Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Page 12
12 Fréttir 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað „Það er búið að fella dóm yfir okkur“ n Foreldrar barna á 101 leikskóla í lausu lofti É g er bara í sjokki,“ sagði móð- ir barns á 101 leikskóla þegar DV ræddi við hana á miðviku- dag. Sama segja aðrir foreldr- ar barna sem annaðhvort eru í leikskólanum eða hafa verið þar. Á þriðjudagskvöld var sagt frá því á RÚV að barnaverndarnefnd hefði til rannsóknar meint harðræði starfsmanna á ungbarnaleikskól- anum 101 leikskóli gagnvart börn- unum. Það hefðu verið aðrir starfs- menn sem hefðu tilkynnt málið til nefndarinnar og hefðu myndband máli sínu til stuðnings. Í kjölfarið var hringt í foreldra barna á leikskólan- um og þeim sagt frá rannsókninni og mælt með að þeir myndu ekki mæta með börnin í leikskólann daginn eftir. Á miðvikudeginum tók eigandi leikskólans þá ákvörðun að loka leikskólanum meðan á rannsókn stæði yfir og tveimur starfsmönnum var vísað tímabundið frá störfum. Jörðuð á einni nóttu Hulda Linda Stefánsdóttir, eigandi leikskólans, ber að hún hafi ekki enn fengið að sjá umrædd myndbönd og viti ekkert hvað þau sýni. „Ég hef aldrei séð þetta myndband og frétti af þessu á sama tíma og fjölmiðlar. Ég fæ ekki að sjá þetta myndband. Þessi starfsmaður sem tilkynnti þetta er sá eini sem er með mynd- bandið. Ég held við verðum bara að- eins að bíða og leyfa fagaðilum að rannsaka þetta mál. Ég vissi ekki af þessu og enginn hérna inni,“ segir hún og gagnrýnir fréttaflutning af málinu. „Ég var jörðuð á einni nóttu – ég og mitt fyrirtæki. Fréttaflutn- ingurinn er búinn að vera rangur frá byrjun. Það er búið að fella dóm yfir okkur hérna,“ segir Hulda. „Ég hef ekki fengið að vita neitt meira. Þetta er það hræðilegasta sem ég hef lent í,“ segir Hulda en hún hefur átt leik- skólann í níu ár. „Ég hef byggt hann upp og hann er mitt líf og yndi.“ Þakklát fyrir stuðninginn Hún segir einkennilegt að starfs- mennirnir sem létu barna- verndarnefnd hafa myndbandið hafi ekki upplýst sig um það að þeir teldu börnin vera beitt harðræði þarna. „Ef ég hefði haft vitneskju um að harðræði eða ofbeldi væri beitt hér gagnvart börnunum þá hefði sá starfsmaður aldrei fengið að vera hér inni,“ segir hún og tekur fram að henni finnist afar ólíklegt að það hefði farið framhjá sér eða öðrum starfsmönnum þó að hún vilji ekki fullyrða neitt. Hulda segir rangt hafa verið tek- ið á málinu en vonast til þess að niðurstöður komi úr rannsókn þess sem fyrst. Hún segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi meðal for- eldra barna á leikskólanum. „Ég finn mjög mikinn stuðning frá foreldrum og ég er svo ofboðslega þakklát fyr- ir það.“ Hún segist bíða niðurstaðna. „Við fáum engin svör. Það eru allir í óvissu og við fáum engin svör um hvað þetta tekur langan tíma.“ Aldrei orðið orðið vör við neitt óeðlilegt Foreldrar barna á leikskólanum sem DV ræddi við sögðu stöðuna sem upp væri komin mjög óþægilega fyrir alla aðila. Móðir eins barns sem var á leikskólanum segist aldrei hafa haft grun um að neitt slíkt ætti sér stað á leikskólanum. „Ég hef aldrei orðið vör við neitt óeðlilegt og ég hef komið á mjög óreglulegum tímum að sækja barnið. Þvert á móti hefur mér alltaf fundist börnin vera glöð og mikið og gott starf vera unnið þarna. Mikið gert með börnunum þó að þau séu svona lítil. Til dæmis er skipulagt hópastarf, söngstundir og fleira.“ Hún segist hafa rætt við marga foreldra barna sem annaðhvort eru á leikskólanum eða hafa verið og segir þessar ásakanir hafa komið þeim algjörlega í opna skjöldu. „Ég trúi þessu ekki en vil auðvitað að þetta sé rannsakað en ég hef aldrei orðið vör við neitt óeðlilegt þarna og alltaf verið svo ánægð með leik- skólann.“ Móðir annars barns seg- ist þakklát starfsmönnunum sem stigu fram með myndbandið þó hún viti ekki hvað það sýni. „Ég er ótrú- lega ánægð og þakklát þessum stelp- um að hafa komið fram með þessar upplýsingar. Það er bara hræðilegt að hugsa til þess hefðu þær ekki gert neitt í þessu. Það hefði bara ver- ið svona áfram, ég meina hver veit hversu lengi þetta hefur verið í gangi ef þetta er raunin?“ segir hún. Í lausu lofti Þeir foreldrar sem DV ræddi við á fimmtudag höfðu ekki heyrt neitt meira frá því á þriðjudag þegar þeir fengu símtal frá barnaverndarnefnd þar sem sagt var frá rannsókninni og mælt með því að foreldrar kæmu ekki með börnin í leikskólann. „Það er auðvitað mjög óþægilegt að vita ekki neitt, ég veit ekki hvað ég geri í sambandi við vinnuna hjá mér í næstu viku ef það verður ekki komið neitt út úr þessu,“ segir móðir barns á leikskólanum. „Það veit enginn hvað er á þessum myndböndum eða hvort barnið manns sé á þeim eða ekki. Við vitum ekki neitt,“ segir hún áhyggjufull. „Það hlýtur eitthvað að hafa verið að gerast þarna, búið að setja tvo starfsmenn í leyfi og búið að festa eitthvað á filmu, það hljóta enn fleiri að hafa vitað af þessu. Ég myndi aldrei vilja hafa barnið mitt á svona stað. Það er það versta í heimi að þetta hafi viðgengist,“ segir ein móðirin. „Við erum bara í lausu lofti og höfum verið að bíða eftir að vera kölluð á fund. Það veit enginn hvað verður gert.“ Erfitt að fá pláss Fyrir utan áfallið sem felst í því að fá svona fréttir kemur það sér einnig vægast sagt illa fyrir útivinnandi fólk að missa dagvistun fyrir börnin. For- eldrarnir sem DV hefur rætt við segj- ast ekkert vita hvað verður. Hvort þau muni fá pláss annars staðar ef ásakanirnar reynast réttar. Erfitt er að fá pláss hjá dagforeldrum eða ungbarnaleikskólum á þessu svæði. Leikskólinn var einkarekinn og ekki er hægt að taka ung börn inn á leik- skóla borgarinnar fyrr en þau eru komin á annað ár. „Það er örugglega erfitt að komast inn einhvers stað- ar. Ég veit í rauninni ekkert hvað við ætlum að gera. Við vorum búin að bíða mjög lengi eftir þessu plássi,“ segir ein móðirin sem þurfti að lengja fæðingarorlof sitt um nokkra mánuði vegna þess að hún fékk ekki dagvistunarpláss fyrr en þá. Leita lausna Samkvæmt upplýsingum frá Bjarna Brynjólfssyni, upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar, þá er nú þegar byrjað að leita leiða til þess að koma þessum börnum að í dagvistun þó að rannsókn sé ekki lokið. „Þetta er ekki lögbundin þjónusta en mér skilst að það séu einhver laus pláss hjá dag- foreldrum og Reykjavíkurborg mun auðvitað gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að milda þetta högg og leita lausna við því,“ segir hann. Erfitt er þó að fá dagvistun fyrir börn á þessu svæði. „Ég á ekki von á því að það sé mikið af dagforeldrum með laus pláss á þessu svæði. Þannig er staðan og hún er býsna þröng. En mér skilst að það verði leitað leiða hjá Skóla- og frístundasviði til þess að leysa þetta.“ n „Ég var jörðuð á einni nóttu – ég og mitt fyrirtæki Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is „Þetta er það hræði- legasta sem ég hef lent í Lokað Eigandi leikskól- ans tók þá ákvörðun að loka honum meðan rann- sókn á meintu harðræði starfsmanna gagnvart börnunum stendur yfir. Mynd Kristinn MAgnússon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.