Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 15.–18. ágúst 201430 Fólk Viðtal þurfum að líkindum að læra betur að standast slíkar freistingar og sneiða hjá því sem klárlega er okkur óhollt,“ segir hann. Algjörlega streitulaus Það er nóg að gera hjá Jakobi. Hann sinnir tónlistargyðjunni og starfar í fullu starfi sem framkvæmdastjóri Miðborgarinnar okkar. „Ég hef auð- vitað mjög margt á minni könnu fyr- ir utan það að vera pabbi og maki, en mér finnst ég höndla það betur og án streitu – sem betur fer,“ segir hann og upplýsir leyndarmál sitt að baki streitulausu lífi. „Það spyrja mig margir að þessu. En ég er svo slakur innan í mér þótt ég sé með marga bolta á lofti. Og ég þakka það – og hef sagt það áður – því að hafa verið skikkaður til píanó- náms. Að vaxa upp við það að læra að senda skipanir samtímis til 10 fingra og jafnvel tveggja fóta; vera með eyru og augu og öll skilningarvit vakin samtímis, það er svona stærsti og besti undirbúningur undir það sem á ensku heitir „multi-tasking“. Þetta þakka ég foreldrum mínum.“ Og hann segist miðla þeim lærdómi áfram til sinna dætra. Miðlar áfram „Fyrsta sem ég legg áherslu á er að dætur mínar læri á píanó því ég held að það sé farsæl leið til þroska. Að þroska heilann og efla skyn og greind. Ég er svo innilega þakk- látur foreldrum mínum fyrir það veganesti sem þau veittu mér. Síð- an það að búa að þessu sem full- orðinn einstaklingur, geta sest við hljóðfærið að loknum degi eða á miðjum degi þess vegna og spilað af fingrum fram eða samið nýtt lag. Ef það væri einhver vottur af streitu þá myndi hann sannarlega líða úr manni við það,“ segir hann sann- færandi. Mikilvægt að fyrirgefa Reyndar segist hann láta fátt koma sér úr jafnvægi. „Ég reynd- ar læt eiginlega ekkert stressa mig. Það eina sem hefur valdið mér nokkru hugarangri upp á síðkastið er þetta viðvarandi getuleysi þar til bærra alþjóðastofnana eins og Sameinuðu þjóðanna og öryggis- ráðsins og annarra við að stemma stigu við fjöldamorðum sem eiga ekki að umbera árið 2014. Það er villimennska í anda miðalda – ekki 21. aldar. Ég hef látið það ræna mig gleðinni nokkrum sinnum að undanförnu ef ég leiði að því hug- ann. Til að jafna upp geð mitt þá gleðst ég yfir svo mörgu öðru. Ég gleðst yfir mínum nánustu sem lífs eru,“ segir hann og telur það afar mikilvægt að láta ekki neikvæðnina taka völdin. „Gremja og ergelsi er númer eitt að halda sér frá. Það á að hrista af sér leiðindin jafn harðan ef þau leita á þig. Fyrirgefa. Og vera ekki að hanga í einhverri fortíð sem var. Vera sterkur í núi. Ég ber ekki kala til nokkurs manns og er alveg full- komlega sáttur við það sem að mér snýr. Ef eitthvað pirrar mig þá er ég fljótur að finna gleðina sem vegur upp á móti því,“ segir Jakob. Gömul og sterk vináttubönd Og af því að við erum á gleðinót- unum þá er ekki úr vegi að minn- ast á það sem veitir honum svo mikla gleði þessa dagana. Það eru æfingar með gömlu félögunum úr Stuðmönnum. Æskuvinir sem flestir hafa þekkst í og yfir hálfa öld og hafa vinaböndin haldist í gegnum árin. Nú koma gömlu félagarnir saman enn á ný og halda stórtónleika í Hörpu þann 6. september næst- komandi. Þá verður platan Tívolí, sem mörgum þótti marka tímamót í íslenskri tónlistarsögu, spiluð í heild sinni og öllu tjaldað til. Það er vel við hæfi að halda tónleikana núna því í ár eru 40 ár frá fyrstu útgáfu sveit- arinnar. „Það er eitt af því sem gleð- ur mig hvað mest þessa dagana, það er þetta er samneyti við gömlu vin- ina. Þessi vinátta er mjög dýrmæt og góð. Hljómsveitin hefur tekið sér hlé svona inn á milli. En það er af ýms- um ástæðum sem að menn kannski kjósa að draga sig í hlé en það er því mun skemmtilegra þegar við kom- um saman aftur,“ segir hann. Hljómsveitin kom aftur saman í tilefni sextugsafmælis Valgeirs Guð- jónssonar fyrir tveimur árum en þá hafði hún verið í nokkurra ára hléi. „Síðan vorum við með tónleika í tilefni 30 ára afmælis Með allt á hreinu-plötunnar, þá kaus Þórður Árnason að vera ekki með, honum fannst nóg hafa verið gert í kring- um afmæli Valgeirs og ákvað að taka ekki þátt í þessu. Hann kom okkur öllum verulega á óvart með viðmóti sínu. Við vorum hissa og höfum ver- ið síðan. Guðmundur Pétursson gekk til liðs við okkur þá. Nú lítum við á Guðmund sem okkar nýja liðs- mann og það til frambúðar, Þórður hefur bara ákveðið að sitja hjá. Farn- ist honum vel, hann er frábær mús- íkant og textaskáld og í raun stór- merkilegur náungi,“ segir hann. Mikið fagnaðarefni að fá Sigurð Bjólu til baka Jakob segir gaman hjá félögunum þegar þau koma saman. Það séu allir í miklu stuði og allir á þeim stað að vilja spila sem mest saman. Ragnhildur er þó í Bretlandi um þessar mundir þar sem hún er búsett en kemur heim á næstu dög- um til að taka þátt í að æfa fyrir tón- leikana. „Þetta er bara tóm ham- ingja, gleði og það eru allir komnir á þann stað að vera bara njóta þess ef við erum að gera eitthvað svona. Svo var eitt mesta fagnaðarefni síð- ari tíma Stuðmannasögunnar þegar Sigurður Bjóla fór að hafa samband að fyrra bragði. Jafn dýrmætur liðs- maður og mikilvægur og hann var þá helgaði hann sig annars kon- ar nálgun, hljóðmennsku, upp- tökutjórn og að semja fyrir leikhús. Hann er að upplagi mjög frumlegt skáld. Þegar hann fór að hafa sam- band að fyrra bragði aftur þá var því mjög fagnað,“ segir Jakob. Alltaf verið góðir vinir Samstarf Stuðmanna hefur í gegn- um árin gengið í gegnum ýmis- legt. Valgeir Guðjónsson hætti í bandinu til þess að sinna sólóferli sínum en kom aftur til liðs við sína gömlu félaga, eins og áður sagði, fyrir nokkrum árum. Ragnhildur hóf masternám í tónsmíðum 2005 og hætti þá að starfa með sveitinni. Þau spila hins vegar öll saman í dag, fyrir utan Þórð, og segir Jakob það vera lítið mál að vera í hljómsveit með fyrrverandi eiginkonu sinni. „Við höfum ver- ið góðir vinir frá fyrstu tíð. Það tók mig langan tíma að jafna mig og átta mig á þessu öllu saman. En við höfðum vinsemd, virðingu og samvinnu að leiðar- ljósi frá því við ákváð- um þetta. Þegar mað- ur lendir í svona þá skaltu, ef það eru börn í spilinu, setja börnin þín í fyrsta sæti, mak- ann í annað sæti og sjálfan þig í þriðja. Ég veit um félaga mína sem hafa tekið þetta heimatilbúna hollráð til eftirbreytni og það hefur reynst farsælast af öllu. Ef þér þykir vænt um barnið þitt þá skaltu láta þér þykja vænt um móð- ur þess og sjá til þess að hún hafi ekki hugarangur af því sem verða vill,“ segir hann. Kannski ný mynd Nú æfa þau á fullu fyrir tónleikana og hlakka til að koma saman enda var Tívolí líklega sú plata Stuð- manna sem notið hefur hvað mestra vinsælda. „Þetta er sú plata sem fékk kannski hvað bestar viðtökur gagn- rýnenda og tónlistar unnenda þegar hún kom út. Hún byggði á grunn- stefi sem var hægt að samsama sig við. Tívolígarðurinn var spegil- mynd samfélagsins sem allir voru að velta fyrir sér. Þegar víglínurn- ar voru afstaðan til Ameríku annars vegar og Sovétríkjanna hins vegar. Lögin hafa öll einhverja samsvör- un, þau hafa öll einhvern karakter eða viðfangsefni sem snertir okkur. Lögin hafa lifað á lagalistum okkar ansi mörg í gegnum tíðina. Þetta er svona yrkisefni sem gefur tilefni til mjög litríkrar og fjölbreyttrar upp- færslu,“ segir hann. Upprunalega átti myndin Með allt á hreinu að vera myndin Tívolí. Það breyttist þó en hann segir allt eins líklegt að ein- hvern tímann verði Tívolí að mynd. „Það er alveg möguleiki á því að hún verði gerð,“ segir hann nokkuð leyndardómsfullur. „Við erum að kalla til marga góða liðsmenn til að gera þetta skemmti- legt með okkur,“ segir hann um tón- leikana. „Við hlökkum virkilega mik- ið til að leika í Hörpu 6. september,“ segir Jakob og síminn hringir. Birna Rún er á línunni að athuga hvort hann sæki ekki örugglega stelpurn- ar. Þegar það er búið fer hann á æf- ingu með Stuðmönnum sem æfa nú nánast alla eftirmiðdaga þar til kemur að stóru tónleikunum. Æf- ingar fara fram í miðbænum og má heyra þekkta Stuðmannatóna óma um Vesturgötuna seinni part dags. Alsáttur og kátur Að lokum segist Jakob bara vera sáttur við sitt, hlakka til spennandi verkefna og að fá að lifa hvern dag. Hann er kominn langt á veg með plötu með eigin efni sem líklega kemur út í byrjun næsta árs. „Það að mega vakna með fjölskyldunni, það að mega ganga til starfa og síð- an setjast við slaghörpuna að kvöldi dags og láta sér ef til vill detta eitt- hvað skemmtilegt í hug – ég bið ekki um neitt meira en það. Nema það að gömlu vinirnir vilji blása til tónleika svona öðru hvoru með mér. Þá er ég bara harla kátur og sáttur við mitt hlutskipti.“ n „Ég er síkátur. Þau eru það líka börnin og það smitast á milli. Stuðmenn Þau eru vinir í blíðu og stríðu enda þekkst í og yfir hálfa öld mörg hver í hljómsveitinni Stuðmönnum. Gleðin við völd Jakob hefur gleðina að vopni í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann segist vera svo glaður að stundum skammist hann sín fyrir það. Mynd ÞorMAr ViGnir GunnArSSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.