Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 Fjölbreyttar vörur í öllum litum fyrir bæjarhátíðina! FAXAFEN 11 • 108 REykjAvík • 534-0534 F jöldi menntaskólanemenda hefur þurfta að leita á sjúkrahús í sameiginlegri út­ skriftarferð nokkurra stærstu menntaskóla höfuðborgar­ svæðisins. Nemendurnir eru staddir á Benidorm á Spáni. Hávær orðróm­ ur er meðal nemenda í ferðinni að mörgum þeirra sem hafa þurfta leggjast undir læknishendur hafi verið byrluð ólyfjan. Bjarni Sigurðsson, fram­ kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Costa Blanca, sem er með út­ skriftarferðina á sínum snær­ um, segir í samtali við DV að ekki hafi fengist staðfest að um ólyfjan væri að ræða. Hann segir nem­ endur einfaldlega hafa verið ofur­ ölvi. „Þetta er alltaf notað svo mik­ ið sem afsökun af krökkunum. Að þetta sé ólyfjan, en það var ekki í þessu tilviki í gær [þriðjudag, innsk. blm.],“ segir Bjarni. Nemendur í út­ skriftarferðinni koma úr alls fimm menntaskólum; Menntaskólanum í Kópavogi, Menntaskólanum við Sund, Borgarholtsskóla, Fjölbrauta­ skóla Garðabæjar og Menntaskólan­ um við Hamrahlíð. Tvær fóru á spítalann eftir Íslendingaball Síðastliðið þriðjudagskvöld var haldið sérstakt Íslendingaball á Benidorm þar sem nemendur allra skóla skemmtu sér saman. Það kvöld þurftu tvær stúlkur að fara á spít­ ala. „Þetta skólaball var í gær og það var þannig að það voru tvær stelp­ ur sem voru bara ofurölvi. Það fór panikk í gang hjá einhverjum vin­ konum þeirra og fleiri stelpum. Við vorum þarna tveir við hurðina og það fór enginn inn nema krakkarnir og öllum utanaðkomandi haldið frá,“ segir Bjarni. Að hans sögn dvaldi að­ eins önnur stúlknanna nóttina á spítalanum. „Það fór ein upp á spít­ ala og vaknaði í morgun og man ekki eftir neinu.“ Bjarni segir að læknir hennar hafi ekki staðfest að henni hafi verið byrluð ólyfjan. Reglulegar spítalaferðir Nemendur sem DV ræddi við og eru staddir á Benidorm segja að fleiri hafa þurft að leita til læknis í ferðinni en stúlkurnar sem fluttar voru á sjúkrahús eftir Íslendinga­ ballið. „Ég hef ekki fengið það stað­ fest frá spítala eða lækni að nein­ um hafi verið byrluð ólyfjan. Það eru reglulegar spítalaferðir, fólk er að misstíga sig, einn handleggs­ brotnaði, og svo er það ofurölvun. Við höfum ekki neina pappíra frá spítalanum um að það væri ólyfjan. Fyrsta daginn eða annan daginn þá var talað um þetta. Þá hafði ég sjálf­ ur samband við spítalann og var bara sagt ofurölvun,“ segir Bjarni. Hann bendir á að um sé að ræða fjögur hundruð manna hóp og miðað við það sé fremur fámenn­ ur hópur sem hafi þurft að leita til læknis. „Við stoppuðum þetta af í fæðingu í gær þegar krakkarnir fóru í geðshræringu að tala um ólyfjan. Maður sér alveg þegar það á sér stað. Við upplifðum það í fyrra.“ „Ein sem froðufelldi“ Berglind Þóra Bragadóttir, markaðs­ og margmiðlunarstjóri nemenda­ félags Menntaskólans í Kópavogi, segir í samtali við DV að mikil um­ ræða hafa átt sér stað meðal nem­ enda um mögulega byrlun ólyfjan. „Ég hef heyrt af þessu, ég veit að það hefur verið eitthvað um þetta á ákveðnum stöðum. Það var ein sem froðufelldi,“ segir hún. Missti tvisvar meðvitund Kærasti einnar stúlku sem er í út­ skrifarferðinni fullyrðir í samtali við DV að kærustunni hafi verið byrluð ólyfjan á Benidorm. Hann segir að hún hafi ekki leitað til læknis held­ ur hafi vinir hennar borið hana inn á hótelherbergi. „Þetta var ekkert út af því að hún var of full. Hún miss­ ir tvisvar skyndilega meðvitund og slasast án þess að vera búin að drekka mikið. Algjört minnisleysi alla nóttina. Hún heyrði af stelpum sem misstu skyndilega undan sér fæturna, sem er þekkt einkenni. Þetta er hennar upplifun, sem er það eina sem er eftir þar sem hún fór ekki á spítala,“ segir hann. n n Kærasti fullyrðir byrlun ólyfjan n Fararstjóri segir nemendur ofurölvi Fararstjóri Bjarni Sigurðsson segir það algenga afsökun hjá menntaskólanemend- um að kenna ólyfjan um ofurölvun. „Hún missir tvisvar skyndilega með- vitund og slasast án þess að vera búin að drekka mikið. Algjört minnisleysi alla nóttina. Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Útskriftarnemendur á spítala eftir Íslendingaball „Þetta er alltaf notað svo mikið sem afsökun af krökkunum Benidorm Allt að fjögur hundruð menntskælingar eru nú í út- skriftarferð á Benidorm. Nemend- ur fullyrða að fjölmörg tilvik hafi átt sér stað þar sem nemendum hafi verið byrluð ólyfjan. Rafmagns- laust á Króknum Rafmagnslaust var á Sauðár­ króki og nágrenni á fimmtu­ dag, en rafmagnið fór af um tíu leytið fyrir hádegi. Ástæðan var bilun í aðalspenni RARIK. „Eftir smá tíma kom í ljós að það var hitamælirinn sem slíkur sem bilaði,“ segir Steingrímur Jóns­ son hjá RARIK á Norðurlandi, en spennirinn sló út vegna of­ hitnunar. Alls var rafmagnslaust í fjóra tíma. Það olli talsverðum vandræðum hjá fyrirtækjum og stofnunum í bænum en einhver þeirra voru með varaaflsstöðv­ ar sem komu að góðum notum. Áfram verður fylgst með spenn­ inum og mælum um helgina. Hættir vegna sveitarstjóra Umdeild ráðning sveitarstjóra Svalbarðsstrandarhrepps dregur dilk á eftir sér M ikið ósætti ríkir innan stjórn­ sýslunnar hjá Svalbarðs­ strandarhreppi vegna um­ deildrar ráðningar Eiríks Hauks Eiríkssonar sem sveitarstjóra. Ráðningin hefur dregið dilk á eft­ ir sér, en DV greindi frá því í síðustu viku að Grétar Þór Eyþórsson, pró­ fessor í stjórnmálafræði við Háskól­ ann á Akur eyri, hefði kallað eftir því í viðtali á forsíðu Akureyrar Viku­ blaðs að sveitarstjórn Svalbarðs­ strandarhrepps endurskoðaði ráðn­ ingu Eiríks. Síðan þá hefur málið undið enn meira upp á sig, en norðlenski hér­ aðsmiðillinn Vikudagur greindi frá því síðasta miðvikudag að Magnús Gunnarsson, skrifstofustjóri Sval­ barðsstrandarhrepps, hafi ekki mætt til vinnu eftir sumarfrí, en samkvæmt heimildum Vikudags var ástæðan sú að hann treysti sér ekki til að vinna með Eiríki. Staðan hefur nú verið auglýst á vefsíðu sveitarfélagsins, en Magnús hyggst ekki ætla að vinna út uppsagnarfrest sinn, samkvæmt Vikudegi. Þá hefur undirskriftum einnig ver­ ið safnað vegna málsins og höfðu rúmlega 80 manns skrifað undir list­ ann, þar sem ráðningu Eiríks er mót­ mælt og skorað er á sveitarstjórn að taka ráðningu hans til endurskoðunar. Það var svo í gær sem að yfir­ lýsing frá sex íbúum Svalbarðs­ strandarhrepps var birt í Akureyri Vikublaði, þar sem sveitarstjórinn er borinn þungum sökum. Þeir sem yf­ irlýsinguna rita halda því fram að þeir hafi verið beittir „ólýðræðisleg­ um vinnubrögðum“ og orðið fyrir að­ dróttunum og þöggunartilraunum frá yfir valdinu. Tildrög þess má rekja til undirskriftalistans fyrrnefnda, sem sendur var til sveitarstjórnarinnar í júlí ásamt erindi, en bréfahöfundar segja að Eiríkur hafi reynt að „hafa bein áhrif á vægi erindisins með því að reyna að fá einhverja til að taka undirskrift sína til baka.“ n jonsteinar@dv.is Frá Svalbarðsströnd Myndin er fengin af vef Svalbarðsstrandarhrepps. Mynd aF vEF SvalBaRðSSTRandaRHREppS Bónus með lægsta verðið Verslunin Bónus Korputorgi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum, stór­ mörkuðum og klukkubúðum víðs vegar um landið þriðjudaginn 12. ágúst. Hæsta verðið var oftast að finna í verslun 10/11 Laugalæk eða í næstum helmingi tilvika og hjá Samkaupum­Strax í Hófgerði í þriðjungi tilvika. Bónus var með lægsta verðið í um 70% tilvika og Krónan Lindum og Fjarðar­ kaup í 10% tilvika. Oftast var verðmunurinn á hæsta og lægsta verði vöru frá 25% upp í 75% en í um 20% tilvika var meira en 75% verðmunur. Mesti verðmunur í könnuninni var hins vegar 147%. Athygli vekur að í um 10% tilvika var umbeðin vara ekki verðmerkt hjá Hagkaupum Kringlunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.