Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 4
4 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað Fékk sekt fyrir að leggja í stæði fyrir fatlaða: Ósátt við Bílastæðasjóð „Ég er bara alls ekki sátt við þetta og finnst þetta vera valdníðsla,“ segir Brynhildur Magnúsdóttir sem fékk 10 þúsund króna sekt frá Bílastæðasjóði á dögunum. Sektina fékk hún fyrir að leggja í stæði á Fríkirkjuvegi í Reykja- vík sem borgaryfirvöld vilja meina að sé ætlað fötluðum. Brynhildur er ekki sammála og telur sig hafa lagt bíl sín- um fyrir aftan stæði sem merkt er fötl- uðum og bendir á myndina sem fylgir þessari frétt, máli sínu til stuðnings. Stæðið er hvorki afmarkað með bláum lit í götunni né með ámálaðri hjóla- stólamynd eins og oft einkennir stæði fyrir fatlaða. Einunigs er skilti við stæð- ið sem gefur til kynna að það sé ætlað fötluðum. Brynhildur sendi Bílastæðasjóði tvö andmælabréf vegna málsins, þar sem hún krefst þess að sektin verði felld niður. Hún fékk synjun í bæði skiptin. Í bréfunum segist Brynhildur með- al annars hafa gert ráð fyrir því að skilt- ið væri fyrir miðju stæðisins, því ekki sé merkt hvar stæðið byrjar eða endar. Þrátt fyrir tvær synjanir ætlar Brynhildur ekki að gefast upp. „Ég reyndar borgaði þetta svo sektin færi ekki upp í hundrað þúsund krónur, en ég er samt ekkert sátt við þetta fyrir því.“ Bjarki Kristjánsson, rekstrarstjóri Bílastæðasjóðs, segir að umrætt stæði sé hellulagt og því greinilega afmarkað. Í tilviki konunnar hafi hún því vænt- anlega farið inn á hellulagða svæðið. „Stæði fatlaðra eru yfirleitt lengri en venjuleg stæði og yfirleitt er miðað við eina og hálfa bíllengd í svona stæð- um. Það er gert ráð fyrir að það komist stór bíll með lyftu fyrir í stæðinu,“ segir Bjarki. Aðspurður segir hann það ekki endilega venju að stæði fyrir fatlaða séu merkt á götunni, til dæmis með bláum lit, og það hafi ekkert lagalegt gildi. Skiltið sé það eina sem hafi laga- legt gildi. solrun@dv.is Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Verið sýnileg í sumar! – tilvalið í hjólaferðina Varúðarvesti kr. 890 Flísjakki með hettu kr. 6.450Polo bolur kr. 2.190 Skv. staðli EN471 Skv. staðli EN471 Skv. staðli EN471 COOLPASS ÖNDUNAREFNI Tæplega fertugur karlmaður, Pétur Emil Gunnarsson, bíður ákæru fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Vesturlands. Þingfesta átti ákæruna á þriðjudags- morgun. Ekki tókst hins vegar að birta Pétri Emil ákæruna og var hann, eða lögmaður hans, því ekki við- staddur þegar þingfesta átti ákæruna. Þingfestingin gekk því ekki í gegn. Heimildir DV herma að ástæðan fyrir þessu sé sú að Pétur Emil hafi stung- ið af til Bretlands þar sem hann fer huldu höfði. Pétur Emil hefur stundað það upp á síðkastið að selja íslenskum fóta- boltaáhugamönnum miða á leiki með Manchester United í Meistara- deild Evrópu. Hann hefur meðal annars sett sig í samband við fólk á samskiptasíðunni Facebook auk þess sem hann hefur haft samband við það í gegnum síma. Pétur Emil tekur við greiðslu fyrir miðana með því að láta millifæra peninga á sig í gegnum heimabanka. Kaupendur miðanna fá þá hins vegar aldrei afhenta en Pétur Emil heldur söluverði miðana eftir. Hefur hann blekkt fólk með þessum hætti um nokkurt skeið og selt miða á leiki Manchester United gegn Chel- sea, Schalke og Barcelona með þess- um hætti og stungið peningunum svo undan. Ákæran gegn Pétri Emil sem þing- festa átti á þriðjudaginn fjallar þó ekki um þennan meinta fjárdrátt heldur annars konar fjárdráttarmál að sögn Höllu Bergþóru Björnsdóttur, setts sýslumanns á Akranesi. Pétur Emil virðist því hafa verið nokkuð stórtæk- ur upp á síðkastið. Keyptu fjóra miða Eitt fórnarlamba Péturs Emils sem DV ræddi segist hafa keypt miða af honum á úrlistaleik Manchester United og Barcelona, sem fram fer þann 28. maí næstkomandi, á 90 þús- und krónur. Þá keypti kærasta hans einnig miða af Pétri Emil fyrir sama verð, auk bróður hans og vinar. Sam- tals hafði Pétur Emil því 360 þúsund krónur af fjórmenningunum. Öll eru þau miklir stuðnings- menn Manchester United en svo virðist sem Pétur Emil hafi sérstak- lega herjað á eldheita stuðnings- menn Manchester-liðsins og oft átt erindi sem erfiði. Þannig virðast miklir stuðningsmenn liðsins reiðu- búnir að taka nokkra áhættu til að komast á leiki með liðinu í Meist- aradeildinni. Einnig kann að vera að fótboltaáhuginn blindi fólk þannig að gæti ekki nægilega vel að sér þeg- ar kemur að gylliboðum sem tengj- ast Manchester-liðinu. „Ég lagði aleiguna í þetta,“ segir viðmælandi DV, sem er búsettur á Akranesi, auk þess sem einn félaga hans keypti miðann sinn á yfirdrætti. Pétur Emil er uppalinn á Akra- nesi og gekk þar í skóla þegar hann var yngri. Viðmælandi DV segist hafa kært Pétur Emil til lögreglunnar á Akranesi þegar miðarnir á úrlistaleik- inn bárust ekki líkt og rætt hafði ver- ið um. Einkaþotan kom aldrei Önnur fórnarlömb Péturs Emils sem DV hefur spurnir af greiddu honum 75 þúsund krónur fyrir miða á leik með Manchester United í Meistara- deildinni auk flugmiða til þess lands sem leikurinn átti að fara fram í. Þá fylgdi það einnig með að miðarnir ættu að vera í VIP-stúku og að mað- urinn ætti að fá mat meðan á leikn- um stæði. Þá var einum sagt að Pétur Emil ætlaði að bóka fyrir hann far út á leikinn með flugfélaginu Icelandair. Þegar flugmiðinn út hafði ekki bor- ist til mannsins degi áður en leikur- inn átti að fara fram hafði viðkom- andi samband við Pétur Emil. Þá sagði hann það ekki hafa gengið að fá flugmiða með Icelandair til viðkom- andi lands en svo heppilega vildi til að hann þekkti Bandaríkjamenn sem væru á leiðinni með einkaþotu frá Ameríku til Evrópu daginn eftir og að maðurinn gæti bara einfaldlega feng- ið far með þeim út, þeir myndu pikka hann upp á Reykjavíkurflugvelli dag- inn eftir. Fótboltaáhugamaðurinn trúði Pétri Emil og fór út á Reykjavíkurflug- völl daginn eftir – á leikdag. Einka- þota Bandaríkjamannanna kom hins vegar aldrei og maðurinn fór frá Reykjavíkurflugvelli með skottið á milli lappanna og 75 þúsund krónum fátækari. Svikarinn hafði 360 þúsund af vinahópi n Svikahrappur hafði fé af stuðningsmönnum Manchester United n Selur miða á leiki í Meistaradeildinni sem aldrei berast n Bíður ákæru fyrir fjárdrátt n Kærður til lögreglu „Ég lagði aleiguna í þetta. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Herjar á Manchester-menn Pétur Emil hefur herjað á aðdáendur Manchester United á Íslandi og stolið háum fjárhæðum frá nokkrum þeirra. Einn besti leikmaður Manchester-liðsins, Javier Hernandez, sést hér í leik með liðinu. Mynd rEUtErS Ísland berst gegn ofbeldi Ísland varð á miðvikudag á meðal fyrstu 13 aðildarríkja Evrópuráðsins til að undirrita samning um að koma í veg fyrir og berjast gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi, eftir því sem fram kemur í tilkynn- ingu frá utanríkisráðuneytinu. Þetta er fyrsti bindandi alþjóðasamning- urinn sem tekur heildstætt á barátt- unni gegn ofbeldi gegn konum. Samningurinn er lagarammi um vernd kvenna gegn ofbeldi, forvarn- arstarf, saksókn á hendur gerendum og útrýmingu ofbeldis gegn konum og heimilisofbeldis. Eftirfylgni með innleiðingu samningsins í hverju landi fyrir sig er einnig hluti hans. Fastafulltrúi Íslands hjá Evr- ópuráðinu, Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra, undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd á ráðherrafundi Evrópuráðsins, sem nú stendur yfir í Istanbúl í Tyrklandi. Auk Íslands undirrituðu Austurríki, Finnland, Frakkland, Grikkland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Spánn, Svart- fjallaland, Svíþjóð, Tyrkland og Þýskaland samninginn.  Keyrt á konu við Suðurlandsbraut Keyrt var á konu sem var á leið út úr Lyfjaveri á Suðurlandsbraut 22 á miðvikudagskvöld. Þegar konan gekk út á götuna kom bíll akandi og konan lenti fyrir honum. Starfsmaður apóteksins stað- festi þetta í samtali við DV og sagði tvo sjúkrabíla og lögreglu hafa verið fljóta á vettvang eftir að tilkynnt hafði verið um slysið. Talið var að konan hefði ökklabrotnað þegar bíllinn ók á hana. Henni var ekið á slysadeild Landspítalans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.