Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 45
Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 Sport 45 20 Burnley Nýliðar Burnley munu eiga erfitt uppdráttar í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Liðið komst nokkuð örugglega upp í úrvalsdeildina í fyrra; varð í 2. sæti Championship-deildarinnar og tapaði aðeins 5 af 46 leikjum sínum. Ein helsta ástæða góðs gengis liðsins í fyrra var þéttur varnarleikur, ekkert lið fékk á sig jafn fá mörk og Burnley. Knattspyrnu- stjóranum Sean Dyche hefur gengið afleitlega að styrkja liðið í sumar og hafa fáir úr leikmannahópnum reynslu úr úrvalsdeildinni. Munurinn á Champions- hip-deildinni og ensku úrvalsdeildinni er gríðarlegur og þó að varnarleikurinn hafi verið góður í fyrra er hætta á að öflugir sóknarmenn úrvalsdeildarinnar muni einfaldlega tæta vörn Burnley í sig. Lykilmaður: Sam Vokes Vokes skoraði 20 mörk í Champions- hip-deildinni í fyrra og myndaði öflugt sóknarpar með Danny Ings. Fylgstu með: Kieran Tripper Mjög sókndjarfur hægri bakvörður sem lagði upp 14 mörk fyrir Burnley i í fyrra. Chelsea verður meistari n United missir af Meistaradeildarsæti n Southampton fellur n DV spáir í spilin 4 Arsenal Arsene Wenger skilar Arsenal alltaf í Meistara- deildina og á því verður engin breyting í vetur. Undir eðlilegum kringumstæðum væri liðinu spáð hærra en staðreyndin er sú að önnur lið eru svo sterk um þessar mundir að jafnvel meistaradeildarsæti væri góður árangur hjá Arsenal. Liðið er ógnar- sterkt sóknarlega en vörnin mætti vera sterkari og með meiri breidd. Þá vantar liðið tilfinnanlega einhvern leiðtoga, einhvern sem drífur liðið áfram þegar á móti blæs. Alexis Sanchez er frábær viðbót í liðið en hann mun ekki vinna ensku deildina upp á eigin spýtur. Lykilmaður: Laurent Koscielny Frakkinn er hjartað í vörn Arsenal-liðsins og sá leikmaður sem liðið má einna verst vera án. Fylgstu með: Aaron Ramsey Var frábær í fyrra, skoraði 10 og lagði upp 8 í 23 leikjum. 5 Manchester United Louis van Gaal er tekinn við United eftir martröð- ina undir stjórn David Moyes í fyrra. Undirbún- ingstímabilið gefur góð fyrirheit fyrir komandi leiktíð en höggin sem skorin hafa verið í vörnina frá því í fyrra eru mikil. Reynsluboltarnir Nemanja Vidic, Rio Ferdinand og Patrice Evra eru horfnir á braut og aðeins unglingurinn Luke Shaw og miðjumað- urinn Ander Herrera hafa bæst í hópinn. United-stuðningsmenn munu sjá talsverða bætingu í vetur og liðið verður í harðri baráttu um 4. sætið. En Arsenal, Liverpool, Manchester City og Chelsea virðast einfaldlega vera sterkari og reiðubúnari í baráttuna. Lykilmaður: Wayne Rooney Rooney verður að vera í toppformi í vetur ætli United sér að eiga möguleika á 4. sætinu. Fylgstu með: Ander Herrera Öflugur miðjumaður sem var keyptur frá Athetic Bilbao í vetur. Virkilega hreyfanlegur og öflugur leikmaður. 6 Everton Everton kom allra liða mest á óvart í fyrra og var um tíma mjög nálægt því að ná 4. sætinu. 5. sætið varð þó niðurstað- an og stimplaði Roberto Martinez sig inn sem einn allra snjallasti stjórinn í úrvalsdeildinni. Liðið hefur ekki verið fyrirferðamikið á leikmannamarkaðnum í sumar en þó gert snjöll kaup. Romelu Lukaku var keyptur frá Chelsea auk þess sem liðið keypti bosnískan miðjumann að nafni Muhamed Besic. Það sem gæti gert tímabilið á Englandi erfitt fyrir Everton er sú staðreynd að í vetur verður liðið í Evrópudeildinni. Breiddin í leik- mannahópnum er ekki mikil og ef liðið leggur ofuráherslu á Evrópudeildina gæti farið illa heima fyrir. Lykilmaður: Phil Jagielka Mjög öflugur varnarmaður sem Everton má illa við að missa. Fylgstu með: Muhamed Besic Ungur og mjög öflugur miðjumað- ur sem var keyptur í sumar. 9 Stoke Stoke-liðið sigldi lygnan sjó á síðustu leiktíð og varð 9. sætið niðurstaðan. Það er fátt sem bendir til þess að liðið verði mikið ofar eða neðar á næstu leiktíð. Mark Hughes hefur haldið sínu bestu mönnum og bætt nokkrum athyglisverðum við. Má þar nefna framherj- ana Mame Biram Diouf og Bojan Krkic sem eflaust koma til með að nýtast liðinu vel. Þá hefur liðið fengið til sín Phil Bardsley og Steve Sidwell sem hafa mikla reynslu úr úrvalsdeildinni. Stoke-liðið verður ekki í neinu veseni í vetur, mun sanka að sér stigum á heimavelli en verða áfram í basli á útivöllum. Lykilmaður: Asmir Begovic Einn allra besti markvörður deildarinnar og mjög mikilvægur fyrir Stoke-liðið. Fylgstu með: Bojan Krkic Var líkt við sjálfan Lionel Messi á sínum tíma en hefur ekki fundið fjöl sína lengi. Slær hann í gegn í vetur? 10 Newcastle Newcastle-liðið gerði fína hluti í byrjun síðustu leiktíðar en slæm úrslit undir lok tímabils gerði það að verkum að liðið féll niður í 10. sæti. Liðið verður líklega á svipuðum slóðum í vetur. Í fyrra hengdi liðið haus þegar á móti blés og menn virtust saddir þegar sætið í deildinni var orðið tryggt. Alan Pardew þarf að finna leið til að það endurtaki sig ekki því Newcastle er stór klúbbur sem á að berjast í efri hluta deildarinnar ár eftir ár. Nokkrir öflugir leikmenn eru komnir til félagsins og má þar nefna Daryl Janmaat og Remy Cabella sem kostaði stórfé. Lykilmaður: Fabricio Coloccini Langbesti varnarmaður Newcastle og auk þess fyrirliði liðsins. Fylgstu með: Remy Cabella Mun fá það hlutverk að fylla skarðið sem Yohan Cabaye skildi eftir sig. 16 Aston Villa Talsvert basl hefur verið á Aston Villa undanfarin ár enda hefur liðið þurft að horfa á eftir sínum bestu leikmönnum yfir- gefa félagið. Það virðast ekki vera til peningar til að kaupa öfluga leikmenn til félagsins eins og hef- ur berlega sést í sumar. Darren Bent og Kieran Richardson komu frá Fulham, Joe Cole frá West Ham og Aly Cissokho sem gerði engar rósir hjá Liverpool þar sem hann lék á láni í fyrra.. Þessir leikmenn koma með ákveðna reynslu inn í ungan leikmannahóp Villa en eru samt sem áður allir komnir yfir sitt besta, sérstak- lega Bent og Cole. Villa þarf að safna fleiri stigum á heimavelli en það gerði í fyrra en liðið vann aðeins sex heimaleiki á Villa Park allt síðasta tímabil. Lykilmaður: Ron Vlaar Sýndi og sannaði með Hollendingum á HM í sumar að hann er frábær varnar- maður. Fyrirliði Villa-liðsins. Fylgstu með: Jores Okore Öflugur ungur danskur miðvörður sem meiddist illa snemma á síðustu leiktíð. Er klár í slaginn. 17 Leicester Leicester-liðið rúllaði yfir Championship- deildina í fyrra og komst mjög örugglega upp í úrvalsdeildina. Skrefið úr Championship í úrvalsdeild er hins vegar stórt og reynslan sýnir að liðið gæti orðið í erfiðleikum í úrvalsdeildinni í vetur. Ætli Leicester að halda sæti sínu í deildinni þarf heimavöllurinn að vera sterkur eins og hann var á síðustu leiktíð þegar liðið tapaði aðeins tveimur leikjum. Liðið er nokkuð vel mannað og keypti til að mynda Leonardo Ulloa frá Brighton í sumar. Sá skoraði 14 mörk í Champions- hip í fyrra. Þó að liðið hafi ekki leikið einhvern samba-bolta í fyrra er það mjög vel skipulagt undir stjórn reynslu- boltans Nigels Pearsons. DV spáir því að nýliðarnir haldi sæti sínu í deildinni. Lykilmaður: Wes Morgan Var algjör klettur í miðri vörninni á síð- ustu leiktíð. Landsliðsmaður Jamaíka. Fylgstu með: Jack Barmby Ungur miðjumaður sem kom frá Manchester United í sumar. Sonur Nicky Barmby. 18 Southampton Það gæti brugðið til beggja vona hjá Southampton í vetur. Liðið hafnaði í 8. sæti deildarinnar í fyrra en síðan þá eru allir bestu leikmenn liðsins farnir; Rickie Lambert, Adam Lallana, Luke Shaw, Dejan Lovren, Calum Cham- bers auk stjórans Mauricio Pochettiono. Þá hefur Morgan Schneiderlin heimtað að fá að yfirgefa klúbbinn. Þetta er einfaldlega of mikið og Southampton verður í miklum vandræðum í vetur þó svo að liðið hafi keypt öfluga leikmenn úr hollensku deildinni. Southampton gæti allt eins siglt lygnan sjó um miðja deild en breytingarnar á leikmanna- hópnum eru einfaldlega of miklar. Lykilmaður: Jay Rodriguez Að því gefnu að hann verði áfram. Var frá- bær í fyrra og skoraði fullt af mörkum. Fylgstu með: Dusan Tadic Serbneskur landsliðsmaður sem skoraði 16 mörk og lagði upp 14 með Twente í fyrra. 19 West Brom West Brom hefur verið á hægri niðurleið að undanförnu og á síðustu leiktíð var liðið hreinlega heppið að halda sæti sínu í deildinni. Liðið endaði í 17. sæti með 36 stig, þremur meira en Norwich sem féll. Það er fátt sem bendir til þess að West Brom muni spyrna við fótum í vetur. Liðið hefur að vísu fengið Joleon Lescott og Craig Gardner auk þess sem liðið eyddi rúmum milljarði í nígerískan sóknar- mann, Brown Ideye. Að öðru leyti er leikmannahópurinn svipaður og í fyrra. Lykilmaður: Ben Foster Markvörður sem getur tryggt West Brom-liðinu fullt af stigum í vetur í botnbaráttunni. Fylgstu með: Brown Ideye Skoraði 33 mörk í 74 leikjum fyrir Dynamo Kiev.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.