Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2014, Blaðsíða 37
Helgarblað 1.–5. ágúst 2014 Fólk Viðtal 37 „Ég var svo ung“ þess að verða móðir. Aðstæður voru erfiðar en hún gat hins vegar ekki hugsað sér að ganga í gegnum aðra fóstureyðingu. „Ég fór þá og talaði við félagsráð- gjafa uppi á spítala. Hún spurði mig hvort ég ætlaði í fóstureyðingu af því að ég vildi það sjálf eða hvort ég væri að gera það fyrir einhvern ann- an. Þá áttaði ég mig á því að mig lang- aði ekki að láta eyða barninu, ég vildi eiga það,“ segir hún. Allt henni að kenna Þegar hún hafði tekið þá ákvörðun hringdi hún í Svein Andra til þess að segja honum að hún ætlaði að eiga barnið. „Hann brjálaðist í símann, ég heyrði hann öskra og lemja í stýrið.“ Rebekka upplifði í kjölfarið mikla höfnun. „Ég lokaði samt ein- hvern veginn á tilfinningarnar og ákvað bara að ég myndi gera þetta sjálf, sama hvað. Ég áttaði mig líka á því hvað þetta hefði verið en fannst skrýtið að hann gæti ekki tekið þátt. Þetta væri barnið hans.“ Hún segir erfiða tíma hafa tekið við. Hún hafi fengið að heyra úr ýms- um áttum að hún væri að eyðileggja líf hans og þetta væri allt henni að kenna. „Hann sagði að ég væri að rústa lífi hans og hvort ég ætlaði að koma honum undir græna torfu. Ég væri að eyðileggja fjölskylduna. Mér var kennt um allt. Hans nánustu voru mjög blindir og sáu ekkert rangt við það að hann hefði barnað mig held- ur var það versta að ég vildi ekki láta eyða fóstrinu.“ „Kem til móts við þig fjárhagslega“ Í Facebook-skilaboðum milli þeirra má sjá að samskiptin á þessum tíma voru nokkur. Sveinn Andri leggur ríka áherslu á að hann geti ekki tekið þátt í lífi barnsins. „Ég get ekki verið með þér í þessu – þú veist það,“ segir Sveinn Andri í einum skilaboðun- um. „Ég vona þú sért ekki mjög reið við mig útaf þessu og viljir eitthvað ná þér niðri á mér,“ segir hann í öðr- um skilaboðum til hennar. Rebekka skrifar til hans að hún vilji að þau geri með sér lögbundinn samning og að hann axli fjárhagslega ábyrgð. „Auðvitað geri ég það – heyri í þér,“ svarar hann. Sveinn virðist hafa mikl- ar áhyggjur af því að málið rati í fjöl- miðla og skrifar: „Við finnum lausn í sameiningu – án þess að fara í fjöl- miðla.“ Rebekka spyr á móti hvern- ig lausn hann hafi í huga. „Lausn sem bæði geta þokkalega unað – með samningi. Ég axla mína ábyrgð og kem til móts við þig fjárhagslega. Þú og foreldrar þínir geta ekki unað við það að ég veiti þér engan stuðn- ing og að sama skapi get ég ekki unað við það að verið sé að ræða um slík einkamál í fjölmiðlum,“ skrifar hann á móti. Borgaði meðlag tvisvar Stuttu eftir þessi samskipti hitti faðir Rebekku Svein Andra á kaffihúsi. Þar ræddu þeir hvernig greiðslum skyldi háttað. Þar sem Rebekka var ekki orðin fjárráða þegar sonur hennar fæddist fóru greiðslurnar milli Sveins Andra til föður hennar. Rebekka bjó þá í foreldrahúsum. „Hann borgaði 80 þúsund í start- kostnað, síðan borgaði hann tvisvar sinnum meðlag,“ segir hún um þátt- töku Sveins. „Kemur enginn annar til greina“ Þegar sonur hennar var nokkurra vikna gamall kynntist Rebekka nú- verandi sambýlismanni sínum og þau fóru að vera saman. „Hann gekk honum í föðurstað. Þeir tengdust strax alveg ótrúlega vel þannig að hann feðraði hann, hann er pabbi hans.“ Þó hafi Sveinn Andri fyrst verið skráður faðir barnsins á fæðingar- skýrslunni uppi á spítala. Það hafi aldrei verið vafi á því að hann væri faðir barnsins og hann aldrei neitað því, til að mynda með því að borga meðlag fyrst um sinn. „Ég fór í DNA með þeim sem ég var með áður en ég var með Sveini, þó að það væri ekki líffræðilegur séns að hann væri pabbinn. En til þess að vera 120% viss þá lét ég gera prófið og það var nei- kvætt. Þannig það er alveg öruggt að hann er pabbinn, það kemur enginn annar til greina.“ Kærði Svein Hún segist eftir fæðinguna hafa farið langt niður. Það sem hún upp- lifði með Sveini hafi haft mikil áhrif á hana. Hún hafi verið óþroskuð og ekki tilbúin fyrir þessar aðstæður. Því hafi þetta allt haft mikil áhrif á hana. Hún telur hann hafa notfært sér yfir- burðastöðu sína gegn henni til þess að ná sínu fram. Eftir að hafa unnið í sínum málum með hjálp sálfræðinga ákvað hún að leggja fram kæru gegn Sveini fyrir tælingu gegn ólögráða einstaklingi. Hún fór í yfirheyrslu hjá lögreglu þar sem hún þurfti að rifja allt málið upp. „Það var mjög erfitt að þurfa að tala um þetta allt aftur,“ segir hún. Kæran var felld niður þar sem hún þótti ekki líkleg til sakfell- ingar. „Þoli ekki að einhver geti gert manni svona“ Sveinn á annað barn fætt á sama ári og sonur Rebekku. Sú barnsmóðir veit af tilvist sonar Rebekku og hef- ur verið í sambandi við hana. „Börn- in hans vita líka af honum og fleiri. En það hefur enginn haft samband við mig og viljað hitta barnið,“ seg- ir hún. „Mér fannst það svo leiðin- legt gagnvart þessu litla barni að það sé ekki tekin ábyrgð. Svo finnst mér líka ömurlegt hvernig er talað um mig í sambandi við þetta. Að ég hafi planað þetta og ég hafi bara átt að fara í fóstur eyðingu,“ segir hún. „Ég horfi á son minn, þetta fallega og góða barn, og get ekki hugsað þá hugsun til enda.“ Þegar sonur Rebekku var nokkurra mánaða gamall og hún að ná sér úr mikilli andlegri lægð ákvað hún að senda Sveini skilaboð þar sem hún tilkynnti honum að hann þyrfti ekki að borga henni meira meðlag. „Ég vildi bara alveg losna við hann úr mínu lífi. Vildi ekki vita af honum, ég var svo reið og ég þoli ekki að einhver geti gert manni svona,“ segir hún. Hún skipti þó um skoðun fyrir nokkru og vill nú að hann borgi með- lag með barninu eins og honum beri skylda til. „Það hefur verið haft sam- band við hann en hann ekki svarað því einu sinni,“ segir hún. Íhugaði sjálfsmorð Rebekka hefur að eigin sögn, átt mjög erfitt frá því að samband hennar við Svein Andra stóð. Þetta hefur tekið mikið á hana andlega og hún oft verið mjög langt niðri og þurft að leita sér hjálpar vegna þess. Hún hef- ur þó verið í mikilli sjálfsvinnu og með hjálp sálfræðings reynt að vinna sig upp úr þessu. Hún segir þó að ákveðið bakslag í batanum hafi kom- ið þegar hún rakst á Svein Andra á djamminu fyrir nokkrum mánuðum. „Ég fór á Austur um daginn og þá var hann þar. Hann lét eins og hann sæi mig ekki og ég fór út af staðnum því ég gat ekki horft framan í hann. Ég settist á Ingólfstorg og þar var dóttir hans og var alltaf að gjóa aug- unum til mín. Hún var örugglega að hugsa hvort þetta væri ég en hún talaði ekkert við mig,“ segir hún. Í kjölfarið fór hún langt niður og íhugaði að svipta sig lífi. „Ég fór heim og lét kærastann minn vita hvern- ig mér leið. Hann fór með mig upp á bráðamóttöku Geðdeildar og ég var lögð inn. Ég var þar í viku. Síðan út- skrifaðist ég en var lögð aftur inn og hef verið að ná mér á skrið síðan. Mig langar að losna við þetta af bakinu á mér. Ég á ekki að þurfa að skammast mín fyrir þetta heldur hann fyrir sig og sína hegðun,“ segir hún. „Ég var bara barn“ Hún segist viss um að aðrar stelpur hafi lent í svipaðri aðstöðu og hún sjálf. „Ég var ekkert með þroska til að takast á við svona,“ segir hún. „Ég vil bara fá réttlæti fyrir mig og son minn. Það á enginn að koma svona fram og núna veit ég að þetta var ekki mér að kenna. Ég var bara barn. Ég á ekki að þurfa bera þessa skömm heldur hann.“ Rebekka íhugar nú ásamt lög- fræðingi sínum að fara í faðernis- og skaðabótamál við Svein Andra til þess að fá faðerni barnsins á hreint þótt hún sé viss í sinni sök og segi að Sveinn hafi aldrei efast um það, hvað hana varðaði, að hann væri faðirinn. Meðal annars með því að segjast ætla axla fjárhagslega ábyrgð og að hafa tvisvar borgað meðlag með barninu. Segist ekki vera faðirinn Þegar DV hafði samband við Svein Andra vegna málsins sagðist hann ekki vera faðir barnsins og að þetta væri byggt á misskilningi. „Það er einhver misskilningur, það er rangt. Ég ætla ekkert að vera ræða um þetta við þig. En þetta er ekkert rétt. Ég hef ekkert um þetta að segja,“ sagði Sveinn Andri þegar DV bar það undir hann að hann væri faðir barnsins. Þegar blaðamaður sagðist hafa séð samskipti milli þeirra á Face- book sem styddu þetta sagði hann, „Þið hafið áður spurt mig um þetta og ég hef ekkert um þetta að segja og vil ekkert láta hafa eftir mér um þetta. Ég vil ekkert tala við þíg um mín prívatmál. Þetta eru bara mín einkamál. Ég hef ekkert meira við þig um að ræða,“ sagði hann. n Segist ekki vera faðirinn Sveinn Andri segist í samtali við DV ekki vera faðir barnsins. Þrátt fyrir það segist hann í Facebook-skilaboðum þeirra á milli ætla að axla fjárhagslega ábyrgð gagnvart barninu. Rebekka segir hann hafa borgað meðlag tvisvar. n Rebekka segir Svein Andra vera föður sonar síns n Varð ólétt 16 ára n Kynntust á Facebook „Ég var svo reið og ég þoli ekki að einhver geti gert manni svona. Faðir hringdi í Svein Samkvæmt heimildum DV er þetta ekki í fyrsta skipti sem Sveinn á í vafasömum samskiptum við ungar stelpur, um og und- ir lögaldri. Yfirleitt hefjast þau á þann veg, að Sveinn sendir stúlkunum tiltölulega saklaus skilaboð á Facebook og fái hann svar færir hann sig smám saman upp á skaftið. Blaðamaður ræddi til dæmis við föður stúlku sem sá sig knúinn til að hringja í Svein vegna slíkra samskipta. Sveinn sendi þá sextán ára dóttur hans einkaskilaboð á Facebook sem innihéldu daður og gullhamraslátt. Þegar faðirinn frétti þetta hringdi hann í Svein og sagði, efnislega, að sér þætti óviðurkvæmilegt að tæplega fimmtugur maður gerði hosur sínar grænar fyrir ólögráða stúlku – og skammaði hann. Sveinn sagði þá að um mistök hafi verið að ræða, hann hafi ætlað að senda skilaboðin til lögráða laganema. BAldure@dv.iS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.