Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Blaðsíða 18
16
Mannfjöldaskýrslur 1926—1930
öfug og þeim fór fjölgandi, er giftusi ungir, og á síðasta tímabilinu
(1926—30) hefur aftur farið á sama hátt, tiltala brúðguma innan 25 ára
hækkað upp í 24<Vo og brúða upp í 50 °/o. Á árunum 1926—30 var
tæpl. af brúðgumunum innan 25 ára og rúml. 4/s innan 35 ára, en
af brúðunum helmingurinn innan 25 ára, og 9/io innan 35 ára.
Þegar tekið er tillit til allra aldursflokka sést líka, að meðalaldur
brúðguma og brúða við giftinguna hefur farið lækkandi fram að 1911 —15,
en eftir það aftur dálítið hækkandi, svo sem eftirfarandi yfirlit sýnir.
Meöalaldur brúöguma og brúöa
Brúögumar Brúöir
1891-95 30.8 ár 28.2 ár
1896-1900 ........... 30.4 — 27.5 —
1901 — 05 30.2 — 27.4 —
1906-10 30.1 — 27.0 —
1911 — 15 29.5 - 26.4 —
1916-20 29.7 — 26.7 —
1921—25 30.3 — 26.8 —
1926—30 30.o — 26.4 —
Ef menn vilja vita, hversu miklar giftingarlíkur eru fyrir menn á
hverju aldursskeiði, þá nægir ekki að athuga, hversu margir af öllum
brúðgumum eða brúðum eru á þeim aldri, heldur verður þá einnig að
taka tillit til þess, hve margir eru á því aldursskeiði utan hjónabands
(ógiftir eða áður giftir), því að eftir því sem þeir eru færri, verða gift-
ingarlíkurnar meiri, ef gengið er út frá einhverri ákveðinni tölu brúð-
guma eða brúða á þeim aldri, og aftur á móti minni því fleiri sem þeir
eru. í 2. yfirliti eru sýndar giftingarlíkurnar í hverjum aldursflokki. Til
þess að geta haft aldursskiftingu fólksins við manntölin til samanburðar
eru tímabilin valin þannig, að manntalið falli sem næst því miðju. Þegar
litið er á síðasta íímabilið sést, að giftingarlíkur eru mestar bæði fyrir
karla og konur á aldrinum 25—30 ára, en minka með aldrinum bæði
upp á við og niður á við. En þar kemur fram sá mikli munur á körl-
um og konum, að á aldrinum 20—25 ára eru giftingarlíkur kvenna tvö-
faldar á móts við giftingarlíkur karlmanna, en þegar kemur yfir þrítugt
verða þær miklu minni, á fertugsaldrinum litlu meir en helmingur og á
fimtugsaldrinum aðeins þriðjungur af giftingarlíkum karla.
Ef borin eru saman tímabilin sést, að þrjú fyrstu tímabilin hafa
giftingarlíkur yngri aldursflokkanna (innan þrítugs) farið mjög vaxandi,
en eldri aldursflokkanna heldur minkandi og gildir það bæði um karla
og konur, en síðar hafa giftingarlíkur kvenna innan þrítugs ekki aukist
og karlmanna á þeim aldri farið töluvert minkandi, einkum á síðasta
tímabilinu, enda hefur meðalaldur brúðguma og brúða hækkað aftur.