Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 10
10 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Vilja meina að leynd hvíli yfir nefndarstörfum Alþingis:
Svara ekki erindum
Lýðræðisfélagið Alda hefur sent
þingmönnum bréf þar sem gerð-
ar eru athugasemdir við þá leynd
sem félagsmenn vilja meina að ríki
yfir nefndarstörfum Alþingis. Málið
tengist því að Lýðræðisfélagið sendi
allsherjarnefnd Alþingis nýlega er-
indi varðandi stjórnlagaþing sem
nefndin hafði til umfjöllunar. Eng-
in viðbrögð bárust frá nefndinni og
málið var afgreitt á Alþingi.
Félagsmenn Lýðræðisfélagsins
gera meðal annars athugasemdir við
það að almennir borgarar hafi ekki
færi á því að fá upplýsingar um efnis-
lega afgreiðslu erinda til þingnefnda,
sem ætla mætti að störfuðu í umboði
og þágu almennings. Að sögn Krist-
ins Más Ársælssonar hjá Lýðræðis-
félaginu hafa einungis tveir þing-
menn svarað bréfinu, þau Birgitta
Jónsdóttir og Þór Saari, bæði þing-
menn Hreyfingarinnar, en þau hafa
talað fyrir auknu gagnsæi á Alþingi.
Birgitta segir róttækar breytingar á
þingsköpum fram undan.
Lýðræðisfélagið spurðist í tölvu-
pósti fyrir um afgreiðslu erindisins
en svarið sem þeim barst frá nefnd-
arritara fyrir hönd Alþingis var svo-
hljóðandi: „Þingnefndir svara ekki
erindum sem þeim berast.“
„Það er verið að breyta þessu í
nýju þingsköpunum sem verið er að
vinna í. Þar er til dæmis lagt til að all-
ir fundir séu opnir á nefndarsviði,“
segir Birgitta Jónsdóttir, þingkona
Hreyfingarinnar. Hún segir að ef fólk
sýni þinginu smá þolinmæði muni
það á næstunni sjá að mjög róttæk-
ar breytingar séu fram undan í nýju
þingsköpunum. Hún telur að í kjöl-
farið verði þingið sjálfstæðara gagn-
vart framkvæmdarvaldinu og að slíkt
sé til góðs. „Ég held að næsta skref sé
svo að opna vefsvæði þar sem fólk
getur komið með athugasemdir á
mál og þannig,“ segir Birgitta sem tel-
ur að ýmislegt muni breytast til betri
vegar með nýjum þingsköpum, sem
hún vonar að verði samþykkt áður en
þingið fer í sumarfrí. jonbjarki@dv.is
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á alla fjölskylduna
Opið virka
daga 11-18
laugardag
11-16
Takkaskór
besta verði
ð
í bænum ?
Stærðir 31-46
kr. 5.495.-
www.xena.is
Grensásvegur 8 - Nýbýlavegur 12 - Sími 517 2040
SKÓMARKAÐUR
Málefni eignarhaldsfélagsins Styrks
Invest, sem var í eigu Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og tengdra aðila, hafa
verið á borði sérstaks saksóknara um
allnokkurt skeið, samkvæmt heim-
ildum DV. Félagið var tekið til gjald-
þrotaskipta í október 2009 og lauk
skiptum á búinu í maí í fyrra. Ekkert
fékkst upp í rúmlega 47,5 milljarða
króna kröfur sem lánardrottnar Styrks
Invest, meðal annars Íslandsbanki,
Landsbanki og þrotabú Baugs, lýstu
í búið.
Styrkur Invest, sem áður hét BG
Capital, er eignarhaldsfélag sem eign-
aðist hlutabréf Baugs, Haga, ISP og
101 Capital í FL Group í apríl. Sam-
tals var þetta um 40 prósenta hlutur.
Langstærstur hluti skulda félagsins
var tilkominn út af þessum viðskipt-
um. FL Group var sem kunnugt er
stærsti hluthafinn í Glitni. Ekki er loku
fyrir það skotið að Styrkur Invest hafi
verið notað til að taka við umrædd-
um hlutabréfum frá félögunum þegar
ljóst var að byrjað var að harðna nokk-
uð á dalnum í íslensku viðskiptalífi.
Sent frá þrotabúinu
Heimildir DV herma að skiptastjóri
þrotabús Styrks Invest hafi, eftir að
hafa skoðað bókhald Styrks, sent mál
félagsins áfram til ákæruvaldsins,
í þessu tilfelli sérstaks saksóknara.
Skiptastjórum í þrotabúum eignar-
haldsfélaga ber að gera slíkt ef þeir
koma auga á mál í búum sem þeir
telja geta flokkast sem lögbrot.
DV hefur ekki heimildir um það
hvort embætti sérstaks saksóknara
hafi tekið mál Styrks til skoðunar. Af
einhverjum ástæðum taldi skipta-
stjórinn hins vegar þörf á því að senda
mál Styrks áfram til ákæruvaldsins.
Styrkur til umfjöllunar
Umtalsvert hefur verið fjallað um
málefni Styrks Invest í íslenskum fjöl-
miðlum upp á síðkastið. Morgun-
blaðið greindi meðal annars frá því
fyrir skömmu að Styrkur Invest hefði
gert tvo framvirka samninga um kaup
á hlutabréfum í FL Group tveimur
dögum eftir að íslenska ríkið hafði yf-
irtekið 75 prósenta hlut í bankanum.
Samningarnir tveir hljóðuðu samtals
upp á rúmlega 14 milljarða króna.
Þá greindi Viðskiptablaðið frá því
nýlega að Styrkur Invest hefði fyrir
bankahrunið gert framvirka samn-
inga við fimm íslensk fjármálafyrir-
tæki um kaup á bréfum Í FL Group.
Lánin fyrir bréfunum komu frá fjár-
málafyrirtækjunum sjálfum. Í blaðinu
sagði að ávinningurinn af þessu fyr-
ir um rædd fjármálafyrirtækin hefði
verið sá að í staðinn fyrir að halda
á bréfum í FL Group sem lækkað
höfðu í verði gátu þau bókfært lán til
Styrks á efnahagsreikning. Í samning-
unum við fjármálafyrirtækin var þó
ákvæði um að þau þyrftu að kaupa
FL-bréfin til baka á tilteknum tíma.
Slík viðskipti teljast vera markaðs-
misnotkun. Hugsanlegt er að tilgang-
ur viðskiptanna sem Morgunblaðið
greindi frá hafi verið þessi.
DV greindi svo frá því fyrir
skömmu að starfsmenn Baugs hefðu
verið í samningaviðræðum við við-
skiptabanka Styrks út af framvirku
samningunum alveg fram að banka-
hruninu 2008.
Styrkur Invest á borði
sérstaks saksóknara
n Skiptastjóri Styrks Invest sendi mál
félagsins til sérstaks saksóknara n Gerði
framvirka samninga sem gætu flokkast
sem markaðsmisnotkun n Ekkert fékkst
upp í 47 milljarða króna kröfur
„Heimildir DV
herma að skipta-
stjóri þrotabús Styrks
Invest hafi, eftir að hafa
skoðað bókhald Styrks,
sent mál félagsins áfram
til ákæruvaldsins
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
6. maí 2011
Sent til sérstaks Málefni Styrks Invest, sem var í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og tengdra aðila, hafa verið
á borði sérstaks saksóknara um nokkurt skeið. mynd BIG
Róttækar breytingar Birgitta Jóns-
dóttir segir róttækar breytingar fram undan
í þingsköpum.
Hræðsla greip
um sig í Hörpunni
Það er engin lognmolla í kring-
um tónlistarhúsið Hörpu því lög-
reglu- og sjúkrabílar voru kallaðir að
byggingunni á fimmtudagskvöldið
þar sem óttast var að gasleki væri í
henni.
Samkvæmt upplýsingum DV fór
einhverjum innandyra að líða illa
og kasta upp og var því byggingin
rýmd. Hinn meinti gasleki kom fram
á nemum við veitingastaðinn Munn-
hörpuna í byggingunni og fór kerfið
í gang. Betur fór þó en á horfðist því
enginn gasleki var í húsinu. Líkleg-
ast er talið að efni notuð við ofn-
hreinsun hafi valdið þessu eftir að
loftræstingu sló út í eldhúsinu og var
hættuástandi aflýst.
Skiluðu fullu um-
slagi af seðlum
Honum hefur væntanlega verið
illa brugðið, manninum sem týndi
nokkur hundruð þúsund krónum í
peningum. Og að sama skapi hefur
hann trúlega tekið gleði sína á ný
þegar þeir komu aftur í leitirnar.
Lögreglan frétti af málinu á
fimmtudagsmorgun þegar hjón á
áttræðisaldri höfðu samband og
sögðust hafa fundið umslag á úti-
vistarsvæði í borginni.
Í því voru allir peningarnir og
einnig kvittun með nafni eigand-
ans. Peningarnir voru því næst sóttir
til heiðurshjónanna og þaðan farið
með þá á lögreglustöð. Síðan var
haft samband við eigandann, mann
á miðjum aldri, og kom hann á lög-
reglustöð í framhaldinu. Hann var
að vonum þakklátur og skildi eftir
fundarlaun sem lögreglan færði
hjónunum heiðarlegu.