Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Síða 18

Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Síða 18
16 Mannfjöldaskýrslur 1926—1930 öfug og þeim fór fjölgandi, er giftusi ungir, og á síðasta tímabilinu (1926—30) hefur aftur farið á sama hátt, tiltala brúðguma innan 25 ára hækkað upp í 24<Vo og brúða upp í 50 °/o. Á árunum 1926—30 var tæpl. af brúðgumunum innan 25 ára og rúml. 4/s innan 35 ára, en af brúðunum helmingurinn innan 25 ára, og 9/io innan 35 ára. Þegar tekið er tillit til allra aldursflokka sést líka, að meðalaldur brúðguma og brúða við giftinguna hefur farið lækkandi fram að 1911 —15, en eftir það aftur dálítið hækkandi, svo sem eftirfarandi yfirlit sýnir. Meöalaldur brúöguma og brúöa Brúögumar Brúöir 1891-95 30.8 ár 28.2 ár 1896-1900 ........... 30.4 — 27.5 — 1901 — 05 30.2 — 27.4 — 1906-10 30.1 — 27.0 — 1911 — 15 29.5 - 26.4 — 1916-20 29.7 — 26.7 — 1921—25 30.3 — 26.8 — 1926—30 30.o — 26.4 — Ef menn vilja vita, hversu miklar giftingarlíkur eru fyrir menn á hverju aldursskeiði, þá nægir ekki að athuga, hversu margir af öllum brúðgumum eða brúðum eru á þeim aldri, heldur verður þá einnig að taka tillit til þess, hve margir eru á því aldursskeiði utan hjónabands (ógiftir eða áður giftir), því að eftir því sem þeir eru færri, verða gift- ingarlíkurnar meiri, ef gengið er út frá einhverri ákveðinni tölu brúð- guma eða brúða á þeim aldri, og aftur á móti minni því fleiri sem þeir eru. í 2. yfirliti eru sýndar giftingarlíkurnar í hverjum aldursflokki. Til þess að geta haft aldursskiftingu fólksins við manntölin til samanburðar eru tímabilin valin þannig, að manntalið falli sem næst því miðju. Þegar litið er á síðasta íímabilið sést, að giftingarlíkur eru mestar bæði fyrir karla og konur á aldrinum 25—30 ára, en minka með aldrinum bæði upp á við og niður á við. En þar kemur fram sá mikli munur á körl- um og konum, að á aldrinum 20—25 ára eru giftingarlíkur kvenna tvö- faldar á móts við giftingarlíkur karlmanna, en þegar kemur yfir þrítugt verða þær miklu minni, á fertugsaldrinum litlu meir en helmingur og á fimtugsaldrinum aðeins þriðjungur af giftingarlíkum karla. Ef borin eru saman tímabilin sést, að þrjú fyrstu tímabilin hafa giftingarlíkur yngri aldursflokkanna (innan þrítugs) farið mjög vaxandi, en eldri aldursflokkanna heldur minkandi og gildir það bæði um karla og konur, en síðar hafa giftingarlíkur kvenna innan þrítugs ekki aukist og karlmanna á þeim aldri farið töluvert minkandi, einkum á síðasta tímabilinu, enda hefur meðalaldur brúðguma og brúða hækkað aftur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Hagskýrslur um mannfjöldaþróun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um mannfjöldaþróun
https://timarit.is/publication/1128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.