Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2013, Page 46
A
lex Band, söngvara hljóm-
sveitarinnar The Calling,
var rænt síðastliðinn
sunnudag, hann barinn
illa og skilinn eftir á lestar-
teinum. Mannræningjarnir heimt-
uðu af honum peninga. Band hefur
nú tjáð sig opinberlega um mann-
ránið í tilkynningu sem upplýsinga-
fulltrúi hljómsveitarinnar sendi frá
sér.
Árásin átti sér stað í Lapeer í
Michigan en ráðist var á Band þar
sem hann hafði brugðið sér út
af hóteli sínu snemma morguns.
Sendiferðabíll renndi upp að hon-
um og hann var dreginn inn í bílinn.
Þar var hann barinn með lögreglu-
kylfu og byssu beint að andliti hans
á meðan mannræningjarnir kröfð-
ust þess að að hann afhenti þeim
„Hollywood-peningana“ sína. Band
lét ræningjana hafa allt það fé sem
hann var með á sér, en þeir vildu
meira og hótuðu honum lífláti.
„Við drepum ekki feður“
Á meðan mannræningjarnir létu
höggin dynja á Band hrópaði
hann á þá: „Ekki drepa mig, ég er
að verða pabbi.“ Fljótlega eftir að
Band lét þau orð falla virtist allur
vindur úr mannræningjunum og
þeir sögðu: „Við drepum ekki feð-
ur.“ Svo skildu þeir hann eftir illa
slasaðan á lestarteinum, þar sem
aðrir hljómsveitarmeðlimir The
Calling fundu hann nokkru síðar
því þegar Band skilaði sér ekki aft-
ur á hótelið fóru þeir að leita að fé-
laga sínum.
Í tilkynningunni segir Band: „Ég
bjóst aldrei við því að ófætt barn
mitt myndi koma mér til bjargar.
Ég er mjög þakklátur fyrir að vera á
lífi og veit að mér er ætlað að halda
áfram að skapa tónlist fyrir aðdá-
endur mína.“
Ekki auglýsingaherferð
The Calling kom nýlega saman aftur
eftir nokkurt hlé og sögusagnir voru
uppi um að árásin hefði verið hluti
af auglýsingaherferð til að vekja
athygli á endurkomu hljómsveitar-
innar.
Band segir það fáránlegar sögu-
sagnir. „Ég lenti í alvöru í þessu. Ég
lét ekki ræna sjálfum mér, eða berja
mig til óbóta. Svo allar sögusagnir
um að þetta sé gabb eru hálfógeð-
felldar.“
Þá blæs Band einnig á þær sögu-
sagnir að árásin hafi verið tengd
fíkniefnum. „Ég tek edrúmennskuna
mjög alvarlega. Ég var nærri dauða
en lífi vegna þessarar ótrúlegu upp-
ákomu og allar þessar sögusagnir
eru rangar.“ n
46 Fólk 23.–25. ágúst 2013 Helgarblað
Fertug og aldrei glæsilegri
Þ
ýska ofurfyrirsætan Heidi
Klum vakti mikla athygli
þegar hún yfirgaf hótel sem
hún bjó á í Soho-hverfinu í
New York á þriðjudag en hún er ein
af dómurum í keppninni America´s
Got Talent.
Heidi sem var ein þekktasta fyrir-
sæta heims fyrir um áratug virðist
lítið eldast, hún er enn jafn glæsileg
og hún var á hátindi feril síns. Heidi
var klædd síðum kjól sem sýndi
brjóstaskoruna og var fleginn langt
niður á bak.
Daginn áður en myndirnar af
Heidi voru teknar í Soho sást til
hennar og kærasta hennar, Martin
Kristien, á göngu um borgina. Það
sem vakti athygli vegfarenda var að
þau skörtuðu bæði hring á baug-
fingri sem þóttu líkjast mjög gift-
ingarhringjum. Það orsakaði vanga-
veltur um hvort þau væru búin að
trúlofa sig þrátt fyrir að Heidi hafi
ekki alls fyrir löngu þvertekið fyrir
að eitthvað slíkt væri í bígerð. Heidi
og Martin hafa verið saman frá því
í september en þau hófu samband
fjórum mánuðum eftir að fyrirsætan
fyrrverandi sótti um skilnað við tón-
listarmanninn Seal. Þau höfðu verið
gift í nokkur ár. Saman eiga Seal og
Heidi þrjú börn á aldrinum þriggja
til sjö ára auk þess sem Heidi átti
eina dóttur fyrir. n
n Söngvara The Calling rænt og barinn til óbóta n Skilinn eftir á lestarteinum
n Sögusagnir um trúlofun
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Barinn til óbóta Band var barinn illa með lögreglukylfu og skilinn eftir á lestarteinum.
Hér er mynd af honum eftir árásina.
Beckham fer
aftur til fortíðar
Knattspyrnustjarnan David
Becham sneri aftur til upprunans
í myndatöku fyrir nýjustu nærfa-
talínu sína í samstarfi við sænsku
verslunarkeðjuna H.M. Beckham
er fæddur og uppalinn í East End-
hverfinu í London og voru mynd-
irnar teknar í gömlu búnings-
herbergi í því hverfi.
Glæsileg Þýska fyrirsætan Heidi
Klum er glæsileg í þessum síða,
flegna kjól. Heidi virðist ekkert
eldast. Sögusagnir eru á kreiki um
að fyrirsætan sé trúlofuð en hún
hefur ekki viljað staðfesta það.
Stjörnur
án foreldra
1 Bill Clinton Móðir Bills Clint-on, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seta, varð ekkja þegar hann var ungur
að árum. Hann var sendur til afa síns og
ömmu. Annar forseti Bandaríkjanna var
einnig ættleiddur, Gerald Ford.
2 Marilyn Monroe
Faðir Marilyn
Monroe lést þegar
hún var smábarn
og móðir hennar yfir-
gaf hana. Leikkonan
sáluga bjó á fjölmörgum fósturheimil-
um og átti afar erfiða æsku.
3 Steve Jobs Líffræðilegur
faðir Steve Jobs var
Abdulfattah Jandali,
múslimi frá Sýrlandi.
Móðir Steve, Joanne
Schieble, varð uppsigað
við foreldra sína vegna sambandsins og
gaf hann til ættleiðingar við fæðingu.
4 John Lennon
Þegar John Lennon
fæddist var faðir
hans víðsfjarri.
Nánar til tekið á
herskipi. Hann sendi
móður John peninga en hvarf svo árið
1944 í nærri heilt ár. Þegar hann sneri til
baka var Lennon litli komin í umsjá
móðursystur sinnar.
5 Ingrid Bergman
Ingrid Bergman átti
erfið uppvaxtarár.
Móðir hennar dó
þegar hún var þriggja
ára og þegar hún var
þrettán ára lést faðir hennar. Hún var
send til frænku sinnar, sem lést sex
mánuðum seinna.
Ófætt barn bjarg-
aði lífi Alex Band
Ekki hrekkur The Calling
kom nýverið saman eftir
nokkur hlé. Band blæs á allar
sögusagnir um að árásin hafi
verið hluti af auglýsinga-
herferð.
topp 5