Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Side 2
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Fékk 9,5 milljóna
arð aF krimmunum
n Yrsa Sigurðardóttir hagnaðist ágætlega á glæpasögum sínum í fyrra
Y
rsa Sigurðardóttir, glæpa-
sagnahöfundur og verk-
fræðingur, fékk 9,5 milljóna
króna arð út úr eignarhalds-
félagi sínu Yrsa Sigurðar-
dóttir ehf. í fyrra. Þetta kemur fram
í ársreikningi félagsins sem sam-
þykktur var á stjórnarfundi félagsins
þann 17. september síðastliðinn.
Yrsa hefur verið einn söluhæsti
rithöfundur landsins síðustu árin og
er talað um hana sem „drottningu“
glæpasögunnar á Íslandi á meðan
helsti keppinautur hennar á met-
sölulistanum er yfirleitt Arnaldur
Indriðason sem nefndur er „kóngur-
inn“. Kvikmyndaréttur að bókum
hennar hefur verið keyptur og hefur,
meðal annarra, Sigurjón Sighvats-
son, fjárfestir og framleiðandi, fest
kaup á réttinum til að kvikmynda
eina af sögum hennar.
Þau Yrsa og Arnaldur eru stund-
um tekin sem dæmi um höfunda
sem hafa mikið upp úr því fjárhags-
lega að skrifa bækur enda er mark-
aður fyrir verk þeirra beggja í öðrum
löndum. Bæði eru þau mikilvægir
höfundar fyrir forlögin sem gefa
bækur þeirra út, Veröld og Forlag-
ið, og verða til afleidd störf af skrif-
um þeirra auk talsverðra tekna fyrir
útgáfurnar.
Tæplega 14 milljóna hagnaður
Í fyrra gaf Yrsa út bókina Kulda og
seldist hún vel, í tæplega 20 þúsund
eintökum, að sögn Bjarna Þorsteins-
sonar, útgefanda Yrsu hjá Veröld.
Bókin var ofarlega á metsölulistan-
um það árið. Af öðrum glæpasögum
Yrsu má nefna bækurnar Ég man þig,
Brakið, Sér grefur gröf og Auðnina.
Þó Yrsa hagnist ágætlega á skrifun-
um kemst hún ekki með tærnar þar
sem Arnaldur Indriðason hefur hæl-
ana en einkahlutafélag hans, Gilhagi
ehf., skilaði nærri 140 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári og nema eign-
ir þess tæplega 480 milljónum króna.
Hagnaður eignarhaldsfélags Yrsu
nam tæplega 14 milljónum króna í
fyrra. Eignir félagsins nema rúmlega
21 milljón króna. Á móti þessum
eignum félagsins eru skuldir upp á
tæplega sjö milljónir króna. Félagið
stendur því vel.
Hagnaður félags Yrsu jókst nokk-
uð á milli áranna 2011 og 2012 en
hann nam tæplega tíu milljónum
króna árið 2011. Enginn arður var
hins vegar greiddur út úr félaginu
það árið líkt og í fyrra. Út frá árs-
reikningum félags Yrsu sést að hún
hefur ekki áður greitt sér út viðlíka
arð og í fyrra.
Von á bók í nóvember
Bjarni Þorsteinsson segir að von sé á
nýrri bók frá Yrsu í nóvember næst-
komandi en hún og Arnaldur gefa
alltaf út bækur fyrir jólin. „Hún kem-
ur með bók núna sem mun koma
út upp úr miðjum nóvember,“ segir
Bjarni.
Ný bók Yrsu fjallar um fjölskyldu
sem snýr aftur til síns heima eftir
íbúðaskipti en kemst þá að því að
fólkið sem var var í húsinu þeirra
er horfið, samkvæmt því sem seg-
ir í kynningu á haustbókum Ver-
aldar. Við þann þráð fléttast frekari
þræðir. Lögreglukona rekst á gamla
skýrslu sem eiginmaður hennar gaf
þegar hann var barn og telur hún að
skýrslan geti útskýrt af hverju hann
reyndi að fremja sjálfsvíg. Fjórir
einstaklingar fara í vinnuferð að Þrí-
drangavita: kona, tveir smiðir og
ljósmyndari en nóttina áður hafði
ljósmyndarann dreymt draum sem
gekk út á að aðeins tveir af þeim
fjórum myndu eiga afturkvæmt. Svo
segir: „Þessir ólíku þræðir fléttast
saman í óhugnanlega sögu þar sem
ekkert er sem sýnist.“ n
„Eignir félagsins
nema rúmlega 21
milljón króna.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Arðbærir krimmar Bækur
Yrsu Sigurðardóttur seljast vel
og gat hún tekið 9,5 milljóna
króna arð út úr einkahlutafélagi
sínu í fyrra. Mynd: © dV ehf / SigTryggur Ari
2 Fréttir 27.–29. september 2013 helgarblað
Merkur maður
fallinn frá
3 Hugo Þórisson barnasál-fræðingur var borinn til grafar
á þriðjudag. Hann
lést að morgni 15.
september eftir
þriggja ára bar-
áttu við ólæknandi
krabbamein. Hugo
var einn virtasti
sálfræðingur og fyr-
irlesari landsins. Í
DV á miðvikudag
lýstu nokkrir við-
mælendur reynslu sinni af Hugo og
kom hann mörgum þeirra til hjálpar.
„Hann er einn af merkustu mönnum
sem ég hef kynnst,“ sagði Erla Hlyns-
dóttir í samtali við DV um Hugo en
hann kom henni til aðstoðar á ung-
lingsárunum.
Háskólinn borg-
aði 6,6 milljarða
2 Jóhann Halldórsson, sem átti hús Íslenskrar erfðagrein-
ingar í gegnum
eignarhaldsfé-
lög á Íslandi og
Tortola, fékk um
milljarð króna
í söluhagnað
frá Háskóla Ís-
lands í síðustu
viku eftir að
hafa selt Vís-
indagörðum
Háskólans höf-
uðstöðvar Íslenskrar erfðagreiningar
við Sturlugötu. Þetta herma heim-
ildir DV og greindi blaðið frá þessu
á mánudag. Kaupverð hússins var
um 6,6 milljarðar króna samkvæmt
heimildum blaðsins.
Rambar á barmi
gjaldþrots
1 Fjárhagsleg endurskipulagn-ing Eiðs Smára Guðjohnsen
knattspyrnumanns, sem greint var
frá í DV í des-
ember 2009,
gekk ekki eftir
og hefur þrota-
bú Kaupþings
í Lúxemborg
krafið hann um
800 milljónir
króna, sem
hann á ekki til.
Nú er svo kom-
ið að hluti launa
Eiðs hjá belgíska liðinu Club Brugge
rennur beint til þrotabús Kaupþings.
„Ég held að hann sé bara gjald-
þrota,“ sagði einn af viðmælendum
DV um Eið Smára á mánudag.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Vinnubrögð
ráðherra
vekja furðu
Í umræðum í miðstjórn ASÍ á mið-
vikudag var meðal annars fjallað
um þá ákvörðun félagsmálaráð-
herra að segja upp formönnum
vinnumarkaðsráða víðs vegar um
landið þrátt fyrir að fjögurra ára
skipunartíma þeirra sé ekki lok-
ið. Vöktu þessi vinnubrögð furðu
miðstjórnarmanna og því kom
sú eindregna afstaða fram í mið-
stjórn ASÍ að ráðherra endurskoð-
aði þessa ákvörðun sína og drægi
hana til baka. Í tilkynningu um
málið á vef ASÍ segir að það geti
ekki „talist ráðlegt að færa starf
ráðanna inn á svið flokkspólitískra
átaka.“
Læðunni ekki
lógað
Matvælastofnun telur ekki þörf
á að fara fram á að frægasta ketti
landsins, læðunni Nuk, verði lóg-
að. Ljóst sé að ekki hafi verið að
flytja læðuna inn til landsins og
að það hafi verið óhapp sem varð
þess valdandi að hún slapp úr
flugvélinni. Frá þessu er greint á
vef stofnunarinnar.
Æsileg og býsna umfangsmik-
il sólarhringsleit var gerð að Nuk
eftir að hún slapp úr einkaflugvél
á Reykjavíkurflugvelli á þriðjudag.
Hún fannst síðan seinnipartinn á
miðvikudag aðeins nokkur hund-
ruð metra frá flugvélinni.