Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Síða 6
6 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Um tvö þúsund leita til Mæðrastyrksnefndar í hverjum mánuði:
Átta hundruð á einum degi
„Hópurinn hefur breyst. Eldri borg-
urum fjölgar og öryrkjum sem og
einstæðum mæðrum og einstæð-
um feðrum. Útlendingum hefur að-
eins fækkað, það er að segja ein-
stæðum karlmönnum, en við sjáum
fleiri fjölskyldur sem eru af erlendu
beri brotnar,“ segir Ragnhildur Guð-
mundsdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar, um hvaða þjóðfélags-
hópar leiti sér helst aðstoðar hjá
nefndarinnar nú um stundir.
Úthlutun hjá Mæðrastyrksnefnd
fer fram á miðvikudögum og seg-
ir Ragnhildur að jafnaði upp undir
tvö þúsund einstaklinga fá matarút-
hlutun í mánuði hverjum. Miðviku-
dag fyrir páska komu átta hundruð
manns og leituðu sér aðstoðar. Þá
tölu má síðan margfalda með 2,5 til
að fá tölu þeirra einstaklinga sem
njóta góðs af úthlutuninni. Ragn-
hildur segist finna mikið vonleysi
og óöryggi hjá fólki og það sé orð-
ið þreytt á langvarandi erfiðleikum.
„Mín tilfinning er sú að fólki líði illa.
Það er óöruggt og það er vansælt.
Óöryggið er mikið þegar það sér fram
á að geta ekki séð fjölskyldunni sinni
farborða. Fólk með lágmarkstekjur
eða -framfærslu er oft þannig statt
að þegar fer að líða á mánuðinn eru
tekjurnar bara búnar. Við sjáum fleiri
sem búa við slæmar aðstæður.“ Hún
bendir á að meðan verðlagið hækkar
stöðugt standi launin í stað. „Þörfin
fyrir að bæta bæði aðstoð þessa fólks
og koma á jöfnuði er mikil. Húsa-
leigubætur eru lágar miðað við húsa-
leigu sem þarf að borga. Húsaleiga er
oft alveg uppi í toppi og fólki er stillt
upp við vegg hvað það varðar, það á
engra kosta völ,“ segir hún.
„Ég myndi vilja að þeir sem vinna
fulla vinnu þyrftu ekki að koma til
okkar en einnig vildi ég að staða aldr-
aðra yrði bætt. Það var mikið högg
fyrir þann hóp þegar lögin voru sett
2009 og ellilífeyririnn var tekjutengd-
ur við lífeyrisgreiðslur hjá eldri borg-
urum.“
L A U G A V E G I 1 7 8
Sími: 568 9955 - www.tk. is
Opið: mánud-föstud.12-18 - laugard.12-16 - sunnud. LOKAÐ
Erum flutt að
Laugavegi 178
(næsta húsi við frægustu bensínstöð landsins)
BRÚÐKAUPS GJAFIR
20 teg. Söfnunarstell
20 teg. Söfnunarhnífapör
20 teg. Söfnunarglös
iittala vörur - hitaföt o.fl.
Brúðhjón sem skrá óskalistann
hjá okkur fá fallega gjöf og
lenda einnig í lukkupotti
DEUTSCHE BANK
RÉÐ FORSTJÓRA
ACTAVIS n Deutsche Bank hreifst af Claudio Albrecht vegna ráðgjafarstarfa hansn Fulltrúi Landsbankans er stjórnarformaður Actavis Group
Fulltrúar þýska bankans Deutsche
Bank höfðu milligöngu um það að
Dr. Claudio Albrecht var ráðinn
forstjóri Actavis síðasta sumar.
Eins og DV sagði frá í blaði
sínu á föstudag létu þeir Clau-
dio Albrecht og Peter Prock, nú-
verandi aðstoðarforstjóri Actavis,
af störfum hjá þýska samheita-
lyfjafyrirtækinu Ratiopharm árið
2005, viku eftir að þýska blaðið
Stern birti blaðagrein um meint-
ar mútugreiðslur Ratiopharm til
1.000 þýskra lækna. Á þeim tíma
var Albrecht forstjóri Ratiopharm
og Prock fjármálastjóri. Prock var
ráðinn til Actavis síðasta sum-
ar líkt og Albrecht. Áður en þeir
gengu til liðs við Actavis ráku þeir
saman ráðgjafarfyrirtækið Cy-
meth.
Vildi aftur verða forstjóri
Samkvæmt viðtali við Claudio Al-
brecht í þýsku útgáfu Financial
Times, sem bar titilinn Claudio
Albrecht – fall eftir Ratiopharm,
kemur fram að fulltrúar Deutsche
Bank hafi verið mjög ánægðir
með ráðgjafarstörf hans þegar Ac-
tavis tók þátt í baráttunni um yfir-
töku á Ratiopharm ásamt sænska
fjárfestingarsjóðnum EQT, sem
er í eigu sænsku Wallenberg-fjöl-
skyldunnar, en að lokum var Rati-
opharm yfirtekið af ísraelska sam-
heitalyfjafyrirtækinu Teva í mars
árið 2010.
Þannig var Claudio Albrecht
sendur í höfuðstöðvar Ratio-
pharm í Ulm í Þýskalandi til að
kynna yfirtökutilboð Actavis og
EQT og var þar með kominn á
sinn gamla vinnustað þar sem
hann hafði látið af störfum árið
2005. Í viðtalinu segist Claudio Al-
brecht hafa fengið ýmis atvinnu-
tilboð eftir að hann lét af störfum
hjá Ratiopharm. Hann hafi hins
vegar langað að verða forstjóri í
stóru lyfjafyrirtæki og tækifærið
kom loks þegar hann var ráðinn
til Actavis síðasta sumar að frum-
kvæði Deutsche Bank. Fulltrú-
um Deutsche Bank var fullkunn-
ugt um hneykslismálið sem kom
upp hjá Ratiopharm árið 2005
þegar Claudio Albrecht lét þar af
störfum sem forstjóri. Bæði Clau-
dio Albrecht og Peter Prock voru
ráðnir til Actavis án auglýsingar.
Eins og greint var frá í DV síð-
asta föstudag svaraði Actavis ekki
fyrirspurn DV um það hver hefði
ráðið þá Claudio Albrecht og Pet-
er Prock til Actavis og hvort þeim
aðilum hefði verið kunnugt um
að þeir hefðu látið af störfum hjá
Ratiopharm árið 2005 í kjölfar
mútumáls. Svarið við því virðist
hins vegar ekki vera neitt laun-
ungarmál og hefur Claudio Al-
brecht sjálfur svarað því í samtali
við þýsku útgáfu Financial Times
að forsvarsmenn Deutsche Bank
hafi haft frumkvæði að því að ráða
hann til Actavis síðasta sumar
eins og áður kom fram. Hneysklis-
málið hjá Ratiopharm virðist ekki
hafa skipt neinu máli.
Lítil áhrif Björgólfs Thors
DV óskaði einnig eftir því í fyrir-
spurn til Actavis að fá að vita
hverjir sætu í sjö manna stjórn
félagsins. Því svaraði Actavis ekki
frekar en öðrum atriðum sem DV
spurðist fyrir um. Actavis sendi
einungis frá sér yfirlýsingu sem
sést með frétt þar sem fyrirtækið
hótaði að grípa til lagalegra að-
gerða.
Samkvæmt heimildum DV er
Sally Ingleson núverandi stjórn-
arformaður Actavis Group fyrir
hönd Landsbankans. Hún er for-
stöðumaður áhættufjárfestinga
hjá skilanefnd Landsbankans.
Björgólfur Thor Björgólfsson á
tvo fulltrúa í stjórn Actavis Gro-
up. Hann situr sjálfur í stjórn auk
Andra Sveinssonar, fjármálastjóra
Novator og fyrrverandi stjórn-
armanns í Landsbankanum.
Deutsche Bank á síðan þrjá full-
trúa í stjórn en það eru þeir Biense
Visser, sem skráður er til heimilis
í Hollandi, Henri Vanni, skráð-
ur til heimilis í Mónakó, og Steve
Pitts, skráður til heimilis í London
í Bretlandi. Sjöundi stjórnarmað-
urinn er síðan Dr. Claudio Al-
brecht, forstjóri Actavis.
Það vekur athygli að Sally
Ingleson skuli vera stjórnarfor-
maður Actavis Group. Svo virðist
sem Deutsche Bank vilji ekki vera
of sýnilegur í Actavis þrátt fyrir að
bankinn eigi þrjá menn í stjórn.
Einnig sést að Björgólfur Thor
hefur lítil áhrif þar sem hann hef-
ur einungis tvo stjórnarmenn.
1 Hver réð þá Claudio Albrecht og Peter Prock til Actavis og var þeim aðilum
kunnugt um að Claudio Albrecht og
Peter Prock var vikið frá Ratiopharm í
lok árs 2005 vegna mútumála?
2 Ef svo er kom til tals að ráða þá ekki til Actavis vegna þessa máls?
3 Hverjir sitja í núverandi sjö manna stjórn Actavis?
Fyrirspurn til Actavis
Sally Ingleson, stjórnarformaður, fyrir
hönd Landsbankans
Dr. Claudio Albrecht, forstjóri Actavis
Björgólfur Thor Björgólfsson, fulltrúi
Novator
Andri Sveinsson, fulltrúi Novator
Biense Visser, fulltrúi Deutsche Bank
Henri Vanni, fulltrúi Deutsche Bank
Steve Pitts, fulltrúi Deutsche Bank
Stjórn Actavis Group
Yfirlýsing Actavis
Vegna fréttar DV föstudaginn 6. maí:
„Eftir samtöl við fréttamann og frétta-
stjóra DV er ekki hægt að álykta annað en
að blaðið ætli vísvitandi að birta ranga
frétt. Actavis hefur boðið fréttamann-
inum aðgang að gögnum sem sýna fram
á þetta. Fyrirtækið og þeir einstaklingar
sem fréttin fjallar um áskilja sér rétt til að
grípa til viðeigandi lagalegra aðgerða.“
Vildi verða forstjóri Albrecht langaði að
verða forstjóri í stóru lyfjafyrirtæki. Tækifærið
kom þegar hann var ráðinn til Actavis.
„Hann hafi hins
vegar langað að
verða forstjóri í stóru
lyfjafyrirtæki og tæki-
færið kom loks þegar
hann var ráðinn til Acta vis
síðasta sumar að frum-
kvæði Deutsche Bank.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Engin Björgólfsstofa en mætir samt:
„Gleðiefni
að sjá þetta
hús rísa“
Björgólfur Guðmundsson, fyrr-
verandi aðaleigandi Landsbank-
ans, ætlar að mæta á opnunarhátíð
Hörpu sem fram fer á föstudags-
kvöld. Þóra Hall-
grímsson eigin-
kona Björgólfs
staðfesti þetta við
Pressuna: „Jú,
auðvitað mætum
við. Það er gleði-
efni að sjá þetta
hús rísa og þótt
það sé fallegt
núna verður það enn fallegra í haust
þegar allt er tilbúið,“ sagði hún.
Björgólfur ætlaði á sínum tíma
að vera stærsti fjárfestirinn í Hörpu
í gegnum eignarhaldsfélagið Portus
en eftir hrunið 2008 urðu nánast öll
félög í hans eigu gjaldþrota og hann
líka. Þegar góðærið stóð sem hæst
voru meira að segja uppi hugmyndir
um að sérstök Björgólfsstofa yrði í
Hörpu til heiðurs fjárfestinum. Eftir
að Björgólfur varð gjaldþrota fengu
íslenskir skattgreiðendur byggingu
Hörpu í fangið. Kostnaður við fram-
kvæmd hennar hefur farið langt
fram úr fyrstu áætlunum.
Boðið verði upp á
óverðtryggð lán
Nefnd um verðtryggingu skilaði áliti
sínu til Árna Páls Árnasonar, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, á fimmtu-
dagsmorgun. Meðal þess sem nefndin
leggur til er að framboð óverðtryggðra
fasteignalána á lánamarkaði verði
aukið. Í því skyni eigi Íbúðalánasjóður
meðal annars að bjóða upp á slík lán.
Einnig telur nefndin nauðsynlegt að
hvatt verði til sparnaðar vegna kaupa
á fasteign og búseturétti. Eygló Harð-
ardóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, var formaður nefndarinnar.
Það vekur athygli að nefndar-
menn skiluðu þremur sérálitum. Í
séráliti frá Eygló Harðardóttur, Arin-
birni Sigurgeirssyni, Hrólfi Ölvissyni
og Lilju Mósesdóttur kemur meðal
annars fram að þau telji að innganga
í Evrópu sambandið og upptaka evru
sé hvorki forsenda þess að afnema
verðtryggingu á Íslandi né að koma á
stöðugleika í efnahagsmálum.
Ekki gott ástand Ragnhildur Guðmunds-
dóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar,
segir mikilvægt að lágmarkstekjur og
örorkubætur hækki.