Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1963, Blaðsíða 31
Mannfjöldaskýrslur 1951—60
29*
9. Frjósemi kvenna.
Fertility of women.
Hér á eftir er sýnt, hve margar af hverjum 1 000 konum í hjónabandi og
utan hjónabands í hverjum aldursflokki áttu börn að meðaltali á ári 1926—35,
1936—45 og 1946—55. í stað tölu fæðandi mæðra 1946—55 er notuð tala lifandi
fæddra barna í hverjum aldursflokki mæðra, en það er I reynd jafngildar tölur.
Þessi tímabil eru valin þannig, að aðalmanntal falli á miðju livers þeirra, en tala
kvenna í hverjum aldursflokki samkvæmt aðalmanntali er látin jafngilda meðal-
mannfjölda tímabilsins. — Frjósemishlutfallið, þ. e. árleg tala lifandi fæddra barna
mæðra á aldrinum 15—49 ára, miðað við hvert 1 000 allra kvenna á landinu á
þessu aldursskeiði, reyndist vera 115 á 10 ára tímabilinu 1946—55.
Lifandi fœdd börn af hverjura 1000 konum
í hjónabandi Utan hjónabands AIls
Aldursfl. raóður 1926—35 1936—45 1946—55 1926—35 1936—45 1946—55 1946—55
16—19 ára ............. 519 607 516 17 24 47 62
20—24 ............... 374 388 361 43 64 104 193
25—29 ............... 310 250 259 45 64 89 194
30—34 „ 245 184 193 43 51 74 157
35—39 .............. 172 135 125 36 34 43 101
40—44 ................. 95 64 51 18 15 17 40
45—49 ................. 10 7 5 2 2 1 4
16—49 ára 198 158 168 29 39 61 115
10. Aldur feðra.
Father’s age.
í töflu 17 (bls. 27) er lifandi fæddum börnum skipt eftir aldursflokkum föður
Hefur slík tafla ekki komið áður í Mannfjöldaskýrslum Hagstofunnar.
Skýrslur þessa heftis um lifandi fædda 1955—60 eru unnar í skýrsluvélum
með vélspjöldum, sem í voru gataðar upplýsingar frumskýrslna um fæðingar og
áður höfðu verið notaðar til upptöku nýfæddra barna í þjóðskrána. Þegar þjóð-
skrá og frumskýrslu bar ekki saman um fæðingartíma foreldra, réð þjóðskráin.
Væru foreldrar barns ekki á sama stað í þjóðskrá 1. des. næst á undan fæðingu,
var aðeins fæðingartími móður tekinn í gatspjaldið. Fyrir börn fædd 1960 var þó
fæðingartími föður tekinn í spjaldið eftir fæðingarskýrslunni, en ekki eftir þjóð-
skrá. Af þessum sökum er fæðingartími fjölmargra feðra talinn ótilgreindur í
töflu 17, og þar sem þeir munu vera talsvert yngri að meðaltali en feður, sem eru
með fæðingartíma í töflunni, gefur hún ekki rétta mynd af aldursskiptingu feðra.
Samt sem áður þótti rétt að birta þessa töflu.
Hér á eftir er sýnt, hvernig 1 000 lifandi fædd börn, skilgetin og óskilgetin,
hvor um sig, skiptast eftir aldursflokkum feðra 1951—55 og 1956—60. Við útreikn-
ing á hlutfallstölum töflunnar er sleppt börnum feðra með ,,ótilgreindan“ fæð-
ingartíma, en samkvæmt framan sögðu má gera ráð fyrir, að eftirfarandi hlut-
fallstölur séu aðrar en fengizt hefðu, ef tekinn hefði verið upp fæðingartími allra
feðra 1951—60.
1951—55 1956—60
Aldursfl. föður Alls Skilgetin Óskilgetin Alls Skilgetin Óskilgetin
15—19 ára ................. 27 3 95 19 3 93
20—24 ..................... 205 140 392 179 139 373
25—29 „ 264 271 243 275 281 243