Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 28
Helgarblað 15.–18. ágúst 201428 Fólk Viðtal
Á
sólbjörtum sumardegi
mælum við Jakob Frímann
okkur mót á litlu kaffihúsi
í anddyri hostels á Vestur
götu. Þetta er einn af fáum
og vel metnum sólardögum í
borginni og kátínan sem fylgir sól
inni er nánast áþreifanleg í mið
bænum.
Fámennt er á kaffihúsinu enda
hafði Jakob, sem þekkir alla króka
og kima miðbæjarins, valið það
af kostgæfni með það í huga. Það
fer hins vegar ekki framhjá þeim
fáu sem inni eru þegar Stuðmað
urinn og miðborgarstjórinn sjálf
ur kemur inn þráðbeinn í baki
með ljósa þykka hárið sitt og heils
ar með virktum. Eftir að hafa rakið
ættir blaðamanns langt aftur og
fundið tengingu milli forfeðra
okkar kemur Jakob sér fyrir. „Ég hef
mikinn áhuga á uppruna mínum og
annarra, reyndar hef ég bara mjög
mikinn áhuga á fólki,“ segir hann og
brosir út í annað þegar blaðamað
ur spyr vandræðalega hvort viðtalið
eigi ekki að snúast um hann.
Ríkidæmið töluvert
Jakob Frímann þekkja flest
ir Íslendingar enda hefur hann
verið áberandi í menningar
lífi landans undanfarna áratugi.
Tónlistarmaður fram í fingurgóma
sem er hvergi nærri hættur þrátt
fyrir að vera orðinn 61 árs. Reynd
ar segist hann eiginlega hálfpart
inn skammast sín fyrir það hvað
hann er glaður með lífið. Hann er
enda kannski í öðru hlutverki en
flestir jafnaldrar hans, verandi fað
ir tveggja lítilla stúlkna; Jarúnar 7
ára og Katrínar Borgar 2 ára. Auk
þess á hann fyrir tvær dætur með
fyrri eiginkonu sinni; fósturdóttur
ina Ernu og svo Bryndísi. Síðan
er hann orðinn fjórfaldur afi og
því ríkidæmið talsvert. „Um þetta
snýst lífið,“ segir hann og fær sér
kaffisopa. „Þegar allt kemur til alls
þá eru það manns nánustu og að
heilsan sé í lagi sem skiptir máli. Í
mínum nánustu er mitt ríkidæmi
falið því ég er ekki svona efnamað
ur í hinum hefðbundna skilningi,“
segir hann. „Ég hef aldrei haft það
sem leiðarljós eða útgangspunkt,
bara rétt að eiga nóg. Ríkidæmi
felst ekki í verald legum eignum eða
peningum heldur felst það í lífinu
sem þú lifir. Í þeim skilningi þá er
mér mjög vel borgið.“
Sjarmi gengur í ættir
Reyndar hefur Jakob alltaf haft mik
inn áhuga á heilsu og heilsutengd
um málefnum og stóð til hjá honum
að fara í læknisfræði þegar hann
kláraði menntaskólann. Tónlistin
varð þó ofan á en hann dreymdi þó
lengi vel um að láta verða að því að
fara í læknisfræði. „Bryndís dóttir
mín hefur þennan áhuga líka og var
að hugsa um að fara í læknisfræði.
Það stóð reyndar til að ef hún færi
þá færi ég með henni. Svo ákvað
hún að láta ekki verða af því.“ Hann
hefur líka mikinn áhuga á ættfræði
og eftir að hafa rakið ættir blaða
manns langt aftur og komist að
tengslum frændfólks okkar liggur
Mótlætið dulbúin gæfa
Hann er svo glaður og sáttur við lífið að hann eiginlega skammast sín fyrir það.
Miðborgarstjórinn, Stuðmaðurinn, faðirinn, afinn og eiginmaðurinn Jakob
Frímann Magnússon hefur gleðina að leiðarljósi í öllu því sem hann gerir.
Þegar hann skildi fyrir 14 árum bjóst hann ekki við að finna hamingjuna á ný en
það kom honum skemmtilega á óvart hversu margar vildu elska 47 ára gamlan
mann. Hann er ástfanginn upp fyrir haus og segist ekki finna fyrir aldrinum en
passar að hugsa vel um sig til þess að geta verið til staðar sem lengst fyrir dætur
sínar, sú yngsta er tveggja ára.
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„Við
höfum
aldrei rifist