Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Blaðsíða 9
Inngangur.
Introduction.
A. Mannfjöldinn.
État de la population.
1. Mannfjöldinn í heild sinni.
Population totale.
Mannfjöldaskýrslurnar eru teknar eftir skýrslum þeim, sem prest-
arnir gera um hver áramót eftir að þeir hafa húsvitjað, nema í Reykja-
vík og síðustu árin einnig í Vestmannaeyjum og Hafnarfirði. í Reykja-
vík framkvæmir lögreglustjóri manntalið í lok nóvembermánaðar ár hvert,
en í Vestmannaeyjum og Hafnarfirði bæjarstjóri. Manntalið í Reykjavík
er tekið með nöfnum eins og aðalmanntalið, en í manntalsskýrslunum
frá prestunum er aðeins fólkstalan á hverjum bæ eða húsi. Samkvæmt
skýrslum þessum var mannfjöldinn á öllu landinu:
í árslok 1921 . ... 95 180 í árslok 1926. .. 101730
- — 1922 . . .. 96 386 - — 1927. 103 327
- — 1923 . . . . 97 704 - — 1928 . .. 104 812
- — 1924 . . . . 98 483 - — 1929. . . 106 360
- — 1925. ... 100 117 - — 1930. . . 108 629 (108 080)
Að líkindum eru tölur þessar öll árin heldur Iægri heldur en
mannfjöldinn hefur verið í raun og veru, því að æfinlega mun eitthvað
af fólkinu falla undan við ársmanntölin, einkum í kaupstöðum og kaup-
túnum. Við manntalið 2. des. 1930 reyndist mannfjöldinn 108 861, en
við ársmanntalið um sama leyti (prestamanntalið) 108 629 eða aðeins
232 lægri. Er það ekki teljandi munur, en búast má við, að ársmann-
talið hafi þá haft nokkurn stuðning af aðalmanntalinu, sem fór fram um
líkt leyti, svo að það hafi orðið hærra en ella. Líkindi eru til (sbr.
næsta kafla), að ef aðalmanntalið hefði ekki farið fram 1930, þá hefði
mannfjöldinn ekki talist hærri en 108 080.