Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Blaðsíða 10
8
Mannfjöldaskýrslur 1926—1930
1. Mannfjölgun.
Accroissement de la population.
Samkvæmt ársmanntölunum hefur mannfjölgunin verið svo sem
hér segir:
1926 ......... 1 613 manns eða 16.1 °/oo (af þús.)
1927 ........... 1 597 — — 15.7 — —
1928 ........... 1 485 — — 14.4 — —
1929 ........... 1 548 — — 14.8 — —
. 1930 .......... 2 269 — - 21.3 — —
(1 720) — — (16.2) — —
Fjölgunin 1930, 2 269 manns eða 2l3°/o, virðist vera tortryggilega
mikil, en hinsvegar hefur fjölgunin næsta ár á effir, 1931, verið óvenju-
lega lítil. Þá var mannfjöldinn í árslok samkvæmt ársmanntalinu 109 844
og hefði því fjölgunin það ár átt að vera 1215 manns eða II.2O/00.
Þetta bendir til þess, að ársmanntalið 1930 sé tiltölulega hærra eða
fólkið betur fram talið heldur en bæði árin á undan og eftir. Er það
heldur ekki neitt undarlegt, því að við aðalmanntalið eru gerðar sér-
stakar ráðstafanir til þess að ná öllum á manntalið, en við ársmanntölin
falla æfinlega nokkrir undan án þess að komast í manntalsskýrslur.
En árið 1930 hafa þeir verið færri en ella vegna þess að það hefur
mátt hafa stuðning af aðalmanntalinu. Hin eðlilega mannfjölgun eða mis-
munurinn á tölu fæddra og dáinna var svipuð árin 1930 og 1931, 1 560
fyrra árið, en 1 593 hið síðara, eða samtals bæði árin 3 153. Mismunur-
inn á manntölunum 1929 og 1931 er hinsvegar 3 484 og fer þannig
fram úr hinni eðlilegu mannfjölgun um 331. Ef bæði manntölin eru
álíka nákvæm, hafa því 331 manns átt að bætast við landsfólkið utan
frá á þessum tveim árum. Ef þeirri tölu væri skift jafnt á bæði árin,
og að öðru leyti farið eftir mismun fæddra og dáinna, þá hefði fjölg-
unin 1930 verið 1 720 manns, en 1 754 árið 1931 eða 16.2 °/oo hvort
árið, og eru það miklu eðlilegri tölur. En þá hefði ársmanntalið 1930
ekki verið nema 108 080 eða 781 manns lægra heldur en aðalmanntalið,
sem tekið var um sama leyti, og gefur sú tala til kynna, hve margir
menn muni venjulega falla burtu við ársmanntölin.
Þegar reiknað er með lækkuðu fjölgunartölunni árið 1930, hefur
árleg fjölgun að meðaltali þessi 5 ár veriö 15.4 0/00. Til samanburðar
má geta þess, að árleg fjölgun að meðaltali hefur verið þannig á undan-
förnum árum:
1890-1901 ..... 9.2 0/00 1915-1920 .... 11.8 »/00
1901-1910 ..... 9.1 — 1920-1925 .... 11 8 —
1910 -1915 .... 9.7 — 1925 — 1926 .... 15.1 —
♦