Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 13
Fréttir | 13Helgarblað 13.–15. maí 2011 Nýr kjarasamningur á almennum vinnumarkaði — Póstatkvæðagreiðsla er hafin Hafin er sameiginleg póstatkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning Eflingar-stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrennis við Samtök atvinnulífsins fyrir störf á almennum vinnumarkaði. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í ofangreindum félögum sem vinna eftir þessum samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers þessara félaga í mars/apríl 2011. Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá. Fái einnhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í mars/apríl 2011. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 15.00 þriðju- daginn 24. maí en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn. Athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn fyrir lok tíma- frests þá er nauðsynlegt að póstleggja svarumslagið í síðasta lagi föstudaginn 20. maí. En þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á skrifstofu félaganna til kl. 15.00 þriðjudaginn 24. maí. Reykjavík, 10. maí 2011. Kjörstjórn Flóabandalagsins Efling-stéttarfélag Verkalýðsfélagið Hlíf Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Stjórnarmaður játar markaðsmisnotkun kröfur frá Glitni. Hann segir að kröf­ urnar séu að mestu í erlendum mynt­ um og því liggi ekki fyrir hvernig eigi að uppreikna kröfurnar yfir í krónur vegna dóma sem hafa fallið vegna ólögmætis lána í erlendum myntum. „Það er stóra spurningin, hvernig maður á að reikna þetta,“ segir hann.  Skiptafundur er í þrotabúi Ice pro­ perties á miðvikudaginn í næstu viku. Magnús segir að þá muni meðal annars verða rætt um viðskiptagjörninga sem hann telur riftanlega. „Það eru til skoð­ unar ráðstafanir sem gerðar voru innan riftunartíma sem ekki hafa beint ver­ ið til þess fallnar að auka endurheimt­ ur kröfuhafa... Stundum gengur sjálfs­ bjargarviðleitnin aðeins of langt.“ Magnús segist hins vegar ekki hafa fundið vísbendingar um nein möguleg lögbrot sem framið hafi verið í Ice pro­ perties og því hafi hann ekki sent mál félagsins til eftirlitsaðila eða ákæru­ valdsins. n „Sund tók gjarnan virkan þátt í fjárfestingum með öðrum eins og meðfylgjandi dæmi úr fundargerð áhættunefndar Glitnis frá 30. janúar 2008 sýnir. Svo virðist sem Sund hafi tekið á sig tímabundið og áhættulaust hlut í Northern Travel Holding fyrir Fons: „Sund keypti á árinu 2007 um 22% hlut í NTH (Northern Travel Holding) móðurfélagi Sterling, Iceland Express, Astreus o.fl. félaga í ferðaþjónustu. Glitnir fjármagnaði kaupin með 2,8 milljarða láni með gjalddaga í desember. Engar tryggingar voru fyrir láninu aðrar en hinn keypti hlutur. Áhættunefnd var hins vegar kunnugt um sölurétt Sunds og kaupskyldu Baugs á eignarhlutnum. Í lok desember gerist það hins vegar að Fons lýsir því yfir að hann muni kaupa eignarhlut Sunds í NTH í janúar og óskar eftir að fá að yfirtaka ofangreint lán Sunds og leggja eignarhlutinn að veði fyrir láninu. Áður en það gerist (og fyrir áramót) að Fons kaupir bréfin þurfti NTH að leysa til sín hlutinn ásamt láni Sunds hjá bankanum. Það var gert með því að NTH keypti eigin bréf af Sund og haldi áfram í lok janúar þegar Fons kaupir bréfin sbr. hér að ofan. NTH má halda á svona stórum hlut í sjálfum sér ef það liggur fyrir að Fons muni kaupa þau í janúar. Fyrir á Fons 44% í fé- laginu og FL Group með 34%. Í janúar hafa komið fram nýir kaupendur að eignarhlutnum í félaginu. Um er að ræða nýstofnað eignarhaldsfélag í eigu Þorsteins Arnar Guðmunds- sonar forstjóra NTH (50%) og Einars Þórs Sverrissonar (50%). Félagið verður stofnað með lágmarkshlutafé. Óskað hefur verið eftir því að fá 100% fjármögnun á kaupin á eignarhlutnum í NTH. Til tryggingar verði hinn keypti hlutur auk söluréttar á Fons hf.“ Um SUnd úr SkýrSlU rannSóknarnefndar alþingiS Hljóp undir bagga með Fons Össur Skarphéðinsson utanríkis­ ráðherra skorar á ísraelsk yfirvöld að leysa þegar í stað skattfé Palest­ ínumanna til palestínskra stjórn­ valda svo þau geti veitt borgur­ um þjónustu og greitt opinberum starfsmönnum laun. Í kjölfar samnings Hamas­ og Fatah­hreyfinganna um sameigin­ lega bráðabirgðastjórn stöðvuðu Ísraelsmenn í byrjun maí greiðslur á sköttum og tollum sem þeir safna fyrir hönd Palestínumanna. Um er að ræða frystingu á sem nemur um 10 milljörðum íslenskra króna en skattféð er um 70 prósent af tekjum palestínsku heimastjórn­ arinnar. Utanríkisráðherra segir það með öllu ótækt að Ísraelar setjist með þessum hætti á fé sem með réttu tilheyri Palestínumönnum. Þeim beri að greiða það án taf­ ar. Utanríkisráðherra hvetur Ísra­ ela til að feta í fótspor Fatah­ og Hamas­hreyfinganna sem nú hafi grafið stríðsöxina og vinni að því að mynda sameiginlega stjórn. Össur fagnar samkomulagi þeirra og vonast til þess að það verði Pal­ estínumönnum happadrjúgt. Ein­ hliða og ólögleg viðbrögð ísra­ elskra stjórnvalda séu ekkert annað en tilraun til að grafa und­ an samkomulaginu og auka enn á þjáningar óbreytts palestínsks al­ mennings, sem treysti á opinbera og erlenda aðstoð til að eiga fyrir nauðþurftum.  mikael@dv.is Össur Skarphéðinsson stendur með Palestínumönnum: Ísraelsmenn hirða skattféð Össur Skarphéðinsson Vill að Ísraelar feti í fótspor Hamas og Fatah sem hafa grafið stríðsöxina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.