Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Page 20
Daníel Þorsteinsson og Hallgrímur
Bogason, sem DV greindi frá á mið
vikudaginn að hefðu verið kærðir til
embættis ríkislögreglustjóra vegna
gruns um að þeir hafi framið margs
konar lögbrot, eru í kærunni sagðir
hafa haft fé af fjölda manns. Í kær
unni segir að Hallgrímur og Daní
el hafi tekið við fjármunum frá Ís
lendingunum á þeim forsendum að
nota hefði átt þetta fé í fjárfestingar í
Serbíu .
Um þetta segir orðrétt í kærunni
þar sem rætt er um tiltekin kæru
atriði: „Hallgrímur Bogason og Daní
el Þorsteinsson: Að hafa á tímabilinu
júní 2007 til ágúst 2008 tekið við fjár
munum í nafni SCS Holding ehf. frá
nokkrum aðilum, skuldbundið fé
lagið til endurgreiðslu, en lagt fjár
munina inn á eigin reikninga og
ráðstafað þeim í eigin þágu eða til
annarra þarfa, SCS Holding óvið
komandi. Fjármunir þessir voru því
ekki notaðir til þeirra þarfa/verkefna
sem þeir voru ætlaðir og skiluðu sér
aldrei til félagsins.“
Þeir sem kæra þá Daníel og Hall
grím heita Guðjón Jónsson, Hall
ur Jónas Gunnarsson og Friðrik Atli
Sigfússon. Kæran er nú á borði efna
hagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra
sem væntanlega mun taka hana fyrir
á næstunni.
Lagði tíu milljónir í verkefnið
Eiríkur Stefánsson er einn þeirra
sem lögðu peninga í fasteignaverk
efnið í Serbíu. Eiríkur segist hafa
lagt tíu milljónir króna í verkefnið
árið 2007 og að hann hafi ekki feng
ið þessa peninga til baka. „Þú verður
að athuga það, vinur minn, að þessir
menn, Daníel Þorsteinsson og Hall
grímur Bogason, eru búnir að hafa fé
af fullt af fólki... Þú munt ekki ná að
tala við nema brot af þeim sem þeir
hafa vélað. Fólk skammast sín svo
mikið fyrir þetta,“ segir Eiríkur.
Hann segir að fjárfestingarverk
efnið í Serbíu hafi verið kynnt fyr
ir sér árið 2007 með þeim hætti að
hann ætti að fá 20 milljónir króna til
baka tveimur mánuðum síðar – 100
prósenta ávöxtun á stuttum tíma. „Ég
lét inn í þetta tíu milljónir í nóvem
ber 2007 á þeim forsendum að þeir
myndu borga mér 20 milljónir til
baka í febrúar 2008. Víxillinn var svo
bara framlengdur aftur og aftur og
stendur núna í 39 milljónum.“
Eiríkur segir að frá því að hann
lagði peningana í verkefnið hafi þeir
Daníel og Hallgrímur lofað að greiða
honum víxilinn til baka en hafi ekki
staðið við það. „Þetta eru ekkert ann
að en fjársvik,“ segir Eiríkur.
Tannlæknir tapaði miklu
DV hefur sömuleiðis heimildir fyrir
því að margir aðrir einstaklingar hafi
tapað miklu á þessum fjárfestingum.
Einn þeirra sem tapaði fjármunum
á Daníel og Hallgrími og fasteigna
verkefninu í Serbíu er tannlæknir
sem búsettur er í Mosfellsbæ og heit
ir Guðjón S. Valgeirsson. Heimildir
DV herma að Guðjón hafi tapað fleiri
milljónum króna á viðskiptum sín
um við Daníel og Hallgrím. DV hefur
fyrir þessu öruggar heimildir en náði
ekki í Guðjón til að ræða við hann
um málið fyrir helgi.
DV hefur sömuleiðis rætt við fleiri
aðila sem hafa tapað fjármunum á
viðskiptum sínum við Hallgrím og
Daníel. Þeir vilja hins vegar ekki
koma fram undir nafni í umfjöllun
inni um Serbíuviðskiptin.
20 | Fréttir 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Ármúla 40 • Sími 553 9800 • www.golfoutlet.is
Opnunartilboð á ýmsum vörum!
Erum flutt á jarðhæðina í Ármúla 40
Ryder-lið Evrópu og USA völdu Pro Quip regnfatnað
Jakkar frá aðeins 17.900
Buxur frá aðeins 13.900
Vindjakkar og vesti frá 10.800
Opnunartími:
virka daga 11 til 18
regnfatnaður
Buxur og jakki 19.900
Nýkomin golfsett, driverar,
rescue-kylfur, pokar og fleira
frá þessum þekktu framleiðendum.
Fastfold kerra
Eitt handtak, gullverðlaun í
Todays Golfer.
37.900
Stakar kylfur frá 4.800
Driverar frá 9.900
Pútterar frá 3.990
Golfbolir frá 3.990
Vatnaboltar stk. frá 80
Nýir boltar (15 stk.) frá 1.990
Golfskór verð frá 8.720
ALLT Á GÓÐU VERÐI
ERUM AÐEINS MEÐ NÝJAR VÖRUR!
Golfkerrur frá 5.990
Þriggja hjóla kerra
á stórum dekkjum 19.900
Rafmagnskerrur frá 69.900
Barna- og unglingagolfsett
Barnagolfsett frá 19.990
Stakar kylfur frá 4.300
Einnig driverar, kerrur, pokar,
og hanskar.
Golfsett í poka
Heilt golfsett án poka, grafítsköft,
dömu og herra 34.900
½ sett í poka 26.500
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Keyptu hús í Belgrad
Kærendurnir telja að Hallgrímur og Daníel hafi gerst sekir um meint brot í viðskiptunum
með fasteignina í Belgrad, meðal annars fjárdrátt, umboðssvik, skjalafals og fjársvik,
auk meintra brota á lögum um einkahlutafélög, lögum um bókhald og lögum um árs-
reikninga.
Kærendurnir og Hallgrímur og Daníel áttu saman íslenskt eignarhaldsfélag, umrætt SCS
Holding, sem hélt utan um eignarhlut þeirra í hlutafélagi í Serbíu sem stofnað var utan
um fasteignakaup í Belgrad árið 2007. Fasteignin sem félagið keypti er 2.300 fermetrar
og er í miðborg Belgrad.
Auk þess að kæra þá Hallgrím og Daníel til lögreglunnar hér á landi hafa þeir leitað réttar
síns fyrir serbneskum dómstólum. Málið er því til meðferðar í tveimur löndum.
„Þetta eru
ekkert
annað en
fjársvik“
n Fjöldi manna situr eftir með sárt ennið vegna viðskipta
við Daníel Þorsteinsson og Hallgrím Bogason n Lögðu
fjármuni í fasteignaverkefni í Serbíu n Eiríkur Stefánsson
lagði tíu milljónir í verkefnið sem hann fékk ekki til baka
Í Svartfjallalandi
Daníel Þorsteinsson sést
hér á hótelherbergi í
Svartfjallalandi árið 2007.
SCS Holding ætlaði sér
að stunda fjárfestingar í
landinu en það datt upp
fyrir. Fjöldi manna tapaði
miklu á fjárfestingum með
Daníel og Hallgrími.
„ Þú munt ekki
ná að tala við
nema brot af þeim
sem þeir hafa vélað.