Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Side 36
36 Lífsstíll 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað
Græjur sem allir verða að eiga
Ó
hætt er að segja að lífsgæða-
kapphlaup Íslendinga hafi náð
ákveðnu hámarki árið 2007
og allir þurftu að eiga nýjustu
tækin á markaðnum. Í kjölfar
hrunsins dróst neyslan saman og þeir
hlutir sem nauðsynlegt hafði verið að
eiga, voru allt í einu ekki svo nauðsyn-
legir lengur. Margir reyndu jafnvel
að bæta lausafjárstöðuna með því
að losa sig við ýmsa af þessum áður
nauðsynlegu hlutum.
Nú þegar fimm ár eru liðin frá
hruni virðist lífsgæðakapphlaupið
hins vegar vera að hefjast aftur. Það er
enginn maður með mönnum nema
hann eigi flottan snjallsíma og spjald-
tölvu. Fyrir utan öll hin tækin sem
eru að verða staðalbúnaður á flestum
heimilum.
DV tók saman helstu tækin sem
nauðsynlegt er orðið að eiga, til að
geta tekist á við daglegt
amstur.
Snjallsími
Snjallsímann eru
flestir með við
höndina eða eyrað
bæði dag og nótt.
Hann er í raun bara
lítil tölva sem auðvelt er
að stinga í veski eða vasa. Með hon-
um getur þú tekið á móti og sent
tölvupóst, vafrað á netinu, spilað
tölvuleiki, skipulagt daginn,
notað sem vekjaraklukku
og síðast en ekki síst
hringt í mann og annan.
Spjaldtölva
Á sumum heimilum eru
fleiri en ein spjaldtölva,
ein fyrir fullorðna fólkið og önnur
fyrir börnin. Spjaldtölvan er eigin-
lega bara stærri útgáfa af snjallsím-
anum en það er þó yfirleitt ekki hægt
að hringja úr henni. Hún nýtist sem
handhæg tölva og er sérlega þægileg
til blaða- og bókalesturs. Svo er hægt
að sækja í hana marga þroskaleiki
fyrir börn sem þau geta dundað sér í
tímunum saman.
Vita Mix-blandari
Um er að ræða
mjög öflugan
blandara sem nýt-
ist líka sem mat-
vinnsluvél. Hann
er svo kröftugur að
hann mylur nánast niður hvað sem
er. Blandarinn hefur farið sigurför
um heiminn og nú eru Íslendingar
að uppgötva þetta tryllitæki. Boozt-
ið verður eflaust margfalt
betra.
Flatskjár
Flatskjárinn er auð-
vitað löngu orðinn
staðalbúnaður
á nánast hverju
heimili, enda ekki
hægt að fá öðruvísi
sjónvörp í dag nema á skran-
sölum. Oft er einn stór flatskjár í
stofunni, einn í hjónaherberginu og
einn í barnaherberginu. Þannig geta
allir horft á það sem þeir vilja, þegar
þeir vilja.
Flakkari
Flestir vita að
það er ólöglegt
að hlaða nið-
ur myndefni og
tónlist á netinu en
þrátt fyrir það stunda margir þá
iðju villt og galið. Svo er öllu efn-
inu skellt inn á flakkarann og hann
dreginn fram þegar sjónvarps-
dagskráin er léleg. Flakkarinn
er líka nauðsynlegur til að taka
geyma afrit af gögnum úr
tölvunni.
Weber-gasgrill
Gömlu góðu kolagrill-
in eru nánast alveg
úrelt, enda tímafrekt
að grilla á þeim. Gas-
grillin eru mun hentugri
fyrir upptekið fólk sem hefur
ekki mikinn tíma til að elda. Það er
fátt betra en að henda góðri steik á
grillið eftir erfiðan vinnudag og njóta
þess svo að borða með fjöl-
skyldunni, án þess að
eldamennskan taki of
langan tíma.
Gashitari
Fyrir þá sem eru með pall
eða góðar svalir er gashitari alveg
nauðsynlegur. Sérstaklega í ljósi hins
íslenska veðurfars sem aldrei er hægt
að treysta á. Það er agalegt að vera
búinn að bjóða í garðpartí eða grill á
svölunum og svo er ískalt úti. Þá
kemur gashitarinn
til bjargar.
Kitchen Aid-
hrærivél
Hún er ákveðið
stöðutákn og þá
skiptir engu máli
hvort eigandinn er
mikill bakari eða ekki.
Kitchen Aid-hrærivélin er til að
mynda mjög vinsæl brúðargjöf og
þykir merki um að ákveðnum
áfanga sé náð í lífinu. Hún er
öflug og endingargóð og ætti
að ráða vel við tertubaksturinn
á heimilinu.
Safapressa
Hvað er betra
en ferskur og
nýkreistur
ávaxtasafi á
morgnana?
Líklega fátt.
Það þykir frekar
smart að geta útbúið sinn eigin
ávaxtasafa og safapressan er al-
veg nauðsynleg í þá aðgerð.
Espressó-vél
Nú eru espressó-
kaffivélarnar
orðnar svo góð-
ar að kaffihúsin
mega líklega
fara að vara sig.
Langflestir sem
drekka kaffi eiga slíka vél heima hjá
sér og því óhætt að segja að hún sé
orðin raunverulegur staðalbúnaður
á nútímaheimilinu. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
ford.is
Ford Fiesta Trend 5 dyra, 1,0i bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 99 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90 mín. í senn.
Ford Fiesta Titanium 5 dyra, 1,6i bensín 105 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,9 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 138 g/km. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
BEINSKIPTUR FRÁ
SJÁLFSKIPTUR FRÁ
FORD FIESTA
2.390.000 KR.
3.090.000 KR.
kOMDU OG prófaðU
Komdu o
g pRóFAð
u
NÝR FoR
d FIESTA
SNIlldAR
bíll
Mest selDa sMábíl í heiMi
Ford_Fiesta_5x18_13.05.2013_1.indd 1 06.08.2013 11:36:46
n Lífsgæðakapphlaupið hafið að nýju n Flestir eiga snjallsíma og spjaldtölvu
Snjallsímar eru vinsælir Snjall-
síminn er í raun bara handhæg lítil
tölva sem hægt er að hringja úr.