Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Side 37
Skrýtið Sakamál 37Helgarblað 15.–18. ágúst 2014
B
andaríkjamaðurinn David
Carpenter var að mati sér-
fræðinga seinn til hvað varð-
ar raðmorð. Hann fæddist 6.
maí 1930, stamaði illilega,
var heltekinn af kynlífslöngun og
hneigður til ofbeldis.
Engu að síður framdi hann sinn
fyrsta alvarlega glæp árið 1960 þegar
hann réðst á konu og misþyrmdi
henni með hamri og hníf. Fyrir það
var hann dæmdur til fjórtán ára
fangelsisvistar. Hann afplánaði þó
ekki nema tæpan helming þess tíma
en var dæmdur til fangelsisvistar
árið 1970 vegna mannráns. David
losnaði úr fangelsi árið 1977 og blóði
drifinn morðferill hans hófst um
tveimur árum síðar.
Kona hverfur
Anne Kelly Menjivar hvarf af heim-
ili sínu árið 1979 en lík hennar fannst
ekki fyrr en í júní 1980. Dauði henn-
ar var því ekki tengdur David fyrr
en eftir handtöku hans og þá varð
einnig ljóst að þau höfðu átt í ástar-
sambandi.
Þann 20. ágúst, 1979, hvarf Edda
Kane þegar hún skokkaði í Mt.
Tamal pais-garðinum, skammt frá
San Francisco. Lík hennar fannst í
krjúpandi stellingu og hafði hún ver-
ið skotin í höfuðið. Í kjölfar þessa
morðs hafði David Carpenter hægt
um sig og í mars 1980 fannst lík 23
ára konu, Barböru Schwartz, í krjúp-
andi stellingu en banamein hennar
fjöldi hnífsstunga í bringuna.
Tvær grafir hlið við hlið
Anna Alderson, 26 ára, fannst liðið lík
í október 1980 og hafði líkt og Edda
horfið þegar hún var úti að skokka.
Skömmu síðar taldi lögreglan sig
hafa komist í feitt og hneppti mann í
varðhald sem virtist geta verið ódæð-
ismaðurinn. Skömmu síðar varð ljós
að sú var ekki raunin.
Hinn 29. nóvember, 1980, komust
ódæði Davids í fjölmiðla og ekki að
ástæðulausu. Tveimur dögum fyrr
hafði 25 ára kona, Shawna May, horf-
ið er hún var á göngu í Point Reyes-
garðinum og 29. nóvember fannst
lík hennar og hafði hún verið skotin
í höfuðið.
En auk líkamsleifa hennar
fundust einnig líkamsleifar Diane
O'Connell, 22 ára, sem hafði horfið
um mánuði áður. Höfðu báðar ver-
ið huslaðar í grunnum gröfum sem
lágu hlið við hlið. Diane hafði, líkt og
Shawna, verið skotin í höfuðið.
Rauður bíll og vitni
Þennan sama dag fundust tvö lík
til viðbótar í Point Reyes-garðin-
um; Cynthia Moreland og Richard
Towers sem höfðu bæði mætt örlög-
um sínum sömu helgi í október og
Anna Alderson. Fjórir líkfundir á
einum og sama deginum var meira
en góðu hófi gegndi, jafnvel hvað
fjölmiðla áhrærði.
Þar var ekki fyrr en í mars 1981
sem David Carpenter lét til sín taka
á ný. Þá myrti hann Ellen Hansen í
garði skammt frá Santa Cruz, en kær-
asti Ellenar slapp með skrekkinn og
gat gefið lögreglu lýsingu sem dugði
til þess að hægt var að útbúa teikn-
ingu af morðingjanum.
Lögreglan fékk einnig upplýs-
ingar frá fólki sem hafði verið í
garðinum um rauðan smábíl sem
hafði verið þar um svipað leyti. Nú
leit út fyrir að lögreglan þyrfti ekki
nema smá lán til að mjakast áleiðis
að lausn málsins.
Mikil líkindi með teikningunni
Sú varð einnig raunin, en áður hafði
fórnarlömbum Davids fjölgað um
eitt, Heather Scaggs. Heather hafði
horfið á leið sinni til heimilis Dav-
ids, sem hún þekkti úr vinnunni.
Sá orðrómur var á kreiki að David
hefði ítrekað reynt að fá Heather á
stefnumót.
Í kjölfar hvarfs Heather gerði lög-
reglan sér ferð heim til Davids til að
afla upplýsinga. Þar blasti við lög-
reglunni rauður smábíll og að auki
þá svipaði David ótrúlega mikið til
teikningarinnar af manninum sem
banað hafði Ellen.
Lögreglan ákvað í kjölfarið að
fylgjast nánar með David og þegar
líkamsleifar Heather fundust, í Big
Basin-garðinum, var hann handtek-
inn.
Dauðadómur
Kunningi Davids viðurkenndi í kjöl-
farið að hafa selt honum skammbys-
su sem notuð hafði verið við nokk-
ur morðanna, reyndar hafði Davið
losað sig við þá byssu er hann var
handtekinn.
En maður nokkur hafði keypt .38
kalíbera skammbyssu af David og
rannsókn leiddi í ljós að sú byssa
hafði komið við sögu í síðustu tveim-
ur morðunum.
David Carpenter var dæmdur til
dauða 6. júlí, 1984, fyrir tvö morð;
Heather og Ellen. Síðar var réttað
yfir honum og hann sakfelldur fyrir
fimm morð að auki. n
n David Carpenter var haldinn óseðjandi kynlífsfíkn n Blóðugur ferill hans hófs seint
Morðinginn
seM staMaði
„Sá orðrómur
var á kreiki að
David hefði ítrekað
reynt að fá Heather á
stefnumót
David Carpenter
Að mati sérfræðinga
hóf hann raðmorð
sín í eldri kantinum
miðað við raðmorðinga
almennt.