Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 27.–29. september 2013 Helgarblað
Haustbúðir fyrir 30+
- spænskunámskeið, göngur og jóga
Vetrarbúðir fyrir 60+
- persónuleg stefnumótun, göngur og spænskunám
Sumarbúðir fyrir 14-18 ára
Útskriftarferðir fyrir framhaldsskóla og háskóla
Skipulag gönguferða fyrir hópa
Gönguferðir um Jakobsveginn
– leiðina til Santiago de Compostela
Tungumálaskólar á Spáni
www.mundo.is
Mundo ferðir kynna:
Nánari upplýsingar hjá margret@mundo.is. eða í síma 691 4646.
71,5 milljónir í arð
n Lögmannsstofa Kristins Hallgrímssonar úr S-hópnum
E
igendur lögmannsstofunnar
Advel, sem er meðal annars í
eigu Kristins Hallgrímssonar,
fengu 71,5 milljónir króna í arð
út úr einu af rekstrarfélögum lög-
mannsstofunnar. Þetta kemur fram
í ársreikningi félagsins Advel - lög-
fræðiþjónusta ehf. sem nýlega varð
opinber hjá ársreikningaskrá ríkis-
skattstjóra.
Félagið tapaði rúmlega þrem-
ur milljónum króna á síðasta ári en
samt sem áður var umræddur arður
greiddur út úr félaginu vegna rekstr-
arársins þar á undan. Árið 2011 nam
arðgreiðslan út úr félaginu 45 millj-
ónum króna. Samtals nema arð-
greiðslurnar út úr félaginu því nærri
120 milljónum króna á tveimur
árum.
Lögmannsstofan, sem áður hét
Fulltingi, er einna þekktust vegna
starfa Kristins Hallgrímssonar fyrir
þá Ólaf Ólafsson og Finn Ingólfsson
sem báðir voru meðlimir í S-hópn-
um sem keypti Búnaðarbankann
árið 2003. Kristinn sá nánast alfar-
ið um lögfræðilega hlið þeirra við-
skipta sem síðar sættu harðri gagn-
rýni. Síðan þá hefur lögmannsstofa
Kristins unnið fyrir þessa aðila og
sá meðal annars um að ganga frá
kaupum á rúmlega tveggja prósenta
hlut í Kaupþingi fyrir hönd katarska
sjeiksins Al Thanis. Embætti sér-
staks saksóknara fór meðal annars
í húsleit á lögmannsstofunni vegna
þeirra viðskipta. Þá er lögmanns-
stofan staðsett í húsi sem er í eigu
Ólafs Ólafssonar við Suðurlands-
brautina. n
ingi@dv.is
Góður arður Arðgreiðslur út úr lögmanns-
stofu Kristins Hallgrímssonar nema samtals
tæplega 120 milljónum króna á tveimur árum.
„Menntahroki“
Bæði fyrrverandi stjórnarfor-
maður og varaformaður stjórn-
ar Íbúðalánasjóðs sögðu á fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd-
ar Alþingis á fimmtudag að rann-
sóknarnefnd um Íbúðalánasjóð
hefði gert of lítið úr reynslu
manna sem stjórnuðu sjóðnum.
Um of hafi verið einblínt á
menntun.
Samkvæmt frétt RÚV sagði
stjórnarformaðurinn þetta til
marks um menntahroka, sem
væri ríkur í Íslendingum. Á fund-
inum var farið yfir skýrslu rann-
sóknarnefndar um Íbúðalánasjóð.
Ríkisstjórnin
fær upplýsinga-
fulltrúa
Sigurður Már Jónsson hefur ver-
ið ráðinn upplýsingafulltrúi ríkis-
stjórnar Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks, samkvæmt
heimildum Viðskiptablaðsins. Sig-
urður Már er fyrrverandi blaða-
maður á Viðskiptablaðinu og var
um skeið ritstjóri þess. Hann hefur
undanfarið séð um viðskiptaum-
fjöllun á fréttavef Morgunblaðsins,
mbl.is. Sigurður Már mun starfa í
forsætisráðuneytinu og hefur störf
1. október næstkomandi, að því er
fram kemur í tilkynningu frá ráðu-
neytinu.
Félag
Bjarna
græddi
375 milljónir
S
jávarsýn, fjárfestingarfélag
Bjarna Ármannssonar,
hagnaðist um tæplega 375
milljónir króna í fyrra. Fé-
lagið á eignir upp á meira
en 3,2 milljarða króna en skuldar
rúman milljarð. Þetta kemur fram
í ársreikningi félagsins sem skilað
var til ársreikningaskrár ríkisskatt-
stjóra þann 19. september síðast-
liðinn.
Sjávarsýn er einna þekktast fyrir
að hafa verið félagið sem Bjarni
notaði til að halda utan um hluta-
bréf sín í Glitni á árunum fyrir
hrunið 2008. Bjarni var bankastjóri
Glitnis þar til í lok apríl 2007. Hann
seldi hlutabréf sín á yfirverði fyrir
um átta milljarða króna þegar hann
hætti í bankanum eftir yfirtöku FL
Group á honum. Eftir hrunið skil-
aði hann svo yfirverðinu sem hann
fékk fyrir bréfin, um milljarði króna.
Mest skuldabréf
Stærsti hluti hagnaðar Sjávarsýnar
er gengismunur, rúmlega 200 millj-
ónir króna, en rekstrarhagnaðurinn
nam rúmlega 180 milljónum.
Eignasafn félagsins er annars
áhugavert en langstærsti hluti ríflega
3,2 milljarða króna eigna þess eru
skuldabréf upp á meira en 2,7 millj-
arða króna. Bjarni er ekki áhættu-
sækinn fjárfestir og hefur haft það
orð á sér í fjármálalífinu að vera mik-
ill skuldabréfamaður. Ekki er tekið
fram hvers eðlis þessi skuldabréf
eru. Skuldabréfaeign félagsins jókst
um nærri milljarð króna á milli ár-
anna 2011 og 2012.
Auk skuldabréfanna á félagið
eignarhluti í öðrum félögum fyrir
tæplega 365 milljónir króna. Félag
Bjarna á meðal annars hlut í fyrir-
tækinu Kælitækni, líkt og DV greindi
frá fyrir skömmu, ásamt félögum í
eigu Erlendar Hjaltasonar og Hjör-
leifs Jakobssonar. Þá á félag Bjarna
einnig hlut í öðrum félögum en þau
eru ekki tilgreind í ársreikningi hans.
Rann saman við annað félag
Í ársreikningi Sjávarsýnar er tekið
fram að árið 2011 hafi félagið
Imagine Investments, sem einnig
var í eigu Bjarna, runnið inn í félag-
ið og verið hluti af því síðan. Það fé-
lag komst í fréttirnar haustið 2009
þegar frá því var greint að Bjarni
hefði komist að samkomulagi við
skilanefnd Glitnis um afskriftir á
rúmlega 800 milljóna króna skuld-
um eignarhaldsfélagsins við bank-
ann. Félagið fjárfesti í 12 prósenta
hlut í norska fasteignafélaginu
Glitnir Property Holding í árs-
lok 2007 fyrir nærri milljarð króna.
Bjarni lagði fram 351 milljón króna
í eiginfjárframlag til að fjármagna
kaupin og veitti Glitnir honum lán
fyrir afganginum af kaupverðinu.
Bjarni tapaði eiginfjárframlaginu
sem hann lagði í viðskiptin og var
veðið fyrir eftirstöðvunum af fjár-
festingunni sem Glitnir hafði lán-
að fyrir í bréfunum sjálfum í Glitni
Property Holding. Veðstaða Glitnis
var því ekki góð.
Bjarni greiddi hins vegar nokkra
tugi milljóna króna upp í skuldina
áður en hún var afskrifuð jafnvel þó
hann hefði ekki þurft að gera það.
Þegar DV ræddi við Bjarna um þetta
mál í september 2009 sagði hann,
aðspurður af hverju hann hefði ekki
bara greitt alla skuldina þar sem
Sjávarsýn ætti nægilega fé til þess,
að slíkt hefði verið „óábyrgt“: „Enda
væri það náttúrulega bara óábyrg
meðferð á fé af minni hálfu að gera
það. Er það ekki?“
Staða Sjávarsýnar er að minnsta
kosti mjög sterk í dag og á félagið
miklar eignir á móti skuldum sín-
um. n
„Enda væri það
náttúrulega bara
óábyrg meðferð á fé af
minni hálfu að gera það.
Milljarða eignir
Eignarhaldsfélag
Bjarna Ármanns-
sonar á meira en
þriggja milljarða
króna eignir og
skuldir félagsins
nema rúmum
milljarði.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
n Sjávarsýn á eignir upp á meira en þrjá milljarða króna
Mótmæli við
sendiráð
Mótmæli voru haldin við danska
sendiráðið á fimmtudaginn. Voru
það nokkrir ME- og FM- (síþreytu og
vefjagigtar) sjúklingar sem tóku sig
saman um að mótmæla meðhöndl-
uninni á M.E.-sjúklingnum Karinu
Hansen í Danmörku fyrir utan
sendiráðið. „Karina, 23 ára kona, var
tekin í nauðungarvistun og hefur lítil
sem engin samskipti við fjölskyldu
sína vegna þess að nokkrir læknar
telja ME vera sálvefrænan sjúkdóm
sem hún „spinnur upp“ með ímynd-
unarafli sínu,“ segir á heimasíðu ME
félags Íslands.