Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 2
Helgarblað 15.–18. ágúst 20142 Fréttir 1 matsk. safieða 1 hylki. F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i . Jafnvægi og vellíðan lifestream™ nature’s richest superfoods Útgáfa uppgjörs- bókar Björgólfs tefst n Gekk frá skuldauppgjöri í síðustu viku n Bókin ekki fullkláruð B ók sem fjárfestirinn Björg­ ólfur Thor Björgólfsson hugðist gefa út í Bretlandi í lok júní um hluta feril síns verður ekki gefin út fyrr en í lok nóvember. Þetta staðfestir Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona fjárfestingarfélags hans, Novator. Þegar greint var frá því í mars að von væri á bókinni, sem heitir Billions to bust and back: How I made, lost and rebuilt a fortune og er skrifuð af Björgólfi ásamt með­ höfundi, kom fram að von væri á bókinni þann 26. júní. Útgáfan Profile Books gefur bókina út. Björgólfur Thor hefur verið tals­ vert til umræðu í fjölmiðlum síð­ ustu vikuna út af skuldauppgjöri sínu við lánardrottna sem lauk fyrr en hann hafði ætlað. Greint var frá því árið 2010 að uppgjörið stæði til og hefur það staðið yfir síðast­ liðin fjögur ár. Samkvæmt tilkynn­ ingu sem Björgólfur Thor sendi frá sér í síðustu viku felst það meðal annars í uppgjörinu að hann greiði lánardrottnum sínum sam­ tals um 1.200 milljarða króna til baka af útistandandi skuldum, þar af 100 milljarða á Íslandi. Segir bókina ekki fullbúna Ragnhildur segir að ástæðan fyrir því að útgáfa bókarinnar tefst sé ekki skuldauppgjörið heldur hafi bókin einfaldlega ekki verið full­ kláruð. „Hún var bara ekki full­ búin í tíma. Það er heldur ekki eins og þetta hafi verið eitthvað tímabundið. Það er ekkert „dead­ line“ á þessu.“ Ragnhildur segir jafnframt aðspurð að fjallað verði um skuldauppgjörið í bókinni. „Auðvitað kemur það við sögu eins og allir aðrir stórir póstar á þessari vegferð.“ Upprisunni lokið Björgólfur er því í þeirri stöðu núna að geta sagt frá skuldaupp­ gjöri sínu í bók sem gefin verður út í Bretlandi og er ætluð fyrir al­ þjóðlegan lesendahóp. Miðað við stöðu Björgólfs í dag er hann aft­ ur orðinn ríkasti Íslendingurinn, út frá verðmætum eignarhlut­ ar hans í samheitalyfjafyrirtæk­ inu Actavis sem hann átti eitt sinn einn. Þá hefur verðmæti pólska símafyrirtækisins Play einnig farið hækkandi og er komið með um 10 milljónir áskrifenda að sögn Ragn­ hildar. Björgólfur getur því sagt alla sögu sína, frá uppgangsárun­ um í Rússlandi og fram að skulda­ uppgjörinu eftir hrunið 2008 sem gerir hann aftur að ríkasta manni Íslands. Hugsanlegt er að virði eigna Björgólfs sé í kringum 100 milljarða króna eða jafnvel meira því ekkert lát virðist vera á gengi og hækkun hlutabréfa í Actavis. Stærra samhengi Aðspurð hvort bókin sé sannkallað sprengiefni og hvort finna megi í henni nýjar upplýsingar segir Ragnhildur að í bókinni verði stóra samhengið í ferli Björgólfs Thors en ekki einblínt á upplýsingar um viðskipti hans á Íslandi, eins og til dæmis um einkavæðingu bankanna. Hún segir að í bókinni verði umtalsvert fjallað um við­ skipti Björgólfs Thors erlendis en fyrir hrunið, og eins eftir það, hef­ ur stór hluti umsvifa hans verið annars staðar en á Íslandi. Íslensk­ ir áhugamenn um hrunið 2008, aðdraganda þess og eftirmála, munu því væntanlega ekki fá mik­ ið af nýjum upplýsingum um það í bók Björgólfs. n „Auðvitað kemur það við sögu eins og allir aðrir stórir póstar á þessari vegferð. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Tefst fram í nóvember Útgáfa bókarinnar um Björgólf Thor tefst þar til lok í nóvember á þessu ári. Hann hefur nú lokið skuldaupp- gjöri sínu við lánardrottna. A ð sögn heimildarmanns DV á Ólafsfirði er innbrotahrinunni sem staðið hafði yfir um nokkurt skeið nú lokið. Að hans sögn er stúlkan sem sögð var standa að baki innbrotunum flutt úr bænum. Hann segir að góðkunningi lögreglunnar sem búsetur er á Akur­ eyri hafi verið í heimsókn á Ólafs­ firði síðastliðna helgi og var því nokk­ ur kurr í bæjarbúum. „Hann kom að heimsækja hana og var eina helgi. Fólk var svolítið órólegt með þetta marga vitleysinga í bænum. Hún fór eftir helgina og það hefur ekki heyrst í henni síðan,“ segir Ólafsfirðingur­ inn. Hann segir bæjarbúa nú anda léttar vitandi að innanstokksmun­ ir þeirra séu örlítið öruggari og allt sé með kyrrum kjörum. „Fólk er hætt að læsa. Það er allt farið að róast aftur. Ég held þó að flestir séu nú ekki búnir að fá dótið sitt aftur.“ DV ræddi við fjölda Ólafsfirðinga fyrir rúmlega tveimur vikum og var þá greinilega mikill hiti í flestum. Stúlk­ an var sögð fá að ganga óáreitt hús frá húsi þar sem hún átti að hafa stolið öllu steini léttara. Þeir töldu að að­ gerðaleysi lögreglunnar vegna inn­ brotanna væri hneisa og sögðu sumir að mögulega kæmi til þess að bæjar­ búar tækju lögin í eigin hendur. „Ég vildi óska þess að hún kæmi heim til mín, ég myndi eflaust rota hana og það er ekki grín,“ skrifaði einn Ólafs­ firðingur í bréfi til DV. Að sögn Dan­ íels Guðjónssonar, yfirlögregluþjóns á Akur eyri, var þó fjöldi mála gegn stúlk unni í meðferð hjá lögreglu. Viku eftir að DV fjallaði fyrst um málið var birt frétt á vefsíðu Fjalla­ byggðar þar sem kom fram bæjaryfir­ völd sæju fulla ástæðu til að grípa til aðgerða. Bæjarstjórn lagði áherslu á að gera átak gegn fíkniefnaneyslu og ­sölu. „Það mál er algjörlega búið í okkar huga. Það er komið í ákveðinn farveg,“ segir Sigurður Valur Ás­ bjarnarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, í samtali við DV. n hjalmar@dv.is Ólafsfirðingar anda léttar n Flestir hættir að læsa útidyrunum n Stúlkan flutt Rólegt á ný Stúlkan sem sögð var hafa stolið öllu steini léttara í Ólafsfirði er nú sögð flutt. Ólafsfirðingur sem DV ræddi við sagði það ákveðinn létti fyrir bæinn. Strætóbílstjórar unnu silfur Vagnstjórar Strætó bs. unnu til silfurverðlauna í hinu árlega Norðurlandamóti vagnstjóra í akstursleikni á strætisvögnum, sem fram fór í Helsinki um síð­ ustu helgi. Höfuðborgir Norðurlandanna skiptast á að halda mótið. Keppt er í liðakeppni, þar sem saman­ lagður aksturstími, auk villna í braut reiknast til heildarúrslita. Þá reiknast frammistaða hvers vagnstjóra einnig til einstaklings­ úrslita. Finnar unnu mótið á heima­ velli í ár, Svíar hlutu brons og Norðmenn hlutu júmbóverð­ launin, sem er strætisvagn, hag­ lega smíðaður af Guðgeiri Ás­ geirssyni, fyrrverandi vagnstjóra, þar sem vagnstjórinn situr öfugur við stýrið. Bestum árangri Íslendinga náði Andrés Bergur Bergsson, en hann varð í 3. sæti einstaklinga. Hland í gosflösku „Ég benti óheppnum starfs­ manni á þetta sem neyddist til að handleika þetta,“ segir viðskiptavinur Nettó Salavegi í Kópavogi. Þar reyndist vera flaska af Egils Appelsíni sem átt hafði verið við. Hún virtist inni­ halda hland. „Ég get ekki verið 100% viss um að þetta hafi verið piss en þetta leit þannig út fyrir mér og starfsmanninum,“ segir viðskiptavinurinn í samtali við DV. Hann birti meðfylgjandi mynd af flöskunni á Facebook og benti á að málið gæti reynst mjög vandræðalegt fyrir sóðann því öryggismyndavél vísar beint að kælinum. DV spurðist fyrir um málið hjá forsvarsmönnum Nettó en þar á bæ komu menn af fjöllum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.