Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Side 31
M eð rannsóknarskýrslu Al- þingis vorið 2010 kom samhengi efnahags- hrunsins út á mörg þús- und blaðsíðum og svalaði þörfinni fyrir kerfisbundna umfjöll- un um aðdraganda þess og orsakir. Frá því rannsóknarskýrslan kom út hafa fjölmiðlar haldið áfram umfjöll- un um hrunið og afleiðingar þess en engin skýrsla eða bók hefur komið út þar sem helstu atburðirnir í við- skipta- og efnahagslífinu á árunum eftir hrun eru tíundaðir og settir í samhengi. Slík bók kom út í vikunni og heitir hún Ísland ehf: Auðmenn og áhrif eftir hrun. Bókin er eftir blaðamennina Þórð Snæ Júlíusson og Magnús Halldórs- son sem skrifuðu hana á aðeins tveimur mánuðum. Katastrófískar afleiðingar Í bókinni, sem er tæpar 300 síður, reyna höfundarnir að lýsa þeim kata- strófísku afleiðingum sem íslenska efnahagshrunið hafði á íslenskt efna- hags- og viðskiptalíf: Hvernig eigna- og valdajafnvægið í viðskiptalífinu hefur breyst; hverjir hafa misst eignir og hvernig; hverjir hafa haldið eign- um sínum og af hverju og hverjir það eru sem standa uppi sem eigendur Íslands þegar búið verður að greiða úr afleiðingum hrunsins. Því þó að fimm ár séu liðin frá hruninu þá má eiginlega að segja að hrunið sé ekki ennþá afstaðið þar sem stærstu mál íslensks samtíma ganga út á að eiga við afleiðingar þess: Gjaldeyrishöft- in, erlenda kröfuhafa bankanna og stórra fyrirtækja, nánast algjöran skort á erlendri fjárfestingu og það ægivald banka og lífeyrissjóða í ís- lensku viðskiptalífi sem hrunið hef- ur leitt til þar sem svo margir fjárfest- ar í atvinnulífinu misstu eignir sínar í hendur bankanna og fáir einkaað- ilar í viðskiptalífinu hafa fjárhagslegt bolmagn til að kaupa þessar eignir aftur af bönkunum. Bók Þórðar Snæs og Magnús- ar fjallar því ekki um afstaðna at- burði, líkt og til dæmis skýrsla rann- sóknarnefndar Alþingis og bækur um efnahagshrunið sjálft þar sem rammi umfjöllunarinnar endaði um haustið 2008, heldur um atburði sem eru enn í gerjun, um ryk sem enn er ekki sest. Í eftirmála bókarinnar er þessu lýst svo: „Það er ekki hægt að segja til um strax hvernig tókst til við endurskipulagninguna. Það mun tíminn leiða í ljós.“ En fátt nýtt Þeir sem fylgjast vel með fréttum munu ekki finna margt nýtt í bók- inni þar sem hún byggir að mestu leyti á fréttum sem sagðar hafa ver- ið um endurskipulagningu íslensks efnahags- og viðskiptalífs á liðnum árum. Til dæmis fjárhagslega endur- skipulagningu N1, Exista, Eimskipa, Olís og fleiri fyrirtækja. En það er þetta samhengi eftirhrunsins sem er aðall bókarinnar en ekki skúbb, ný tíðindi eða nýjar bombur. Einn af þeim sem greinarhöfund- ur ræddi við um bókina sagðist hafa verið að bíða eftir stóru bombunni framan af bókinni en að hún hafi ekki komið. Þetta er hins vegar ekki bók stórfréttanna heldur bók sam- hengis síðustu ára í efnahagslífinu; samhengis sem gott er að fá fest á bók. Heimur vogunarsjóða Í mörgum tilfellum hafa höfundarnir sjálfir skrifað þær fréttir sem um ræð- ir og vísað er til í bókinni og þekkja málin sem þeir fjalla um því vel, nán- ast frá fyrstu hendi ef svo má segja – stundum skreyta þeir frásögnina með samtölum sem þeir hafa sjálf- ir átt við nafngreinda aðila eins og Geir Haarde, Lýð Guðmundsson eða Jón Ásgeir Jóhannesson og gerir það bókina líflegri. Þetta á til dæmis við um umfjöll- unina um innreið vogunarsjóða í ís- lenskt viðskiptalíf um haustið 2008 – Þórður Snær hefur fjallað blaða- manna mest um þá í hérlendum fjöl- miðlum – þegar þeir sáu gróðatæki- færi í því að kaupa skuldabréf föllnu bankanna fyrir slikk. „Kaupa, kaupa, kaupa“ er haft eftir einum útsendara vogunarsjóðs hér á landi þegar hann kynnti sér eignasafns Glitnis á fyrsta kröfuhafafundi bankans síðla árs 2008. Sömu sögu má má segja um umfjöllunina um eignarhald kröf- uhafa bankanna, meðal annars vogunarsjóðanna, á skuldabréfum bankanna sem Þórður Snær birti í Fréttablaðinu í fyrra. Í bókinni er gefið gott yfirlit yfir þessi umsvif vogunarsjóðanna. Ís- land er orðið að landi vogunarsjóð- anna en slíkt hefði verið nær ómögu- legt í þeim ríkiskapítalisma sem hér ríkti fyrir einkavæðingu bankanna 2002 og 2003 – bókin skrásetur þá staðreynd vel. Skortur á tilvísunum Einn af göllum bókarinnar er að mínu mati sá, þar sem að mestu er um ræða notkun á fréttum sem nú þegar hafa verið sagðar í fjölmiðl- um, að höfundarnir skuli ekki geta heimilda. Ekki er að finna í bókinni tilvísanir til heimildanna sem notað- ar eru, hvorki neðanmáls né aftast í bókinni og er heldur ekki heimilda- skrá í henni. Fyrir vikið er erfitt fyrir lesand- ann að átta sig á því hvað er nýtt í frásögninni og hvað byggir á eldri fréttum. Í einhverjum tilfellum er heimilda getið í textanum sjálfum en það heyrir til undantekninga. Þetta er dálítið óþægilegt fyrir les- andann og eins kemur sér þetta illa fyrir höfundana þar sem vissu- lega er að finna nýjar upplýsingar í bókinni sem ekki hafa komið fram áður en lesandinn á erfitt með að átta sig á því sökum tilvísanaskorts- ins. Ástæðan fyrir þessum til- vísanskorti er væntanlega sú að til- vísanir geta hægt á flæði textans og gert hann stirðari og þyngri aflestr- ar. Sú ástæða er góð og gild en hef- ur ákveðnar neikvæðar afleiðingar fyrir lesandann. Hlutlægur stíll Bókin er læsileg. Á henni er hlut- lægur, frekar knappur stíll; frétta- stíll sem hefur það að markmiði að koma upplýsingum til skila frekar en að fanga anda lesandans eða töfra hann. Líkt og stundum er sagt þá hafa höfundarnir ákveðið að fara þá leið að „sýna“ frekar en að „segja“ (show but don´t tell) þar sem þeir láta oft og tíðum ógert að draga sjálf- ir ályktanir af þeim atburðum sem er lýst heldur láta lesandanum það eftir að draga eigin ályktanir af staðreynd- um. Höfundarnir sitja á sér í lýsing- um sínum sínum og dæma yfirleitt ekki harkalega eða nota kaldhæðni og háð – stundum skína skoðan- ir höfundanna þó í gegn eins og þegar talað er um árin fyrir hrun sem tímabil íslenskrar „viðskiptasnilld- ar“ í nokkurri kaldhæðni. Fyrir vik- ið þá virkar umfjöllunin sanngjörn á lesandann þar sem höfundarnir eru ekki dómharðir eða hrapa að álykt- unum. Þarft samhengi Bók Magnúsar og Þórðar færir les- andanum því þarft samhengi frétta úr efnahagslífinu sem almenningur hefur verið að lesa um síðustu fimm árin. Þeir hafa unnið það verk vel enda með stóran hluta þessarar sögu í kollinum eftir að lifað og hrærst í fréttum um eftirhrunið í fimm ár. Bókin telst hins vegar ekki vera sér- staklega frumlegt verk eða „tíma- mótaverk“ enda er það mér til efs að það hafi verið tilgangurinn með út- gáfu hennar. Verkið er hófsamara, lág- stemmdara og í reynd ópersónu- legra. Að sumu leyti má segja að bókin sé eins og viðhengi við rann- sóknarskýrslu Alþingis; viðhengi sem hefði kannski fylgt henni ef skýr- slan kæmi út í dag, eins konar annáll. Þetta er skrásetning samhengis sem minnir lesandann líka á fallvaltleika eigin fréttaminnis og það hve fljótt getur fennt yfir nýliðna atburði um líðandi stund í huga hans. Eftir lesturinn situr samhengi eftirhrunsins betur í huga hans. Fyrir vikið er þeim mun ólíklegra að hann gleymi því sem á undan er gengið í endurskipulagningunni eftir fallið sem við munum sjálf- sagt fylgjast með í að minnsta kosti nokkur ár í viðbót, eða kannski bara þar til allt hrynur aftur vegna þess hvernig staðið var að þessari endur- skipulagningu. n Bækur Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is Ísland ehf. Auðmenn og áhrif eftir hrun Höfundar: Magnús Halldórsson og Þórður Snær Júlíusson Útgefandi: Vaka-Helgafell/Forlagið Bók um eftirhrunið Þeir Magnús og Þórður Snær hafa fylgst náið með endurskipulagningu íslensks efnahagslífs síðustu árin og hafa nú skrifað bók um efnið. Mynd: KriStinn MagnÚSSon Samhengið í rústunum Ísland ehf eftir Magnús og Þórð Fátt nýtt er í bókinni en hún setur árin eftir hrun í áhugavert samhengi. „Þeir sem fylgjast vel með fréttum munu ekki finna margt nýtt Menning 31Helgarblað 23.–25. ágúst 2013 Til hvers að hefna? 2 guns eftir Baltasar Kormák Elskið þessa risa ins jafn vel. Þau hvorki fordæmdu hana né tóku fullan þátt, frekar má segja að þau hafi staðið álengdar og fylgst forviða með og lýst því sem fram fór, enda báru plötur þeirra nöfn á borð við More Songs About Buildings and Food. Útvarpshöfuð Ekki er hægt að skilja við Talking Heads án þess að nefna þau gríðar- legu áhrif sem hljómsveitin hafði. Hljómsveitin Spilafífl flutti lagið Talandi höfuð í Rokk í Reykjavík og minnti ekki lítið á fyrirmyndina, og önnur hljómsveit sem einhverjir kannast við dró nafn sitt af laginu Radio Head af plötunni True Stories. St. Vincent segir af sviðinu að hún hafi fyrst kynnst tónlist David Byrne í gegnum kvikmyndina Revenge of the Nerds þegar hún var á unglingsárum og segir það mikinn heiður að fá að spila með honum. David Byrne er ekki að- eins meistari í að rifja upp gamla takta, heldur listamaður í fullu fjöri og hefur hér fundið frábæra sam- starfskonu. Tónlist St. Vincent hef- ur verið lýst sem svo hamslausri gleði að hún verður hálfmanískt og nafn fyrstu plötu hennar, Marry Me frá 2007, var sótt í Arrested Development-þættina. Í eina kvöldstund er Há- skólabíói breytt í svalasta klúbbinn í New York og það er hrein unun að fylgjast með. n n Vel heppnaðir tónleikar David Byrne og St. Vincent í Háskólabíói n David Byrne engin prímadonna Áhrifamikill David Byrne er listamaður í fullu fjöri. Mynd: MagnÚS H. Ljóð Fara í bankann. Kíkja á þvottavélar. Kaupa í matinn. Skila Sigga bókinni. Frelsa heiminn. Þvo bílinn. Ljóðið birtist í bókinni Tannbursti skíðafélagsins og fleiri ljóð eftir Anton Helga Jónsson sem gefin var út af Forlaginu árið 2011. Barist við uppvakninga World War Z Leikstjóri: Mark Forster „Lélegur Gossi“ only god Forgives Leikstjóri: Nicolas Winding Refn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.