætluðum að eiga
það í fimm ár en sá tími
varð að vísu aðeins lengri.
Ríkastur á Íslandi Kristján
Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfs-
dóttir eiga saman ríflega sex
milljarða króna. Kristján er einn
eigenda Samherja og var einn
sá allra tekjuhæsti á listanum í
tekjublaði DV. MYND BJARNI EIRÍKSSON