Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Blaðsíða 38
38 Menning 27.–29. september 2013 Helgarblað
Pólsk leiklistar-
verðlaun
Leikstjórinn Manfred Beilharz er
handhafi Stanislaw Ingacy Witki-
ewicz-leikhúsverðlaunanna sem
afhent voru í Varsjá á dögunum.
Manfred er listrænn stjórnandi
Borgarleikhússins í Wiesbaden og
stofnandi leikhúshátíðarinnar New
Plays from Europe (Ný evrópsk
leikverk) sem haldin er í júní í
Wiesbaden á ári hverju. Hátíðin er
íslensku leikhúsfólki vel kunn en
þar hafa fjölmörg íslensk verk verið
á fjölunum – nú síðast Axlar-Björn
leikhópsins Vesturport. Verðlaunin
eru veitt á hverju ári í Póllandi og
er Manfred Beilharz þakkað fyrir
að hafa stutt undir pólska menn-
ingu á síðustu árum.
Friður og stríð í
Gljúfrasteini
Fyrsti fyrirlestur vetrarins á
Gljúfrasteini – húsi skáldsins –
verður í höndum Jóns Ögmund-
ar Þormóðssonar lögfræðings.
Hann sendi frá sér bókina Friður
og stríð: hafsjór af tilvitnunum,
fyrr á árinu. Jón Ögmundur mun
segja frá gerð bókarinnar, sem
hefur að geyma fimmtán hundruð
tilvitnanir um frið og stríð frá ýms-
um tímum og löndum. Í verkum
Halldórs Laxness má finna tölu-
verðan fjölda tilvitnana um stríð
og frið enda koma stríðstímar við
sögu í mörgum þeirra. Skáldsagan
Gerpla er lesendum Halldórs ef-
laust ofarlega í huga í þessu sam-
bandi en í henni er m.a. deilt á
stríð og þau tortímingaröfl sem
þeim fylgja. Fyrirlestur Jóns Ög-
mundar Þormóðssonar hefst
klukkan 16.00, sunnudaginn 29.
september. Aðgangur er ókeypis.
Kjarvalssýning í
St. Pétursborg
Yfirlitssýning á verkum Kjarvals
var opnuð í einu helsta safni Rúss-
lands, Þjóðarsafninu í St. Péturs-
borg í gær, 26. september 2013. For-
seti Íslands, herra Ólafur Ragnar
Grímsson opnaði sýninguna form-
lega. Mennta- og menningarmála-
ráðherra Rússlands, Vladimir Med-
insky var viðstaddur opnunina.
Þjóðarsafnið (State Russian
Museum) hefur yfir að ráða glæsi-
legum sýningarsölum í tveimur
hallarbyggingum í miðborginni og
er Kjarvalssýningin haldin í annarri
þeirra, Marmarahöllinni. Listasafn
Reykjavíkur hefur unnið náið með
Þjóðarsafninu í St. Pétursborg við
undirbúning sýningarinnar.
Á þessu ári eru 70 ár liðin frá
því formlegt stjórnmálasamband
komst á milli Íslands og Rússlands
(þá Sovétríkjanna). Tímasetning
sýningarinnar tengist 70 ára afmæli
þessara tímamóta.
Einn af konunum
n Þröstur Leó safnar hári og vill hárlengingar
Þ
röstur Leó Gunnarsson fer
með hlutverk ekkjunnar og
heimilisharðstjórans Bern-
hörðu Alba í uppfærslu leik-
stjórans Kristínar Jóhannes-
dóttur.
Hús Bernhörðu Alba er eftir
leikskáldið Federico García Lorca,
samið stuttu fyrir borgarastyrjöldina
á Spáni á tímum Franco og skömmu
fyrir andlát skáldsins.
Hreppti bitastætt kvenhlutverk
Verk Lorca hverfist eingöngu um
kvenpersónur og kvenlýsingar
skáldsins magnaðar. Það hefur því
vakið athygli að leikstjórinn skyldi
velja karlmann í aðalhlutverkið.
Þröstur segist vinna í góðum
hópi kvenna og lofar samstarfið.
Hann segist ekki finna fyrir þykkju
vegna þess að hann hafi hreppt bita-
stætt aðalkvenhlutverk sem ekki er á
hverju strái í leikhúsinu.
„Nei, alls ekki. En flestir verða
mjög hissa þegar þeir heyra að ég
hafi verið valinn í hlutverkið.
Þegar þetta kom upp þá rak ég
sjálfur upp stór augu og varð for-
viða. En ég sannfærðist, þetta er
áhugaverð tilraun sem gengur alveg
upp, kannski sérstaklega af því að að
margra mati var Lorca að skrifa um
Franco einræðisherra.“
Hengdur upp á þráð
Þröstur myndi seint kallast fínlegur
karlmaður. Eða metró-sexúal eins
og einu sinni varð hugtak yfir karla
sem unna tísku og snyrtimennsku.
Hann hefur fremur yfirbragð
verkamanns að vestan. Enda er
hann að vestan og eins og frægt er
orðið drekkur Þröstur ekki einu
sinni vatn. Hann drekkur bara kaffi.
Svart. „Það hafa fáeinir komið að
máli við mig sem hafa sagt mér að
þeir drekki ekki heldur vatn.
Vatnið var svo vont fyrir vestan,
það var bara ónýtt vatn með pödd-
um í. Það þurfti að sjóða það. Ég
hætti bara að drekka vatn,“ seg-
ir hann og fær sér sopa af kaffi og
brosir.
Hann segist eins og hengdur
upp á þráð í korseletti og kjól.
Hann ætlar að safna hári og vill
endilega fara í hárlengingar, þá
þarf hann að raka sig á hverjum
degi og huga að sléttleika húðar og
kvenlegu yfirbragði almennt.
„Ég mun nálgast hlutverkið á
minn hátt. Ég er ekkert að fara að
búa til neina kvenmannsrödd, ég
er bara í kjól, sem er svolítið spes
upplifun,“ segir hann og hlær.
Finnst þér það ekki bara þægi-
legt?
„Þetta er kjóll og korselett og
allar græjur svo maður er svolítið
eins og hengdur upp á þráð,“ segir
hann og virðist meina upplifun-
ina bókstaflega. „Ég mun þurfa að
raka mig á hverjum degi og vera
dug legur huga að útlitinu,“ segir
hann og strýkur yfir grófa skegg-
broddana.
Safnar hári og vill fá
hárlengingar
„Það var strax ákveðið að hafa mig
ekki með hárkollu, því þá hefði ég
litið út eins og dragdrottning. Ég
er að safna hári núna, mér finnst
mega setja smá hárlengingar í
mig,“ segir hann og snýr kvenlega
upp á hárendana. Ég held að það
geti verið spennandi.“
Þú getur líka farið í augn-
háralengingu bendir blaðamaður
á, svo Þröstur fari ekki á mis við þá
nýjung í bransanum. Það er reynd-
ar svolítið óþægilegt.
„SO?“ segir Þröstur.
Handritið þvælt og ónýtt
Frumsýning nálgast óðum og
Þröstur er nýbúinn að læra línurn-
ar. „Við eigum eftir fjórar vikur af
æfingatímabilinu. Ég var að klára
að læra þetta allt í gær.
Ég er alltaf mjög lengi að læra
textann. Ég er eini karlmaðurinn
í sýningunni og þær eru búnar að
sleppa handritinu fyrir tveimur
eða þremur vikum. Mitt handrit er
hins vegar orðið ónýtt, ég er búinn
að vera að þvælast svo mikið með
það á æfingum. Sulla á það kaffi
og svona.“
Einn í kvennafans
Með Þresti leikur magnaður hóp-
ur kvenna, Charlotte Bøving,
Esther Thalía Casey, Hanna Mar-
ía Karlsdóttir, Harpa Arnardóttir,
Hildur Berglind Arndal, Lovísa Ósk
Gunnarsdóttir, Maríanna Clara
Lúthersdóttir, Nína Dögg Filippus-
dóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir
og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Hann
segir marga spyrja hvernig það sé
nú eiginlega að vinna eingöngu
með konum. Flestir virðist halda
að það sé mögnuð þolraun á mörk-
um hins mannlega.
„Ég skil eiginlega ekki hvað
fólk er að fara, þegar það spyr mig
hvernig það sé nú að vinna bara
með konum. Það er bara frábært
og þetta eru miklir listamenn sem
ég ber virðingu fyrir.“
Hann ber mikið lof á
leikstjórann.
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri
er einn sá allra besti leikstjóri sem
ég hef kynnst. Hún hefur óvanalega
sterka sýn sem hún miðlar vel.“ n
Leikhús
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
„Ég er að safna hári
núna, mér finnst
mega setja smá hár-
lengingar í mig.
Í góðum hópi kvenna
Þröstur er ánægður með leikhópinn.
Ekki metró-sexúal
Þröstur myndi seint kallast
fínlegur maður en mun nú þurfa
að setja sig í kvenlegar stellingar
í hlutverki Bernhörðu Alba.