Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 17
Fréttir | 17Helgarblað 13.–15. maí 2011
Bók fyrir
dýravini jafnt
sem mannvini
Kötturinn sem
gerði smábæ
í Bandaríkjunum
heimsfrægan
salka.is • Skipholti 50c • 105 Reykjavík
Sannkölluð sumarkilja
„Sagan af bókasafnskettinum Dewey
er falleg og fyndin og færir manni
aftur trú á hið góða í manneskjunni.
Þetta er bók sem enginn kisuvinur
má láta framhjá sér fara – bókin um
litla kisu sem óvart setti Bandaríkin
á annan endann!”
Anne Kristine Magnúsdóttir
Uppskurðurinn á kvótakerfinu
varpinu er með nýtingarsamningum
við núverandi kvótahafa rofinn mögu-
legur séreignarréttur á óveiddum fiski
í sjó. Að hinu leytinu er mælt með því
að aflaheimildum á snærum ríkisins
verði skipt í „potta“ þar sem annars
vegar eru aflahlutdeildir og hins vegar
bætur og ívilnanir. „Tilgangur þeirrar
leiðar, en pottar eru í þessu frumvarpi
nefndir hlutar, er fyrst og fremst að
tryggja réttlátari skiptingu og dreifingu
aflaheimildanna,“ eins og segir orðrétt
í greinargerð með frumvarpinu.
Strandveiðar festar í sessi
Strandveiðimenn á sumum svæðum
bera sig illa og telja að aflaheimildir og
aðrar reglur sem þeim er gert að hlíta
geri að verkum að varla sé unnt að lifa
af veiðunum. Menn geti hvorki lifað né
dáið eins og einn þeirra orðaði það við
blaðamann.
Í sérstöku frumvarpi er gert ráð
fyrir að auka veiðiheimildir í strand-
veiðum nú þegar. Að öðru leyti er víða
fjallað um strandveiðar í frumvarp-
inu. Í greinargerð um strandveiðihluta
þeirra aflaheimilda sem koma í hlut
ríkisins segir: „Til þessa hluta renna í
upphafi 6.000 lestir af óslægðum botn-
fiski... Þar að auki rennur til þessa
hluta það magn af þorski og ufsa sem
bætist við flokk 2 á hverju fiskveiðiári
og tiltekið er hér á undan, þar til 2.400
lestir af þorski og 600 lestir af ufsa hafa
bæst við strandveiðihlutann. Sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
er heimilt að ákveða í reglugerð að
aukning aflamagns í strandveiðihluta
geti runnið til flokks minni skipa með
strandveiðileyfi. Landaður afli annarra
fisktegunda en þorsks og ufsa í strand-
veiðum skal dreginn af hluta c. í flokki
2, leiguhluta.“
Þetta merkir að til dæmis ýsuafli í
strandveiðum kemur til frádráttar þess
ýsukvóta sem boðinn verður til leigu á
frjálsum markaði. En að öllu saman-
lögðu eru í frumvarpinu fyrirheit um
að veiðiheimildir í strandveiðum auk-
ist á næstu misserum.
Lækkar kvótinn í verði?
Ljóst er að frumvarpið felur í sér um-
talsverðar breytingar á stjórn fiskveið-
anna verði það óbreytt að lögum. Ein-
ar K. Guðfinnsson, Sjálfstæðisflokki,
fullyrti á Alþingi fyrir helgina að breyt-
ingarnar myndu lækka kvótaverð og
hafa afar neikvæð áhrif á fjárhag bank-
anna af þeim sökum.
„Við höfum keypt nánast all-
an okkar kvóta á frjálsum markaði
með tilheyrandi lántökum. Fyrir um
þremur árum keyptum við til dæm-
is 220 tonna kvóta og höfum í raun-
inni aldrei fengið að veiða hann, þar
sem veiðiheimildir fyrirtækisins voru
skertar skömmu síðar um nánast
sömu tölu,“ segir Garðar Ólason í sam-
tali við vef LÍÚ fyrir helgina, en hann
stýrir fiskverkun Sigurbjarnar í Gríms-
ey. „Fyrirtæki eins og okkar, sem hefur
keypt nánast allar sínar veiðiheimildir
á frjálsum markaði, getur varla átt fyr-
ir sér bjarta framtíð verði þessar hug-
myndir að veruleika. Það er bara svo
einfalt.“
Grímsey Útgerð í Grímsey hefur keypt allan sinn kvóta og ekki fengið að njóta hans vegna
skerðinga. Engin framtíð verði frumvarpið að lögum, segir Garðar Ólason.
Undirstöðurnar Útvegs-
menn telja frumvarpið svik
af hálfu stjórnvalda enda
túlka þeir frumvarpið svo að
það skerði rekstrargrundvöll
greinarinnar. Á þetta kann
að reyna eftir miðjan júní.