Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 26
26 | Erlent 13.–15. maí 2011 Helgarblað
Nú þegar úrslitakvöld Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovisi-
on, er yfirvofandi er ekki úr vegi að
rifja upp tilgang keppninnar þegar
hún var sett á laggirnar, en það var
einmitt að þjappa saman Evrópu-
þjóðum sem voru enn að sleikja sár
sín eftir hörmungar heimsstyrjald-
arinnar síðari. Söngvakeppninni var
ætlað að verða eitt af sameiningar-
táknum álfunnar, rétt eins og Evrópu-
fánanum og síðar „þjóðsöng“ Evrópu,
Óðnum til gleðinnar, lokakafla 9. sin-
fóníu Beethovens.
Nú berast fregnir frá Brussel þess
efnis að Evrópusambandið ætli sér
að eyða allt að 400 milljónum evra til
þess að styrkja enn frekar samkennd
Evrópubúa, hina svokölluðu Evrópu-
vitund. Ekki er með öllu ljóst hvernig
verður farið að því. Evrópusamband-
ið hefur í raun alltaf gert sitt til að
styrkja Evrópuvitund og er Eurovision
ekki eina dæmið um það.
Friðarhugsjónin til grundvallar
Sumarið 1941, þegar Ítölunum Al-
tiero Spinelli og Ernesto Rossi var
haldið föngnum á eyjunni Ventotene,
var ómögulegt að spá fyrir um örlög
Evrópu, enda stóð síðari heimsstyrj-
öldin þá sem hæst. Þeir Spinelli og
Rossi voru þó vissir í sinni sök þegar
þeir spáðu því að örlög Evrópubúa
yrðu samtvinnuð, hvort heldur undir
ógnarstjórn Adolfs Hitler, eða, eins og
þeir orðuðu það: „Evrópubúar munu
ganga í gegnum byltingarkennda
kreppu og munu eftir það ekki upp-
lifa sig sem aðskilda eða girta af í föstu
ríkisfyrirkomulagi.“
Samkvæmt þessu má draga þá
ályktun að þeir Spinelli og Rossi hafi
talið að það yrðu fyrst og fremst íbú-
arnir sem myndu hafna fornföstu
fyrirkomulagi þjóðríkisins og kjósa
það sjálfir að búa í evrópsku sam-
bandsríki. Lýsa þeir í Ventotene-yfir-
lýsingunni enn fremur að ómögulegt
sé að losna úr kviksyndi hernaðará-
taka í hinu þjóðernismiðaða ríkjafyr-
irkomulagi sem ríkt hafði. Segja þeir
að ef nægilega margir menn í helstu
löndum Evrópu skilji þetta, muni sig-
ur senn falla í þeirra hendur.
Ventotene-yfirlýsingin er óvé-
fengjanlega eitt mikilvægasta skref
Evrópusinna, en að margra mati lagði
hún grunninn að sameiningarhug-
sjóninni í Evrópu. Spinelli er enda
gert hátt undir höfði í Evrópusam-
bandinu, en bygging Evrópuþingsins
í Brüssel er einmitt nefnd eftir hon-
um.
Sameinuð í menningu
Það voru þó ekki íbúarnir sem áttu
frumkvæði að Evrópusamrunanum,
heldur stjórnvöld sex ríkja: Frakk-
lands, Þýskalands, Ítalíu, Lúxem-
borgar, Belgíu og Hollands. Upp-
haflega var stefnt að efnahagslegri
samvinnu, sem myndi síðar smitast
yfir í aðra kima samfélagsins til að
auka samkennd, eða téða Evrópuvit-
und. Væru löndin á meginlandi Evr-
ópu bundin sterkum efnahagslegum
böndum, væri síður líklegt að vopn-
uð átök myndu brjótast út á milli
þeirra á nýjan leik, því þá myndu allir
tapa.
Jean Monnet, sem er í sama flokki
og Spinelli sem einn af feðrum Evr-
ópusamrunans, lét þó hafa eftir sér í
hárri elli, að ef hann mætti byrja upp
á nýtt þá myndi hann byrja á menn-
ingunni. Monnet átti við Evrópu-
vitundina, en grunnurinn að henni
var ekki nógu sterkur að hans mati,
en hann lét þessi orð falla á áttunda
áratug síðustu aldar. Mikið vatn hef-
ur runnið til sjávar síðan þá en dæmi
um vel heppnað verkefni sem ætl-
að var að styrkja Evrópuvitund er til
dæmis ERASMUS, skiptinemaverk-
efni á háskólastigi sem fjölmargir Ís-
lendingar hafa nýtt sér. En af hverju
er þessi aukna áhersla núna á að
styrkja Evrópuvitundina enn frekar?
Hriktir í stoðum sambandsins
„Það er augljóst að það hefur hrikt í
stoðum evrunnar í efnahagskrepp-
unni, og einnig hefur hrikt í stoðum
Schengen-samstarfsins. Einnig varð
mikil breyting á ESB með stækkun-
inni til austurs, þegar tíu lönd gengu
í sambandið árið 2004. Áhrif þeirr-
ar stækkunar hafa ekki enn kom-
ið í ljós að fullu,“ segir Eiríkur Berg-
mann Einarsson, forstöðumaður
Evrópufræðaseturs við Háskólann á
Bifröst. „Það hefur alltaf verið stefna
ESB að til að halda Evrópu saman
þurfi að efla Evrópuvitund. Það má
til að mynda halda því fram, að öll
menntaáætlun sambandsins hafi
það að markmiði að efla þessa vit-
und, að hvetja til samstarfs út fyr-
ir landamæri. Annað sem vert er að
nefna er auðvitað Eurovision-keppn-
in, en hana stofnaði einn nánasti vin-
ur Jeans Monnets, í þeim tilgangi að
efla þessa evrópsku samkennd. Svo
er líka uppgangur öfgahægriflokka á
meginlandinu um þessar mundir og
líklega er einnig verið að vinna gegn
þeirri þróun.“
Göfug hugsjón en
ekki fyrir Ísland
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Morgunblaðsins, er mikill
áhugamaður um alþjóðamál. Hann
lítur svo á að aukin samvinna Evrópu-
þjóða sé eðlileg þróun, en tekur það
skýrt fram að Ísland eigi þar þó ekk-
ert erindi. „Nánara samstarf þjóða á
meginlandi Evrópu er ekki neikvætt
frá mínum sjónarhóli. Þetta eru þjóð-
ir, sem hafa farið með stríð hver á
hendur annarri öldum saman. Evr-
ópusambandið er fyrst og fremst að-
ferð þeirra til þess að tengjast slík-
um hagsmunaböndum innbyrðis, að
frekari stríðsrekstur sé út í hött.
Fyrir tveimur áratugum sat ég á
spjalli við skólasystur annarrar dótt-
ur minnar, sem átti sér rætur í nokkr-
um ólíkum löndum. Ég spurði hana
hverrar þjóðar hún teldi sig vera. Hún
horfði á mig og sagði: „Ég er Evrópu-
búi.“ Það er ekkert neikvætt við það
að fólk í Evrópu líti á sig sem Evrópu-
búa eða að Evrópusambandið reyni
að ýta undir þá sjálfsmynd. Hið eina
sem er neikvætt er, ef það er gert á
kostnað einhvers eða einhverra. Ef
sagt væri við Íra: „Þið eigið ekki að
líta á ykkur sem Íra heldur sem Evr-
ópubúa.“ Þá væri slík nálgun röng að
mínu mati. Evrópusambandið byggir
á göfugri hugsjón og það er mikilvægt
fyrir þjóðirnar á meginlandinu. En
það þýðir ekki að Ísland eigi nokkurt
erindi inn í það. Við höfum ekki farið
með stríð á hendur nokkurri þjóð.“
Sjálfstæðisbylgja um allan heim
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, tekur enn
dýpra í árinni og er þess full-
viss að Evrópusambandið sé í
n Evrópusambandið ætlar að eyða
allt að 400 milljónum evra í að
styrkja Evrópuvitund á næstu árum
n Margt hefur verið notað til þess
hingað til, meðal annars Eurovision
n Vinna gegn efasemdum um evr-
una og uppgangi hægriflokka
Vilja styrkja
EVrópuVitund
„ ...hugsa frekar
um hvað sameini
Evrópuþjóðir, frekar en
að hugsa um hvað sundri
þeim.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Geirsgötu 7b | Verbúð 2, 101 Reykjavík | S. 551 8484
Föstudagskvöld kl. 21.oo
Tónleikar Humania Nota - fjölþjóðleg tónlist
Sunnudagskvöld kl. 21.oo
Bossa Nova kvöld - Brasilíska söngkonan
Jussanam og Árni Heiðar Karlsson djasspíanisti
Aðgangur 1000 kr.
Brennum dökkt gæðakaffi hvern dag
Hnappur
Geitir