Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.07.1975, Qupperneq 13
11
af heildarvinnuafli í vörugreinum iðnaðar. Virðisaukinn nam
1.560 m.kr. eða 16,7% af heildarvirðisauka vörugreinanna. Undir
þennan flokk iðnaöar fellur útflutningur á ullar- og prjónavörum
auk fatnaðar, loösútaöra skinna og loðskinna. A árinu 1973 nam
útflutningur þessara vörutegunda 952,5 m.kr., eða um 58,8% af
heildarútflutningi iðnaðarvara án áls. Auk þess ber að geta
þess, að útflutningur á fiskilínum og ýmis konar veiðarfasrum nam
tæplega 8 m.kr. á árinu 1973. Afkoma vefjar-, fata- og skinna-
iðnaðar batnaði lítilsháttar frá árinu 1972. Vergur hagnaður
fyrir skatta sem hlutfall af vergum tekjum nam 4,7% samanborið
við 4,3% árið 1972. Afkoman 1973 í þessum flokki er þó allmiklu
verri en hún var að meðaltali í vörugreinum iðnaðar alls, en
þar var hún 6,8%, sem áður er getið.
Afkoma HM reyndist mun betri en afkoma ÚM á árinu 1973.
Reyndist verga hagnaðarhlutfallið vera 6,0% í HM samanborið við
2,9% í ÚM. Séu þessar tölur bornar saman við samsvarandi hlut-
föll árið 1972 kemur í ljós, að afkoma HM hefur batnað lítils-
háttar en afkoma ÚM hefur nánast staðið í stað, en almennt er
talið, að árið 197 3 hafi reynst útflutr.ingsiðnaðinum þungt í
skauti, m.a. vegna gengishækkana á því ári.
3, Trjávöruiðnaður.
Undir þennan flokk vörugreina fellur einkum framleiösla á
húsgögnum og innréttingum. A árinu 1973 störfuðu 1.668 manns
við þennan flokk eða 15,4% af heildarmannafla vörugreinanna.
Virðisaukinn nam 1.311 m.kr., en það eru 14% af heildarvirðis-
auka vörugreina iðnaðar. Þó svo, að vísir aö útflutningi á
húsgögnum sé að myndast, hefur sú leið verið farin, eins og í
fyrri atvinnuvegaskýrslum um iðnað, að telja trjávöruiönað til
heimamarkaðsiönaðar. A árinu 1973 nam útflutningur á húsgögnum
og innréttingum um 6,2 m.kr. samanborið við 3 m.kr. árið 1972.
Afkoma trjávöruiðnaðar stóð í stað frá því, sem hún var á árinu
1972. Vergur hagnaður fyrir skatta sem hlutfall af vergum
tekjum reyndist 5,7% á árinu 1973, en það er nokkru lægra en
meðalafkoma vörugreina iðnaðar, sem var 6,8%.