Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Blaðsíða 34
34 Eurovísir13.–15. maí 2011 OP T I C R E Y K J AV Í K S J Ó N TÆ K J AV E R S L U N Gleraugu MAÍ 2011 25% afsláttur TAX FREE* & gott betur! *Gildir þegar keypt eru bæði umgjörð & sjóngler Hamrahlíð 17 Blindrahúsinu 552 2002 Opið alla virka daga milli 9 - 18 Ve rð læ kk un e r á ko st na ð O P TI C R E Y K JA V ÍK „Það verður mikið stuð, glens og grín ef ég þekki þessa fjölskyldu rétt, það verður tekið upp á léttum leikjum og skemmtiatriðum. Við verðum ekki í vandræðum með það,“ segir Nína Dögg Filippusdóttir, leikkona og hálfsystir Sjonna Brink, um risastórt Eurovision-partí sem haldið verð- ur honum til heiðurs í Tjarnarbíói á laugardaginn. „Við ætlum að koma öll saman, fjölskylda og æskuvinir, og halda rosa Eurovision-partí. Bara krossa fingur og fagna og fylgja laginu hans áfram. Við verðum alveg yfir 100 manns. Sjonni á svo stóra fjölskyldu og enn fleiri vini.“ Nína segir Kristínu Maríu, dóttur Sigurjóns, sjá um að halda uppi stuð- inu. „Hún er bara 11 ára en algjör stjarna, hún er rosalega flink í því að halda uppi stuðinu, búa til leiki og fá alla með. Það er líka gott vegna þess að það verða mörg börn í boðinu, þetta verður auðvitað svona barn- vænt fyrst og fremst þannig að allir geta verið með. Alveg eins og Sjonni sjálfur myndi vilja hafa það.“ Eitthvað sprakk innra með henni Vinir og vandamenn Sjonna fóru til Düsseldorf til þess að styðja Vini Sjonna og Þórunni Ernu á sviðinu í undanúrslitunum. Nína Dögg segist aldrei hafa upplifað aðra eins tilfinn- ingasprengju. „Við vorum öll úti á þriðjudag- inn, bæði móður- og föðurfjöl- skylda Sjonna, börnin hans og nánir vinir. Ég hef aldrei upplifað tilfinningar sem þessar,“ segir Nína. „Við vorum orðin frekar dofin, maður trúði því ekki að þau kæm- ust ekki áfram. Svo sáum við fán- ann og við trylltumst af gleði. Þetta var tilfinningasprengja, ég hefði viljað að einhver hefði tekið þetta upp á myndband því eiginlega man ég ekki hvað gerðist fyrr en fimm mínútum seinna þegar við vorum öskrandi, hoppandi og kyssandi og knúsandi hvert annað. Það gerðist eitthvað innra með mér sem hefur aldrei gerst áður. Það sprakk eitt- hvað,“ segir Nína og hlær. Hún segir Þórunni og Vini Sjonna hafa fundið fyrir stuðningi fjölskyld- unnar því þau hafi fengið að sitja al- veg fremst við sviðið. „Við létum sko vel í okkur heyra, sennilega hefur enginn misst sig eins mikið og við gerðum við úrslitin. Þegar Þórunn og strákarnir komu á sviðið í lokin þá stóðum við þarna á kantinum, tár- vot, alsæl og enn að öskra okkur hás af trylltri gleði.“ Dóttir Sjonna sér um skemmtiatriðin Vinir og ættingjar Sjonna halda risastórt Eurovision-partí í Tjarnarbíói: Fjölskyldan Foreldrar Sjonna, systkini og tvö barna hans, Aron og Kristín María. Systkinin Kristín María og Aron. Kristín María er mikill stuðbolti og ætlar að sjá um ýmis skemmtiatriði í Eurovision-boðinu í Tjarnarbíói á laugardaginn. Eitthvað sprakk innra með henni Nína Dögg segist aldrei hafa fundið álíka tilfinningar og þegar úrslitin voru kynnt í Düsseldorf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.