Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1963, Blaðsíða 17
Mannfjöldaskýrslur 1951—60
15*
1940 1950 1960
Undir 500 íbúum 2 6 5
500— 999 íbúar 11 12 19
1000—1999 „ 24 22 21
2000—4999 9 8 7
5000—9999 2 3 3
Yfir 10 000 1 1 2
Alls 49 52 57
í þessu hefti Mannfjöldaskýrslna er umdæmaskipting mannfjöldans aðeins
eftir sveitarfélögum og læknishéruðum. Fram að þessu hefur einnig verið sýnd
skipting mannfjöldans eftir prófastsdæmum, prestaköllum og sóknum. Nú er því
sleppt, aðallega vegna þess að umdæmi prestakalla og sókna fylgja ekki nærri
alltaf sveitarfélagamörkum, og er því skipting mannfjöldans eftir kirkjulegum um-
dæmum allmiklum vandkvæðum bundin, eftir að prestar hættu sínum árlegu
manntölum. Hins vegar er gert ráð fyrir, að í væntanlegu hagskýrsluhefti með
niðurstöðum manntalsins 1960 verði tafla, er sýni skiptingu mannfjöldans eftir
kirkjulegum umdæmum.
í töflu 3 á bls. 10—11 er sýnd skipting íbúa kauptúna eftir stærð þeirra, og
þar er enn fremur skrá yíir þau kauptún, sem tahn eru þéttbýlisstaðir 1951—60,
en nokkur kauptún eru aðeins með íbúatölu sum áranna. Á hverjum tíma eru að
myndast þéttbýhsstaðir á dreifbýhssvæði víða um land, og er það undir ýmsum
atvikum komið, hvenær er farið að telja þá til þéttbýlis. Er því ekki um að ræða
skörp mörk milli þéttbýhs og dreifbýhs, og skráin yfir þéttbæhsstaði í töflu 3 er
af þessum sökum ekki einhlít.
B. Hjónabönd.
Marriages.
1. Fjöldi hjónavígslna.
Number of marriages.
Þjóðkirkjuprestar, prestar utanþjóðkirkjusafnaða og héraðsdómarar láta Hag-
stofunni reglulega í té skýrslur um hjónavígslur, sem þeir framkvæma. Er ekki
ástæða til að ætla annað en að skýrslur þessar séu tæmandi. Þær taka ekki til
hjónavígslna, sem framkvæmdar eru erlendis, jafnvel þótt bæði hjóna séu búsett
hér heima, en shkar hjónavígslur munu ekki vera margar árlega. Hjónavígsla út-
lendinga í varnarhðsstöð, sem framkvæmd er af íslenzkum aðila, er ekki tahn
með í mannfjöldaskýrslum Hagstofunnar, en sé annað hjóna íslenzkt er hjóna-
vígslan meðtahn.
Hér fer á eftir tala hjónavígslna ár hvert 1941—60 og hlutfallstala þeirra miðað
við 1 000 íbúa:
1941 1 022 eða 8,4%o 1948 .... 1 162 eða 8,5%,
1942 1 076 „ 8,7 „ 1949 1 077 7,7 „
1943 983 „ 7,9 „ 1950 1 217 8,5 „
1944 .... 993 »» 7,8 „ 1951 1 139 7,8 „
1945 1 037 »» 8,0 „ 1952 .... 1 151 7,8 „
1946 1 040 „ 7,9 „ 1953 .... 1 225 8,1 „
1947 1 121 »» 8,3 „ 1954 .... 1 417 »» 9,2 „