Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað
„Barnið mitt er
matarfíkill“
„Sumir
munu ef-
laust segja að öllu
megi nú nafn gefa
þegar ég segi að
ég álíti barnið mitt
vera matarfíkil
en það er nú bara
þannig að börn
glíma við þessa
fíkn rétt eins og fullorðnir.“ Þetta sagði
Anna Sigríður Jónsdóttir, móðir ellefu
ára stúlku sem glímir við matarfíkn, í
DV á mánudag. Um þessar mundir er
verið að opna sérdeild á Landspítal-
anum fyrir of þung börn. Ástæðan
er einfaldlega sú að mörg börn eru í
vanda. Tæp tuttugu prósent níu ára
barna eru of þung og tæp fimm pró-
sent þeirra eru of feit. Offita er helsta
og alvarlegasta vandamál 21. aldar-
innar.
Á ekki fyrir
tannviðgerð
„Vinir mínir
spyrja mig
oft hvernig ég geti
lifað á þessum
launum,“ sagði
hin eistneska
Díana Skotsenko,
sem er 29 ára, í
DV á miðviku-
dag. Díana hefur
búið á Íslandi í ellefu ár og vinnur við
heimaþjónustu hjá Reykjavíkurborg
ásamt því að vera í skóla að læra að
verða félagsliði. Díana er með um 170
þúsund krónur í laun á mánuði fyrir
fullt starf og borgar um 95 þúsund
krónur í húsaleigu að frádregnum
húsaleigubótum. Leikskólapláss fyrir
syni hennar tvo kostar um 40 þúsund.
Hún fær borgað meðlag frá ríkinu, 47
þúsund krónur með mæðralaunum,
og standa því eftir 82 þúsund krónur.
Heimsmet endar
með gjaldþroti
Móður-
félag
rekstrarfélags
Bang & Oluf-
sen á Íslandi,
Næstu aldamót
ehf., var úr-
skurðað gjald-
þrota í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í apríl síðastliðnum.
Næstu aldamót ehf. átti félagið Alda-
mót ehf. sem var rekstrarfélag versl-
unar í Síðumúla 21 sem seldi dönsku
Bang & Olufsen-raftækin á Íslandi. Á
árunum fyrir íslenska efnahagshrun-
ið urðu Bang & Olufsen-raftæki að
ákveðnu stöðutákni meðal ákveðins
hóps á Íslandi sem hafði mikla fjár-
muni á milli handanna. Íslendingar
fjárfestu næstmest allra þjóða í heim-
inum í Bang & Olufsen-raftækjum á
árunum 2005 til 2008.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Ný kynslóð
Rafskutlur
-frelsi og nýir möguleikar
Einfaldar í notkun og
hagkvæmar í rekstri
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18, lokað á laugardögum 1. maí til 31. ágúst
Sýningarstjórum listasýningarinnar
Koddu hefur borist hótun um mál-
sókn vegna ljósmyndar Jónasar Björg-
vinssonar af friðarsúlunni í Viðey
sem notuð var í listaverk – samsetta
ljósmynd af tvíkynja mannveru í líki
Bjarna Ármannssonar, með Friðarsúl-
una í bakgrunni. Í bréfi sem lögmaður
ljósmyndarans, Tómas Þorvaldsson,
sendi á sýningarstjórana þann 6. maí
er þess krafist að sýningarstjórarnir
greiði ljósmyndaranum 300 þúsund
króna bætur fyrir að hafa notast við
ljósmynd hans í verkinu. Í svari sýn-
ingarstjóranna kemur meðal annars
fram að verkið sé boðskapur friðar og
kærleika.
Fáar listasýningar hafa vakið jafn
mikla athygli og sýningin Koddu. Þess
hefur meðal annars verið krafist að
verkinu Fallegasta bók í heimi verði
eytt. Verkið er til sýnis í svörtu viðar-
búri í Alliance-húsinu á Granda.
Warhol líka hótað
Í bréfi lögmannsins er þess krafist að
ljósmyndaverkið verði tekið af heima-
síðu Nýlistasafnsins, fjarlægt úr sýn-
ingarrými þess, sem og úr öllum sýn-
ingarskrám og þær afturkallaðar sem
þegar hefur verið dreift, viðkomandi
plakötum eytt og hætt verði við notk-
un ljósmyndarinnar af hálfu Koddu í
kynningarskyni í öllum miðlum. Held-
ur lögmaðurinn því fram að um sé að
ræða brot á höfundarréttarlögum sem
og brot á sæmdarrétti höfundar.
Þá er sagt að sýningarstjórarnir hafi
farið með rangfærslu þegar þeir sögðu
listamanninn Andy Warhol hafa ver-
ið heimilt að nota ljósmyndir í eigin
þágu. Það hafi honum ekki verið heim-
ilt, enda hafi hann fengið á sig og verið
hótað málsóknum í mörgum tilfellum.
Í bréfinu kemur einnig fram að verði
sýningarstjórarnir ekki við beiðninni
innan tveggja daga muni ljósmyndar-
inn leita réttar síns fyrir dómstólum.
Tilkall til friðar
Ásmundur Ásmundsson, listamað-
ur og einn sýningarstjóranna, segir
að þau hafi ekki tekið þessari hótun
um málshöfðun alvarlega. Aðspurður
hvort það sé ekki mikil framkvæmd
að fjarlægja verkið úr öllum sýningar-
skrám og eyða því hvar sem það finnst
segir Ásmundur að sýningarstjórun-
um detti ekki til hugar að fara eftir slík-
um fyrirmælum.
Í bréfi frá sýningarstjórunum,
þeim Ásmundi Ásmundssyni, Hann-
esi Lárussyni og Tinnu Grétarsdóttur,
sem DV hefur undir höndum segir að
grunnhugmynd verksins Nafnlaust sé
boðskapur friðar og kærleika. Í því hafi
í bestu trú verið notuð einföld kynn-
ingarmynd af Friðarsúlunni sem birst
hefur hér og þar á veraldarvefnum.
Skilningur þeirra sé sá að bakgrunnur
verksins sé listaverk í eigu Yoko Ono,
landsmanna allra og í raun mann-
kynsins alls, sem öllum sé heimilt að
nota til að koma friðarboðskap á fram-
færi. „Nú hefur þriðji aðili gert sérstakt
tilkall til yfirráða yfir Friðarsúlunni
sjálfum sér til framdráttar og vill gera
Friðarsúluna ásamt þeim boðskap
sem hún stendur fyrir að féþúfu,“ segir
í bréfinu.
Bjóða „afnotagjald“
„Við erum ekkert að bíða eftir við-
brögðum, við erum bara að pæla í
einhverju öðru,“ segir Ásmundur
þegar hann er spurður hvort þau hafi
fengið svar við bréfi sínu. Hann seg-
ir ljósmyndarann og lögfræðinginn
misskilja verkið. „Eins og kemur fram
í bréfinu tala þeir um að við séum að
sýna mynd eftir Jónas en það er auð-
vitað algjör della. Þeir eru að misskilja
þetta. Við erum að sýna mynd sem við
gerðum. Þannig að það er alveg fárán-
legt að segja að hann hafi gert mynd-
ina af Bjarna Ármannssyni.“
Sýningarstjórarnir bjóðast í bréfi
sínu til þess að borga tíu þúsund króna
„afnotagjald“ til Jónasar og Tómas-
ar. Verði því hafnað bjóðast þeir til
að breyta verkinu með þeim hætti að
allur bakgrunnur myndarinnar verði
fjarlægður með stafrænni tækni. Eftir
muni einungis standa Friðarsúlan sem
og leðurblökur sem flögra í kringum
friðargeislann og tákn fyrir geislavirkni
í fjöruborðinu. Telja sýningarstjórarn-
ir að ómögulegt sé að ganga lengra í
breytingum á verkinu. Í lok bréfsins
kemur fram að þau vonist eftir jákvæð-
um viðbrögðum, boðskapur friðar sé
eitt af brýnustu málum samtímans.
„Nú hefur þriðji
aðili gert sérstakt
tilkall til yfirráða yfir
friðarsúlunni sjálfum sér
til framdráttar og vill gera
Friðarsúluna ásamt þeim
boðskap sem hún
stendur fyrir að féþúfu.
Hótað málsókn
vegna friðarsúlu
n Sýningarstjórum Koddu hefur borist hótun um málsókn
n Þess er krafist að ljósmyndaverki verði eytt úr öllum sýningarskrám
n Segja ljósmyndara gera tilkall til yfirráða yfir Friðarsúlunni
Verði eytt Þess er krafist að þessu verki verið eytt úr sýningarskrám, það fjarlægt úr
sýningarrými Nýlistasafnsins og notkun ljósmyndarinnar verði hætt á öllum miðlum.
Hótað málsókn Fáar listasýningar hafa vakið jafn
mikla athygli og sýningin Koddu, nú hefur sýningar-
stjórunum verið hótað málsókn. mynd SigTryggur ari
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Sagðist hafa banað konu:
Með lík í
skottinu
Kona um tvítugt fannst látin í far-
angursgeymslu bifreiðar við Land-
spítalann í Fossvogi á áttunda
tímanum á fimmtudagskvöld. Karl-
maður, sem ók bílnum, vísaði á líkið.
Maðurinn, sem lögreglan segir að sé
um tvítugt, var handtekinn en hann
sagðist hafa orðið stúlkunni að bana
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu.
Málsatvik eru óljós enda rann-
sókn málsins á algjöru frumstigi og
veitir lögreglan ekki frekari upplýs-
ingar um það að svo stöddu. Mikill
viðbúnaður var við Landspítalann
vegna málsins. Lögreglan girti vett-
vanginn af með hvítum skilrúmum.
Eftir að tæknideild og rannsóknar-
menn höfðu verið að störfum í rúm-
lega klukkustund var lík konunnar
fært úr farangursgeymslunni og flutt
á brott. Bifreiðin var flutt af vettvangi
skömmu síðar en hún er af gerðinni
Mitsubishi Galant. Skráður umráða-
maður bifreiðarinnar er samkvæmt
Ökutækjaskrá Credit Info 25 ára
karlmaður en ekki liggur fyrir hvort
hann er maðurinn sem lögreglan
hefur í haldi.