Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 14
14 Fréttir Helgarblað
„Þessi maður er dáinn,
É
g heiti Friðrik Brynjar. Ég held
ég hafi drepið mann,“ heyrð
ist á upptöku sem spiluð var
í Héraðsdómi Reykjaness á
miðvikudag þegar fram fór
framhald á aðalmeðferð í máli á
hendur Friðriki Brynjari Friðriks
syni. Hann er ákærður fyrir að hafa
orðið Karli Jónssyni að bana í fjöl
býlishúsi að Blómvangi á Egilsstöð
um í vor. Báðir bjuggu þeir í hús
inu. Friðrik skýldi sér með úlpu
þegar hann mætti fyrir dóminn og
sat niðurlútur og fylgdist með réttar
höldunum nánast allan tímann.
Átakanlegt Neyðarlínusamtal
Í upptökunni sem spiluð var fyrir
dómnum mátti heyra átakanlegt
símtal Friðriks Brynjars til Neyðar
línunnar kvöldið sem hann er sak
aður um að hafa orðið Karli að bana.
„Ég held ég hafi drepið mann,“ heyr
ist hann segja aftur á upptökunni
og var augljóslega í miklu uppnámi.
Þegar starfsmaður Neyðarlínunn
ar spyr Friðrik hvað hafi gerst sagði
hann á upptökunni: „Hann réðst á
mig, ég kýldi hann eitt hnefahögg og
hann datt niður og ég dró hann út á
svalir. Þessi maður er dáinn, þessi
maður er dáinn,“ segir hann svo
og virðist vera í miklu áfalli. „Hann
reyndi að kyssa mig,“ segir hann svo
og neitar að athuga með manninn
þegar starfsmaður Neyðarlínu biður
hann um það. „Nei, ég vil ekki fara
til hans.“
Líklega með áfengiseitrun
Fyrsta vitnið sem kom fyrir dóminn
greindi frá því að alkóhólmagn í lík
ama Friðriks Brynjars um nóttina
hefði verið afar hátt samkvæmt niður
stöðum rannsókna, eða líklega yfir
þremur prómillum. Þegar áfengis
magn í blóðinu væri það hátt þá væri
talað um að fólk væri með áfengiseitr
un. Venjulega sé þó áfengismagn ekki
reiknað svo langt aftur í tímann líkt og
gert var í þessu tilfelli. Tvær blóðpruf
ur voru teknar með tveggja klukku
stunda millibili úr Friðriki Brynjari
eftir að lík Karls fannst.
Mikill ofsi og ofbeldi
Fyrir dóminn kom einnig þýskur
réttarmeinafræðingur sem sagði
að fórnarlambið hefði dáið í kjöl
far mikils blóðsmissis. „Aðallega
út í brjóstholið eftir að op var kom
ið á hjartahvolfið,“ sagði hann fyrir
dómi en fórnarlambið var með
92 stungusár á líkamanum. „Við
erum að tala um alls 92 hnífsstung
ur sem veittar voru með miklum
ofsa og ofbeldi,“ sagði réttarmeina
fræðingurinn og sagði mikið afl
hafa þurft til að veita fórnarlamb
inu þessa áverka. Til að mynda
hefðu fyrstu stungurnar farið í
gegnum brjóstbeinið en til þess
hafi þurft mikið afl. Einnig fund
ust brot úr hnífnum í höfði fórn
arlambsins en ljóst þykir að ger
andinn hafi haldið áfram að beita
hnífnum eftir að það brotnaði úr
honum.
Eigi ekki við rök að styðjast
Ein vinkona hins látna bar vitni
símleiðis. Hún sagði Karl hafa verið
einfara sem alist hefði upp hjá aldr
aðri móður sinni í torfbæ. Hún og
eiginmaður hennar hefðu þekkt
hann til margra ára og þeim verið
vel til vina. Hún vissi ekki til þess
að hann ætti sér neina óvildar
menn. „Þetta var einstaklingur sem
gerði ekki flugu mein, hjálpsamur
og indæll drengur,“ sagði hún fyrir
dómi. Við fyrri hluta aðalmeðferðar
bar Friðrik þær sakir upp á Karl að
hann hafi umrætt kvöld talað ósið
lega um átta mánaða dóttur Frið
riks. „Þetta sló mig mjög illa þegar
ég heyrði þetta. Ég tel að þetta eigi
ekki við nein rök að styðjast,“ sagði
hún. Hún sagði einnig að Karl hefði
oft í gegnum tíðina gist inni á heim
ili hennar þar sem hafi verið börn
og unglingar á ýmsum aldri, en
aldrei hefði hún séð neitt sem benti
til þess að hann hefði barnagrind.
„Nei, ég mótmæli þessu eindreg
ið. Þetta er ekki satt. Það hefði verið
búið að koma í ljós. Ég hef umgeng
ist fólk sem hefur ýmsa hegðunar
eiginleika. Ég hefði átt að vera búin
að sjá það.“
Segir hann hafa
verið mjög ölvaðan
Sambýliskona Friðriks Brynjars
kom einnig fyrir dóminn. Dómari
gerði henni ljóst að vegna náinna
tengsla við ákærða bæri henni ekki
skylda að bera vitni. Hún kaus samt
sem áður að bera vitni um kvöldið
örlagaríka. „Ég kýs að tjá mig,“ sagði
hún. Sambýliskonan bar að Friðrik
Brynjar hefði verið mjög ölvaður
umrætt kvöld. Þau hafi farið í heim
sókn til vinnufélaga hans þar sem
hann hafi verið að drekka en svo
hafi hundur vinnufélagans bitið
hann í fingurinn og hann þurft að
leita sér aðstoðar lækna vegna þess.
Þegar heim var komið fór Friðrik
Brynjar út í þeim tilgangi að viðra
hund þeirra. Hann hafi svo komið
til baka um einum og hálfum tíma
síðar og þá í fylgd lögreglu. „Hann
var orðinn mjög fullur þegar hann
kom heim,“ sagði hún. Sambýlis
konan vitnaði um það að hann
hefði verið í sömu fötum þegar
hann kom heim og þegar hann fór
út. Hann hafi klætt sig úr buxunum
inni í eldhúsi og skilið þær eftir á
gólfinu. Hann hafi verið með nokk
ur læti þegar lögregla hafði beðið
hana um símanúmer hans og ekki
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
n Átakanlegt símtal Friðriks Brynjars í Neyðarlínuna n Ákærður fyrir að verða Karli Jónssyni að bana
„Við erum
að tala
um alls 92
hnífsstungur
sem veittar voru
með miklum
ofsa og ofbeldi
„Þetta var
einstak-
lingur sem gerði
ekki flugu mein,
hjálpsamur og
indæll drengur
Þessi maður er dáinn“