Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1933, Blaðsíða 25
Mannfjöldaskýrslur 1926—1930
23
Það mætti nú ef til vill ætla, að þess gætti meir í kaupstöðunum
heldur en sveitunum, að fæðingum færi fækkandi. En svo er þó ekki,
heldur er þvert á móti fæðingahlutfallið miklu hærra í kaupstöðunum.
Arin 1926—30 komu þannig árlega að meðaltali 28,6 lifandi fædd börn
á hvert 1000 manns í kaupstöðunum (miðað við meðalmannfjölda), en í
sýslunum aðeins 23.7. (Þó er hlutfallið heldur lægra í Reykjavík heldur
en í hinum kaupstöðunum, 27.7 á móts við 30.i). Auðvitað stafar þetta
aðallega af mismunandi aldursskiftingu í kaupstöðunum og sveitunum.
Vegna þess hve kaupstaðirnir vaxa ört, er þar tiltölulega margt fólk á
barneignaraldri, en tiltölulega færra af gömlu fólki.
2. Óskilgetin börn.
Naissances illegitimes.
Af þeim 13 312 börnum, sem fæddust árin 1926 — 30 voru 1924
óskilgetin eða 14.5 °/o. Er það meira en næstu 5 ár á undan, er þetta
hlutfall var 13.5 o/o. En á undanförnum árum hefur þetta hlutfall verið
svo sem sjá má á eftirfarandi yfirliti.
1876—85 voru ósliilgelnir 20.2 % af öllum fæddum
1886—95 -
1895-05 -
1905—15 —
1916-20 -
1921-25 -
1926-30 —
19.3 — - —
14.8 - - -
13.2 — - —
13.1 — - —
13.5 — - —
14.5 - - —
í kaupstöðunum fæðist tiltölulega meira af óskilgetnum börnum
heldur en í sýslunum. Af öllum börnum, sem fæddust í kaupstöðunum
árin 1926 — 30 voru 16.9 o/o óskilgeíin, en í sýslunum aðeins 12.6 o/o.
3. Aldur mæðra við fæðingu.
Ages des accouchées.
Aldur mæðra við fæðingu 1926—30 sést í töflu XIX (bls. 40).
Miðað við 100 konur, er börn fæddu, var aldurskiftingin þannig:
í hjóna- Utan
bandi hjónabands AUs
15—19 ára 1.3 12.1 2.9
20-24 — 16.0 30.3 18.1
15—29 — 27.0 22.9 26.4
30—34 — 26.9 16.1 25.3
35-39 — 19.o ll.l 17.8
1 o — 7.7 3.8 7.1
45—49 — 0.7 0.3 0.6
Ólilgr. aldur 1.4 3.4 1 8
Samtals lOO.o lOO.o lOO.o