Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Síða 22
Helgarblað 1.–5. ágúst 201422 Fréttir
A
ð sögn íbúa Ólafsfjarð-
ar halda fáeinir glæpa-
menn samfélaginu í helj-
argreipum. Svo slæmt er
málið að íbúar íhuga að
taka lögin í eigin hendur. Einn íbúi
sagði að í því samhengi væri jafnvel
rætt um barsmíðar. Fram til þessa
hafa íbúar þó nýtt sér samfélags-
miðla til að halda uppi virku eft-
irliti. Fyrst og fremst er um að ræða
eina unga konu sem sögð er hafa
brotist inn hjá fjölmörgum íbúum.
Í samtölum við DV var augljóslega
mikill hiti í Ólafsfirðingum og töl-
uðu sumir um að aðgerðarleysi lög-
reglunnar væri algjört. DV veit um
mörg mál tengd fólkinu og er hér
rætt við fáein fórnarlömb innbrota-
hrinunnar sem og íbúa sem segjast
hafa fengið nóg. Enginn þeirra var
tilbúinn að ræða málið undir nafni
af ótta við mögulegar afleiðingar
þess. „ Maður sér bara á Facebook
að það eru allir orðnir mjög þreyttir
á þessu aðgerðarleysi hjá löggunni.
Fólk ætlar bara að taka þetta í sín-
ar hendur. Það eru myndir af henni
sem er deilt á Facebook og fólk ætl-
ar að buffa hana þegar það sér hana
næst,“ segir einn Ólafsfirðingur E í
samtali við DV.
„Maður hefur varann á sér“
DV ræddi við tvær konur sem stunda
atvinnurekstur á Ólafsfirði. Önnur
þeirra segist ekki hafa orðið sjálf fyr-
ir barðinu á innbrotsþjófum en hún
vissi þó vel af innbrotahrinunni.
„Maður hefur varann á þegar maður
sér þau á vappinu,“ segir hún. Hinn
konan segir að fé og lyklum hafi ver-
ið rænt úr bíl sínum síðastliðinn
sunnudag. „Það var bara farið inn
um gluggann á bílnum hjá okkur
sem stóð fyrir utan eldhúsgluggann
í kringum hádegi á sunnudag. Það
var farið í jakkavasa hjá syni mínum
og teknir peningar og lyklar að mót-
orhjóli eða skelli nöðru. Það var svo
sem ekkert merkilegt í bílnum,“ seg-
ir konan.
Miklar líkur á að lenda í
konunni
Sama dag og stolið var úr bíl kon-
unnar var brotist inn hjá öðrum
Ólafsfirðingi. „Hún fór inn til mín
á sunnudaginn, milli tvö og þrjú.
Hún stal trúlofunarhring, hálsmeni,
áfengi og maskara. Hún skildi nú
tölvur og annað eftir, í þetta skiptið.
Þetta er í fyrsta skipti sem hún brýst
inn til okkar. Hún bara veður í allt,
bara algjört „case“. Hún rótaði í öllu
draslinu hjá okkur, öllum skápum
og töskum,“ segir Ólafsfirðingurinn
B. Sá segir málið orðið mjög óþægi-
legt fyrir bæjarbúa. Hann er þó ekki
eins gagnrýninn á störf lögreglu og
aðrir bæjarbúar sem DV rædd við.
„Löggan virðist bara hafa svo fá úr-
ræði gegn svona brotum. Ég fór að
kæra hana formlega í gær því ná-
granni minn sá hana koma út frá
mér. Það eru mjög margir í bænum
búnir að verða fyrir barðinu á henni
upp á síðkastið. Ef þú hefur gleymt
að læsa einhverju þá eru bara mjög
miklar líkur á að hún komi þar inn,“
segir Ólafsfirðingurinn B.
Þarf að taka þau úr umferð
Maðurinn sem brotist var inn hjá
síðastliðinn sunnudag segir líkt og
aðrir bæjarbúar að hefðin sé að hús-
um sé ekki læst. Það sé nú liðin tíð.
„Þetta er að verða þannig núna. Það
eru bara allir farnir að passa sig.
Menn geta ekkert unað við þetta. Ég
vona nú að það komi ekki til þess að
bæjarbúar taki málin í eigin hendur,
en það þarf eitthvað að bæta reglu-
gerðirnar þannig að svona síbrota-
fólk verði bara tekið úr umferð. Ég
veit að hún fór inn annars staðar á
sunnudaginn, sama dag og hjá mér.
Þar kom heimilisfólkið að henni,
gangandi út úr kjallarann hjá sér,“
segir maðurinn.
Mætir innbrotsþjófum
í Samkaupum
Ættingi mannsins sem brotist var
inn hjá á sunnudag segir í samtali
við DV að bæjarbúar séu langþreytt-
ir á ástandinu. „Þegar það fer eitt-
hvað svona í gang þá þorir enginn
að gera neitt. Fólk veit ekki hvernig
á að bregðast við. Maður hefur heyrt
að fólk sé að íhuga að taka mál-
in í eigin hendur. Fólk er náttúrlega
orðið þreytt á þessu, þetta er búið
að standa yfir stanslaust í tvær vik-
ur. Fólk skilur ekki hvers vegna það
mætir fólkinu daginn eftir innbrot
úti í Samkaupum,“ segir hann.
Hræddur við viðbrögð bæjarbúa
Einn Ólafsfirðingur sem DV ræddi
við sagði að hann hefði sloppið við
innbrot sjálfur en brotist hefði verið
inn hjá nágranna hans í næsta húsi.
„Mér finnst alveg ótrúlegt að mað-
ur þurfti að læsa aftur öllum glugg-
um í tuttugu stiga hita. Hún hef-
ur ekki komist inn til mín. Það að
maður þurfi að líta í kringum sig þó
að maður sé heima, því það virðist
ekki skipta neinu máli. Þetta er alveg
svakalegt í svona litlu bæjarfélagi, að
ekkert sé hægt að gera í málinu. Það
sem ég er hræddastur við er að íbú-
ar hreinlega taki málið í sínar hend-
ur áður en lögreglan gerir eitthvað.
Stelpan á örugglega bágt en það þarf
þá að taka hana úr umferð. Þetta er
bara of langt gengið,“ segir maður-
inn.
Strunsaði inn og gramsaði
Annar Ólafsfirðingur C sem DV
ræddi við sagði að konan hefði
ekki í raun brotist inn til hans held-
ur hafi hún bankað upp á þegar tólf
ára dóttir hans hafi verið ein heima.
Konan hafi gengið rakleiðis inn og
tekið það sem henni sýndist meðan
stúlkan fylgdi henni eftir lafhrædd.
„Í mínu tilfelli var þetta þannig að
hún kemur að dyrum og spyr hvort
við foreldrarnir séu heima, sem
við vorum ekki, og hvort hún megi
koma inn til að skoða heimilið. Dótt-
ir mín veit hver hún var áður en hún
leiddist út í þennan heim. Hún fer
inn og skannar öll herbergi og rót-
ar í drasli. Hún fer í skóhillur og inn
í ísskáp,“ segir maðurinn. Að hans
sögn tók konan tvo bjóra og skópar
í þessari skoðunarferð.
Barnið í sjokki
Maðurinn segir að honum þyki þessi
uppákoma mjög óþægileg sér í lagi
vegna þess hvernig hún lék á unga
dóttur hans. „Mér er alveg sama um
þessa muni sem hún tók frá mér,
en hún málað barnið út horn. Hún
lagði mikið á tólf ára stelpu þarna.
Hún var í miklu sjokki eftir þetta,
þorði ekkert að segja mér hvað hún
hefði tekið, ósátt við að þetta hefði
gerst á hennar vakt. Hún gat ekkert
borðað og var bara í sjokki greyið,“
segir Ólafsfirðingurinn.
Horfir á í forundran
„Ég held að það sé mjög hollt að
þetta komi upp á yfirborðið. Þetta
er stórhættulegt lið sem við erum
díla við hérna. Þetta er bara ung
stúlka sem er búin að dragast inn í
einhvern óheilindaheim sem breyt-
ir því ekki að það er hún sem er að
fara inn í húsin. Mörg á dag og mörg
á nóttu oft,“ segir maðurinn. Hann
segist hafa orðið var við umræðu um
hvort bæjarbúar þyrftu að taka lögin
í eigin hendur. „Þetta eru náttúrlega
hræðileg komment því hver vill svo-
leiðis vitleysu. Við erum bara farin
að halda að þau hafi eitthvað á lög-
guna. Maður horfir á þetta í forundr-
an. Lögreglan hefur oft verið spræk-
ari þegar einhver hefur lagt ólöglega.
Þegar reynir á þá gerist andskotans
ekki neitt.“
Íbúar orðnir reiðir
Hann segir að þetta ástand sé búið
að umturna bæjarlífinu. „Hér hefur
enginn læst nokkru. Nú gera það all-
ir. Fólk er orðið svo reitt vegna þess
líka að lögreglan bregst svo furðu-
lega við, virðist einhvern veginn telja
sig ekkert geta gert. Yfirvarðstjórinn
sagði við mig að það þurfi einhver
fimmtíu, sextíu mál til þess að þau
væru sett inn. Þá var hann með
hana hjá sér og spurði hvort ég vildi
gera eitthvað í þessu. Ég sagði að ég
væri nú búinn að því, ég væri búin
að senda tilkynningu og kæru,“ seg-
ir maðurinn. DV hafði samband
við yfir varðstjóra á Ólafsfirði til að
spyrja hann út í málið. Hann kann-
Ólafsfjörður í heljar-
greipum glæpamanna
n Íbúar íhuga að taka lögin í eigin hendur n Langþreyttir á andvaraleysi lögreglu
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Hvað
vilja þau
að sé gert?
Við getum
ekki látið fólk
hverfa.
„Þorp í heljargreipum“ Ólafsfirðingar hafa upplifað innbrotahrinu síðastliðið misseri. Sumir sem DV ræddi við höfðu orð á því að brotist hafi verið inn hjá öðrum hvorum bæjarbúa.