Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Page 10
LögregLan skoðar 50
10 Fréttir 27.–29. september 2013 Helgarblað
L
ögreglan á höfuðborgar
svæðinu hefur nú til skoðun
ar gögn þar sem fram koma
lýsingar á meintum óeðli
legum samskiptum Jóns
Baldvins Hannibalssonar, fyrrver
andi þingmanns og ráðherra, við
nokkrar nafngreindar og ónafn
greindar konur þegar þær voru á
barnsaldri. Um er að ræða nokkur
aðskilin dæmi frá seinna hluta síð
ustu aldar. Kynferðisbrotadeild lög
reglunnar hefur málið til skoðun
ar. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, segir að
hann geti ekki tjá sig um málið í
samtali við DV. „Við getum ekki tjáð
okkur um einstök mál eða staðfest
eitt né neitt. Við bara megum það
ekki, hvort svo sem menn heita Jón
Baldvin eða eitthvað annað,“ segir
Stefán aðspurður.
Lýsingar úr skólum
Lýsingarnar sem um ræðir ná
allt aftur til ársins 1966 þegar Jón
Baldvin var 27 ára gamall kennari
í Hagaskóla. Frásagnirnar eru í
nokkrum tilfellum hafðar orð
rétt eftir þeim konum sem um
ræðir, meðal annars lýsing á sam
skiptum Jóns Baldvins við stúlku
í Hagaskóla. Stúlkan var ungling
ur á þeim tíma sem samskipti Jón
Baldvins við hana eru sögð hafa átt
sér stað en hún er miðaldra í dag.
Konan er nafngreind í skjalinu og
hafði DV samband við hana til að
fá staðfestingu á frásögninni. Hún
svaraði hins vegar ekki skilaboð
um blaðsins í gegnum Facebook
en staðfesting á því að konan hafi
séð skilaboðin um erindið barst
sendanda. Sú lýsing gengur út á að
stúlkan hafi iðulega verið látin sitja
eftir í tímum hjá Jóni Baldvini og
þar hafi hann nuddað á henni axl
irnar, strokið vanga hennar, fitlað í
hári hennar og nuddað sér upp við
hana. Samkvæmt orðum konunnar
hætti Jón Baldvin að láta hana sitja
eftir vegna þess að hún sagði vin
konu sinni frá meintu athæfi hans
og sú mun hafa staðið upp og mót
mælt því að stúlkan sæti eftir næst
þegar Jón Baldvin tilkynnti henni
um þessa refsingu. Aðrir bekkjar
félagar stúlkunnar, sem einnig
vissu af málinu, munu einnig hafa
staðið upp og mótmælt þeirri fyr
irætlun Jóns Baldvins. Auk kon
unnar er umrædd vinkona hennar
einnig nafngreind í skjalinu. Þá er
einnig að finna í skjalinu sem lög
reglunni barst frásögn sem sögð
er komin frá fyrrverandi nemanda
við Menntaskólann á Ísafirði þar
sem Jón Baldvin var skólameistari
á árunum 1970 til 1979. Sú stúlka
er ekki nafngreind í skjalinu. DV
er hins vegar með upplýsingar um
nafn hennar en blaðið hefur heim
ildir fyrir því að hún vilji ekki tjá sig
opinberlega um málið.
Bendir á lögmann sinn
Jón Baldvin segir aðspurður um
málið, þegar blaðamaður hringir
í hann, að hann ætli ekki að tjá sig
um það og bendir á lögmann sinn.
„Ef þú vilt elta ólar við þetta og trú
ir þessu sjálfur þá vil ég ég ráðleggja
þér að hafa samband við lögmann
minn. Ég þakka fyrir samtalið.“
Bréf og háskólamálið
Jón Baldvin hefur verið talsvert í
umræðunni á liðnum vikum vegna
þeirrar niðurstöðu Háskóla Íslands
að endurskoða ákvörðun um að
hann yrði gestakennari við stjórn
málafræðiskor skólans í námskeiði
um smáríki, líkt og til stóð. Ástæð
an er sú að deilur komu upp varð
andi ætlaða ráðningu Jóns Baldvins
vegna umdeildrar fortíðar hans en
kynferðislegar bréfasendingar hans
til barnungrar frænku eiginkonu
hans komust í hámæli eftir að Nýtt
Líf birti bréfin í fyrra. Athygli vekur
að nokkur bréfanna voru send í
Hagaskóla, skólann sem stúlkan var
í á þeim tíma en ekki heim til henn
ar, af einhverjum ástæðum. Stúlk
an kærði Jón Baldvin á sínum tíma
en ríkissaksóknari felldi málið nið
ur, jafnvel þó talið væri að bréfa
sendingarnar kynnu að falla undir
tiltekna lagagrein almennra hegn
ingarlaga, þar sem ekki var talið að
íslenskt ákæruvald hefði lögsögu í
málinu: Jón Baldvin sendi bréfið frá
Washington og stúlkan opnaði bréf
ið í Venesúela. Þá var einnig bent á
það í rökstuðningnum fyrir niður
fellingunni, sem Nýtt Líf sagði frá,
að samkvæmt venesúelskum lögum
þyrfti slíkt blygðunarbrot að vera
framið á „almannafæri“ til að telj
ast vera lögbrot. Málinu var því vís
að frá.
Frásögn frá Edinborg
Í skjalinu er einnig frásögn frænku
Bryndísar Schram, eiginkonu Jóns
Baldvins, þar sem hún greinir frá
því að hún hafi heimsótt þau til
Edinborgar þegar Jón var þar við
nám. Stúlkan stundaði þá nám í MR
en starfaði sem flugfreyja í sumar
fríi sínu, samkvæmt skjalinu. Ekki
er greint frá nafni konunnar en út
frá frásögninni er ekki erfitt að kom
ast að því um hverja ræðir. Bryndís
var ekki heima þegar stúlkan kom
til Edinborgar en hún gisti samt
hjá Jóni Baldvini og Aldísi, elstu
dóttur þeirra Bryndísar. Miðað við
frásögn konunnar vaknaði hún við
það um nóttina að uppi í rúminu
hjá henni var Jón Baldvin nakinn.
Samkvæmt frásögninni rak hún Jón
Baldvin í burtu með látum og yfir
gaf hann herbergið. Önnur frá
sögnin snýst svo meðal annars um
það að Jón Baldvin hafi verið með
óviðurkvæmilega hegðun við aðra
systurdóttur Bryndísar Schram,
þegar hún var barn. Fleiri slíkar frá
sagnir er að finna í skjalinu.
Sagt hugarburður
Þegar sendibréfamálið kom upp
í fyrra skrifaði Kolfinna Baldvins
dóttir, dóttir Jóns Baldvins, grein
þar sem hún sagði að ásakan
ir þess efnis að faðir hennar hefði
átt í kynferðissambandi við margar
konur í fjölskyldu hennar og aðr
ar konur væru komnar frá Aldísi
systur hennar: „Þetta hefur bitn
að á föður okkar með því að dóttir
hans hefur spunnið upp sögur um,
að hann hafi misnotað hana unga,
og að við yngri systur hennar höfum
mátt þola slíkt hið sama. Samkvæmt
þessum sjúklegu hugarórum hefur
faðir hennar átt mök við því sem
næst allar kvenpersónur innan fjöl
skyldunnar, lífs sem liðnar, barn
ungar jafnt sem eiginkonur annarra
fjölskyldumeðlima, fyrir utan vin
konur hennar og skólasystur.“
Umræddar lýsingar renna hins
vegar stoðum undir að málið sé
kannski ekki alveg svo einfalt. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Við bara megum
það ekki, hvort
svo sem menn heita Jón
Baldvin eða eitthvað
annað.
„Ef þú vilt
elta ólar
við þetta og trúir
þessu sjálfur þá vil
ég ég ráðleggja þér
að hafa samband
við lögmann minn
n Kynferðisbrotadeild berast upplýsingar um Jón Baldvin Hannibalsson
Segist ekki geta tjáð sig Stefán Eiríksson segist ekki getað tjáð sig um rannsóknina.
Skoðar málið Kynferðisbrotadeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
skoðar nú mál tengt Jóni Baldvini
Hannibalssyni sem byggir á lýsingum
sem ná nokkra áratugi aftur í tímann.
ára gamLar Lýsingar