Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2011, Side 41
Viðtal | 41Helgarblað 13.–15. maí 2011 en tíminn stendur ekki í stað. Og við getum enduruppgötvað þá gömlu þrá. Lífið bíður. Komdu með í ferða- lag. Við saman sjá munum bjart- an dag. Því tíminn líður hratt. Ég vil bara komast aftur heim.“ „Ég vil bara sjá andlit þitt á ný“ Enska textann vann Þórunn Erna annars vegar upp úr þeim íslenska og hins vegar demó-tökum frá Sjonna þar sem hún reyndi að halda inni setningum frá honum og bæta við persónulegum tengingum með frösum á borð við „Brosið þitt lýsir mér leið“ og „Love is you“, sem eru heiti á lögum sem Sjonni söng. Sú útgáfa er ekki síður hjartnæm en í textanum segir meðal annars að það sé kominn tími til að fara en ég sjái þig brátt. Ég geti ekki beðið eft- ir morgundeginum til að segja það sem ég vil segja. Brosið þitt lýsi mér leið. Ég vilji bara sjá andlit þitt á ný. Sumir segi að ég sé svolítill kjáni. Ég stoppa á leið minni niður veginn. Ég heyri hlátur þinn milli trjánna, hvísl þitt í golunni: „Ást mín ert þú.“ Eng- inn veit sína stund né stað. Þegar minn tími er kominn mun ég finna þig. Ég veit að þú verður ást mín á ný. Óður til lífsins Textinn er óður til lífsins, því eins og Þórunn segir er lífið stutt og því mikilvægt að njóta þess. „Við eigum að vera með þeim sem við elskum og njóta þessa lífs. Við höfum ekkert endalausan tíma og eigum ekki að eyða honum í einhverja vitleysu. Það er það sem við erum að gera hérna úti. Við erum bara að njóta þess. Það er talað um það hvað íslenska liðið er afslappað. Við erum bara að reyna að njóta þess að vera hér og hafa gaman af lífinu, syngja alls konar Eurovision-lög úti um allt og vera í góðum fíling. Við erum öll að reyna að lifa eftir þessu eftir að Sjonni dó. Eins og ég hef sagt áður getum við ekki stjórnað því sem kemur fyrir okkur í lífinu en við getum reynt að stjórna því hvernig við bregðumst við og höldum áfram. Ég held áfram fyrir börnin og mig sjálfa. Þegar lífið tekur u-beygju þá verður maður að finna einhvern flöt á því.“ Sonurinn lagðist á bæn Börnin hafa fengið að taka fullan þátt í þessu ferli. Í jarðarför föður þeirra vakti kistan sérstaka athygli viðstaddra því börnin höfðu skreytt hana, meðal annars með þessari kveðju: „LOVE IS YOU, kæri eng- ill og Pabbi, ég elska þig.“ Sjonni söng nefnilega lagið Love is you eft- ir Pálma Sigurhjartarson í tilefni af 70 ára afmæli John Lennon. Glöggir áhorfendur hafa kannski áttað sig á því að sama kveðja er rituð á tromm- una sem notuð er í Eurovision-lag- inu okkar. Sú kveðja fylgir þeim úti og þau bera hana meðal annars á barmmerkjum. Þórunn tengir þenn- an frasa sterkt við Sjonna: „Það var svo mikil ást í kringum Sjonna og hann gaf alltaf mikið af sér. Í mínum huga var þetta hann: Love is you.“ Tvö barnanna fóru út til Düssel- dorf með Þórunni. „Litlu strákarnir mínir eru heima því það er aldurs- takmark á keppnina. En þau fara reyndar heim í dag,“ sagði hún þegar blaðamaður ræddi við hana á mið- vikudag. „Þau voru svo glöð í gær. Ég veit að sex ára gamall sonur minn sem varð eftir heima bað til Guðs að við kæmumst áfram. Þegar sjö lönd voru komin áfram lagðist hann á bæn. Þegar aðeins átti eftir að draga um síðasta sætið sagði amma hans að nú kæmist Noregur senni- lega áfram og það væri bara allt í lagi. Hann sagði bara: Nei, strákarnir komast áfram. Hann hafði fulla trú á þessu,“ segir Þórunn og hlær. „Hann missti aldrei trúna. Hann er örugg- lega sá eini sem missti aldrei trúna.“ Allir svo yndislegir Þórunn viðurkennir þó að blaða- mennirnir úti hafi veitt íslenska hópnum mikla athygli, bæði vegna sögunnar á bak við lagið og eins út af atriðinu sem þykir flott. „Fólki þykir lagið gott og atriðið flott. Söngvararnir eru bæði sæt- ir og góðir þannig að þetta spilar allt saman.“ Meira að segja aðrir þátttak- endur sýna þeim ekkert nema kærleika og góðvild. „Það eru all- ir svo yndislegir. Mér finnst bara svo yndislegt að kynnast hinum þátttakendunum. Fulltrúar allra þessara þjóða sem dvelja á sama hóteli og við, Noregs, Danmerkur, San Marínó og Makedóníu, eru allir saman í liði. Það er mikill samhugur í þessum hópi. Við sjáum á eftir Norðmönnunum og eigum eftir að sakna þeirra í úrslitunum.“ Það sama á kannski ekki við um alveg alla keppendurna í Eurovision en Þórunn gerir nú samt lítið úr því. „Flestir eru vinaleg- ir. Kannski er ekki annað hægt þeg- ar við komum bara með kærleika til allra. Kannski fer það eftir því hver á í hlut.“ „Þetta var okkar draumur“„Við eigum að vera með þeim sem við elskum og njóta þessa lífs. Við höfum ekkert endalausan tíma og eig- um ekki að eyða honum í einhverja vitleysu. „Það er mjög græð- andi fyrir okkur að vera hér saman og sú heilun mun halda áfram. Sigurjón Brink Draumurinn var að leyfa lagi h ans að hljóma sem víðast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.