Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Blaðsíða 19
Fréttir 19Helgarblað 27.–29. september 2013
Gæti fengið dauðadóm
n Bresk kona, Andrea Waldeck, smyglaði metamfetamíni til Indónesíu
4
3 ára bresk kona, Andrea Wal
deck, gæti átt dauðadóm yfir
höfði sér eftir að hafa verið
gripin með eitt og hálft kíló
af metamfetamíni í Indónesíu fyrir
skemmstu. Waldeck var handtekin á
hótelherbergi í borginni Surabay, næst
stærstu borg Indónesíu. Samkvæmt
ákæru flutti hún efnin til Indónesíu
frá Kína og voru þau falin í undirfötum
hennar þegar hún kom til landsins.
Í frétt breska blaðsins Mirror kem
ur fram að refsing fyrir fíkniefnasmygl
sé óvíða jafn hörð og í Indónesíu. Rétt
arhöldin yfir Waldeck hófust á þriðju
dag og verður þeim haldið áfram í
næstu viku. Fyrir dómi sagði Waldeck
að kærasti hennar, kínverskur ríkis
borgari, hefði lagt á ráðin um smygl
ið, og greitt henni þrjú þúsund pund,
eða sem samsvarar tæpum 600 þús
und krónum, fyrir að flytja efnin til
Indónesíu.
Í færslu á Facebooksíðu sinni í
júlí síðastliðnum, skömmu eftir að
hún var gripin, segist Waldeck vera
miður sín vegna málsins. „Stuðningur
ykkar skiptir mig öllu. Mér þykir afar
leiðinlegt að hafa valdið ykkur öllum
vonbrigðum.“ Þá sagði hún að bróð
ir hennar væri væntanlegur til Indó
nesíu til að veita henni stuðning.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
breskir ríkisborgarar komast í kast
við lögin í Indónesíu. Fyrir skemmstu
var Lindsay Sandiford, bresk amma,
dæmd til dauða fyrir að smygla miklu
magni af kókaíni til Bali í Indónesíu.
Áfrýjun hennar bar engan árangur og
verður hún að öllum líkindum tekin
af lífi á næstunni. n
einar@dv.is
B
æjarfulltrúinn Keith John
son skaut eiginkonu sína
til bana í desember í fyrra,
beindi svo byssunni að
sjálfum sér og hleypti af.
Í tvo áratugi á undan hafði hann
beitt konuna, Andreu Johnson, ým
iss konar harðræði og kúgað hana
til hlýðni við sig. Lýsingar á mis
notkuninni koma fram í dagbók
sem Andrea hélt meðan á henni
stóð og fannst við húsleit á heim
ili hjónanna – vettvangi glæpsins –
í Compit Hills, nærri enska bænum
Cromer.
Þunglyndi og sjálfsmorðstilraun
Í dagbókarfærslunum, sem nýverið
voru gerðar opinberar að hluta,
kemur meðal annars fram að Keith
breyttist, „eins og djöfullinn sjálf
ur“, í illmenni um leið og parið kom
heim til sín eða var eitt einhvers
staðar. Á öðrum stað segir Andrea:
„Það virðist ekki angra hann hversu
mikið ég þjáist vegna barsmíða
hans, hann mun ekki breytast.“
Vegna þessa þjáðist Andrea af
þunglyndi og reyndi árið 2006 að
svipta sig lífi – en skýringin var
ávallt hulin öðrum en hjónunum.
Sáttafundur dauðans
Hjónin, sem voru barnlaus, höfðu
verið saman í 20 ár þegar voðaverk
ið var framið, en daginn áður sló í
brýnu á milli þeirra vegna þess að
hún hafði hug á að skilja við hann.
Sökum rifrildisins gisti Andrea hjá
vini sínum, Robert Jeans. Daginn
eftir bauð Keith henni til sáttafund
ar á heimilinu og strengdi þess heit
að beita hana engu ofbeldi.
Það var skýringin sem hann gaf
henni, en í reynd hafði hann annað
í hyggju. Keith hafði farið í byssu
skáp hjónanna, þar sem veiðihagla
byssa þeirra var geymd, og beið
Andreu með byssuna að vopni. Er
Andrea mætti til „sáttafundarins“
lét hann til skarar skríða, með fyrr
greindum afleiðingum. Auk dag
bókarinnar fundust bréf frá Keith,
með leiðbeiningum um hvernig
útför þeirra ætti að vera háttað og
hvernig skyldi skipta búi þeirra. Að
mati dánardómstjóra málsins veita
bréfin vísbendingu um að morðið
hafi ekki verið framið í stundar
brjálæði heldur hafi það verið þaul
skipulagt. „Morðið var framið af
ásetningi. Hann tók ákvörðun um
að myrða Andreu og svo sjálfan sig,
og gerði það,“ segir dánardómstjór
inn í samtali við enska fjölmiðla.
Skrímslið bak við grímuna
Fjölskylda Andreu er með böggum
hildar vegna hins voveiflega at
burðar og segja að Andrea hafi ver
ið falleg, elskuleg og litrík mann
eskja sem verði sárt saknað. „Ég er
virkilega sorgmæddur yfir því að
hún hafi þjáðst svo lengi í þögn
inni. Keith Johnson, maðurinn sem
við buðum velkominn inn í líf fjöl
skyldunnar, reyndist vera skrímsli.
Þegar hún reyndi að fara frá hon
um, drap hann hana. Núna sjá
um við, og allir aðrir, hvað var á
bak við grímu hins virta bæjarfull
trúa,“ segir John Chadwick, bróðir
Andreu, og bætti við: „Við finnum
til með fjölskyldu Keith, þar eð hún
er fórnarlamb í þessu máli líka.“ n
Bæjarfulltrúinn var
djöfull í dulargervi
n Keith Johnson misþyrmdi eiginkonu sinni og myrti að lokum
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Á almannafæri
Allt virtist leika í
lyndi þegar hjónin
voru innan um
annað fólk.
Keith Johnson Bæjarfulltrúinn myrti
eiginkonu sína og svipti sig síðan lífi.
Mikil sorg Fjölskylda Andreu segir fjöl-
skyldu Keith líka fórnarlamb í málinu.
Andrea Johnson Sáttafundur eigin-
mannsins reyndist gildra.
„Maður-
inn sem
við buðum vel-
kominn inn í líf
fjölskyldunnar,
reyndist vera
skrímsli.
Dauðadómur Lindsay hlaut dauðadóm fyrir skemmstu í Indónesíu. Önnur bresk kona,
Andrea Waldeck, á hið sama yfir höfði sér.
Tígrisdýr í
stofunni
Ary Borges, brasilískur fjölskyldufað
ir, hefur lagt sig fram við að bjarga
tígrisdýrum, dýrum sem eru í útrým
ingarhættu. Hann býr með fjölskyldu
sinni í bænum Maringa, nálægt
borginni Sao Paulo.
Honum er svo annt um hag dýr
anna að hann hefur tekið nokkur
þeirra inn á heimili sitt, þar sem þau
konan hans búa ásamt dætrum sín
um þremur. Á skjáskoti með frétt má
sjá að meira að segja barnabörnin
eru látin umgangast dýrin, sem gætu
hvenær sem er ráðist til atlögu án
þess að Ary Borges eða nokkur ann
ar óvopnaður fengi rönd við reist.
En Borges, sem bjargaði til dæm
is tveimur dýrum úr sirkus fyrir átta
árum, hefur ekki áhyggjur af því.
Hann hafi aldrei verið hræddur um
að dýrin vinni dætrum sínum mein.
„Maður þarf að sýna þeim virðingu
og ástúð. Þau svara í sömu mynt.“
Þau umgangast dýrin eins og
um hund eða annað húsdýr væri
að ræða. Dóttirin Uraya, starfandi
hundaþjálfari, á tveggja ára dóttur
og segist ekki óttast um öryggi dóttur
sinnar. „Rayara elskar að leika við
tígrisdýrin. Þetta er alveg óhætt. Ég
myndi aldrei setja hana í aðstæður
þar sem öryggi hennar kynni að vera
ógnað,“ segir hún, ótrúlegt en satt.
„Þau eru hluti af fjölskyldunni – ég
gæti ekki lifað án þeirra.“
Dómurinn
staðfestur
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag
staðfesti á fimmtudag dóm yfir
Charles Taylor, fyrrverandi Líber
íuforseta. Hann var á dögunum
dæmdur til 50 ára fangelsisvistar
fyrir margs konar stríðsglæpi.
Lögmenn Taylors héldu því fram
að galli hafi verið á réttar höldunum
og að dómnum yrði hnekkt. Dóm
ararnir sögðu hins vegar að sekt
hans væri hafin yfir allan vafa.
Taylor var meðal annars dæmdur
fyrir að hafa stutt uppreisnarmenn
í Sierra Leone, menn sem frömdu
voðaverk af ýmsum toga; nauðguðu
konum, drápu menn og þvinguðu
börn til að gegna hermennsku, svo
eitthvað sé nefnt.
Lyftari til sölu
Still R60-25 rafmagnslyftari,
gámagengur, árgerð 2005 í
mjög góðu standi til sölu.
Lyftigeta 2,5tonn, lyftihæð
4,48 metrar, þrískipt mastur
og hliðarfærsla.
Verð aðeins kr 1,9 milljón
með vsk.
Nánari upplýsingar
í síma 660-6470