Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 32
32 | Viðtal 13.–15. maí 2011 Helgarblað É g hef beðið svo lengi, litið eft- ir þér en þú ert ekki hér. Ég hef vakað lengi, teygt mig eft- ir þér en þú ert hvergi nærri. Hvað munar um annað ár fyrir þann sem hefur misst allt? Hvað mun- ar um annað ár fyrir þann sem er að venjast því að vera einn?“ söng Johnny Logan þegar hann sigraði í Eurovision árið 1980. Þegar full- trúar Íslands í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva, vinir Sigur- jóns Brink, fluttu lagið frammi fyrir ekkju hans, Þórunn Erna Clausen, á dögunum gat hún ekki annað en brostið í grát. Grét stanslaust Þau eru stödd úti í Düsseldorf þar sem vinir Sjonna halda draumi hans á lofti með því flytja lagið hans á lokakvöldinu á laugardaginn. Með í för eru fleiri vinir Sjonna því allir sem tengjast hópnum tengjast hon- um með einum eða öðrum hætti. Þeirra á meðal er frændi hans, Arnór Pálmi Arnarson, sá sem gerði mynd- bandið við lagið Aftur heim og vinn- ur nú að heimildarmynd um þetta ferðalag þeirra. Ferðalag sem hefur mun dýpri merkingu fyrir ferðalangana en hef- ur áður þekkst á meðal íslenskra keppenda. „Þetta er mjög heil- andi. Við tökum stundir að minnsta kosti einu sinni á dag þar sem all- ir eru grátandi. Sérstaklega þegar strákarnir voru að taka upp What‘s Anoth er Year með Johnny Logan. Þá áttum við ótrúlegar stundir. Ég sat með þeim og grét stanslaust á með- an þeir voru að taka þetta upp. Allir eru með hjartað á réttum stað. Það er svo gott að taka þátt í svona verkefni sem snýst ekki um keppnina heldur kærleikann,“ segir Þórunn hás. Gleði og ást í öllum „Ég stend hér úti á götu með vinkon- um mínum, raddlaus eftir gærkvöld- ið,“ segir hún hlæjandi í viðtali við DV. Eftir gleðitíðindin á þriðjudag- inn var ekki annað hægt en að heyra í Þórunni en hún hefur heldur vilj- að halda sig til hlés frá því að Sjonni féll frá. Þegar blaðamaður náði tali af henni var hún að leita sér að ein- hverju að borða með vinkonum sín- um. Eftir allt sem á undan er geng- ið er gleðin nú við völd. „Okkur líður ótrúlega vel. Það er mikil gleði hér í Düsseldorf og gott veður. Við erum öll svo ánægð með að fá að flytja lag- ið hans Sjonna á laugardaginn því það var alltaf draumurinn að fá að láta það hljóma fyrir sem flesta.“ Allt frá byrjun hafði hún trú á laginu og því að það kæmist upp úr undanúrslitunum. En þegar fyrstu fjögur löndin sem komust áfram höfðu verið tilkynnt fór hún að efast. „Þetta voru lönd sem við bjuggumst ekki við að kæmust áfram þannig að ég hugsaði bara með mér að þetta hefði nú verið gaman og það skipti ekki öllu máli hvernig færi. Ég hafði enga trú á að við færum áfram. En við tókum því mjög vel. Það var eng- inn á bömmer. Það er svo mikil gleði og ást í okkur öllum að við myndum aldrei vera þannig. Þannig að við skáluðum fyrir því hvað það hefði verið gaman að vera hér.“ Kærleikurinn sigraði Rússíbanareiðinni var þó hvergi nærri lokið. Spennan magnað- ist með hverju umslaginu en þegar búið var að telja upp níu lönd af tíu sem komust áfram misstu þau alla von. „Enn áttu lönd eins og Tyrk- land, Noregur og Armenía eftir að komast áfram. Þannig að ég taldi að það væru engar líkur á því að við fær- um áfram,“ segir hún og hlær. „Þetta var mjög dramatískt. Ég hefði aldrei trúað því að maður gæti farið svona hratt upp gleðistigann á ævinni. Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir hún og er í skýjunum yfir viðtökunum, en þýska blaðið Der Spiegel sagði með- al annars að strákarnir hefðu ver- ið skærustu stjörnur kvöldsins. „Við gleðjumst yfir því að í þetta sinn hafi kærleikurinn komist áfram en ekki dansatriðin. Það er svo mikill kær- leikur alls staðar. Fólk í Evrópu hef- ur fundið það, enda er kærleikurinn alþjóðlegt tungumál,“ segir Þórunn Erna í samtali við DV. Fékk sjálf heilablóðfall Sögu lagsins þekkja allir sem eru úti. Söguna af þessum unga manni sem féll frá í blóma lífsins, tveimur dög- um áður en hann átti að frumflytja lagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Færri vita þó að Þórunn Erna fékk sjálf heilablóðfall árið 2009. Ein- kennin voru meðal annars svimi og grátkast. Þórunn Erna lýsti þessu at- viki í Nýju Lífi fyrr á árinu og sagði að hún hefði legið með fulla með- vitund uppi í rúmi en líkaminn hefði ekki látið að stjórn. „Kokið og tung- an voru lömuð og tilfinningin var því svona eins og ég væri að kafna. Þar sem líkaminn var lamaður líka reyndist erfitt að draga andann. Ég reyndi og reyndi að mynda orð og biðja um hjálp en ég komi ekki upp orði.“ Móðir hennar var að ræða við Þórunni í símann þegar þetta gerð- ist. Ekki fór á milli mála að eitthvað mikið væri að þannig að hún ákvað að huga að dóttur sinni. Þau Sigur- jón komu svo að Þórunni í þessu ástandi og systir hennar kallaði á sjúkrabíl. Þórunn efaðist þó um að geta haldið svo lengi niðri í sér and- anum og var því farin að velta því fyrir sér hvernig Sjonni kæmist af einn með strákana. Hún var viss um að hún væri að deyja. Ólýsanlegt áfall Í sjúkrabílnum fékk hún súrefni og þá gengu einkennin til baka. Ekkert sást á myndum þar sem blóðtappinn hafði losnað í millitíðinni. Seinna óskaði hún eftir frekari rannsókn- um og þá kom í ljós að hún var með fæðingargalla, annars vegar galla sem olli aukinni blóðtappamynd- un og hins vegar op í hjartanu sem veitti blóðtöppunum greiða leið upp í heila. Þórunn fór því í hjartaþræð- ingu í fyrra þar sem opinu var lokað. Eins og gefur að skilja óttaðist Þórunn Erna um líf sitt um tíma en aldrei hvarflaði að henni að eitthvað gæti komið fyrir Sjonna sem var ástin í lífi hennar, traustur vinur og barnsfaðir. Það var því mikið áfall að koma heim átján mánuðum síðar og mæta einkennisklæddum lögreglumönn- um. Lítil fimm ára hetja hafði hringt í Neyðarlínuna og kallað eftir að- stoð. Faðir hans hafði fengið heila- blóðfall og var látinn langt um aldur fram. Hefur tilgang Eftir fráfall Sjonna sagði Þórunn Erna að hún lægi stundum á gólfinu og gréti svo mikið að hún kastaði upp. En það hjálpaði að hafa eitt- hvað fyrir stafni svo sorgin myndi ekki buga hana. „Málið er að ég hef tilgang, meðal annars tilganginn að fylgja tónlistinni hans Sjonna eftir, tilganginn að sýna börnunum mín- um að ég geti haldið áfram svo að þau geti haldið áfram.“ Það var því engin spurning í huga hennar að halda áfram og taka þátt í Eurovision, ekki aðeins fyrir sig heldur einnig fyrir Sjonna, svo sem flestir fengju að njóta lagsins sem hann hafði svo mikla trú á. Lagið samdi hann en textann skrifaði hún áður en áfallið reið yfir. Það fór þó ekki hjá því að lands- mönnum hefði vöknað um augu þegar þeir heyrðu textann: „Sagt er að ég sé dáldið flón. Ég flýti mér til þín og þrái að heyra. Hlátrasköllin þín á ný er ég aftur til þín sný. Þú ert mér allt. Ó, ó, í, þá finn ég ró, nú kem ég heim. Því að lífið, mín bíður. Komdu með í ferðalag, við saman sjá mun- um bjartan dag. Því tíminn líður hratt. Ég vil bara komast aftur heim. Já, enginn veit hvað koma skal Þegar Þórunn Erna Clausen ákvað að fylgja eftir draumi látins eiginmanns, Sigurjóns Brink, og leyfa laginu hans að vera áfram í Eurovision þrátt fyrir skyndilegt fráfall hans gerði hún það með kærleika og gleði að vopni. Hún fékk vini hans til liðs við sig og þegar Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir náði af henni tali sagði hún að stemningin væri eins og á heimavist. Þau eru í heilunarferli og að minnsta kosti einu sinni á dag gráta þau saman. Um leið og draumurinn er að rætast takast þau á við sorgina. „Þetta var okkar draumur“ „Ég veit að sex ára gamall sonur minn sem varð eftir heima bað til Guðs að við kæmumst áfram. Þegar sjö lönd voru komin áfram lagðist hann á bæn. M Y N D JÓ N A TA N G A r ð A r ss o N xxx xxx xxx xxx
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.